Fyrri Konungabók 4Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Fyrri Konungabók 4

Embættismenn Salómós; vegur hans og vizka. Á. Þannig var Salómó konungur yfir öllum Ísrael.

þessir voru æðstir embættismenn hans: Asarja Zadóksson var prestur,

Elíhóref og Ahía Sísasynir voru kanzlarar, Jósafat Ahílúðsson var sagnameistari,

Benaja Jójadason var yfir hernum, Zadók og Abjatar voru prestar,

Asarja Natansson var yfir fógetunum og Sabúð Natansson prestur var stallari konungs.

Ahísar var dróttseti og Adóníram Abdasson var yfir kvaðarmönnum.

Og Salómó hafði tólf fógeta yfir öllum Ísrael; skyldu þeir birgja konung og hirð hans að vistum sinn mánuðinn hver á ári hverju.

Og þetta eru nöfn þeirra: Ben-Húr á Efraímfjöllum;

Ben-Deker í Makaz og í Saalbím og Bet-Semes og Elon, alt að Bet-Hanan.

Ben-Heseð í Arúbbót; honum tilheyrði Sókó og alt Heferland.

Ben-Abínadab hafði alt Dór-hálendi; átti hann Tafat, dóttur Salómós, fyrir konu.

Baana Ahílúðsson: Taanak og Megiddó og alt Bet-Sean, sem liggur hjá Zartan fyrir neðan Jesreel, frá Bet-Sean til Abel-Mehóla, alt vestur fyrir Jokmeam.

Ben-Geber í Ramót í Gíleað, honum tilheyrðu þorp Jaírs Manassesonar í Gíleað; honum tilheyrði landsspildan Argób í Basan, sextíu stórar borgir, með múrveggjum og slagbröndum af eiri.

Ahínadab Íddóson Í Mahanaím.

Akímaaz í Naftali; hann hafði og gengið að eiga Basmal dóttur Salómós.

Baana Húsaíson í Asser og Bealót.

Jósafat Parúason í Íssakar;

Símeí Elason í Benjamín;

Geber Úríson í Gíleaðlandi, landi Síhons Amóríta konungs og Ógs, konungs í Basan; hann einn var fógeti í því landi.

Júda og Ísrael voru fjölmennir, séð! sandur á sjávarströndu; þeir átu og drukku og voru glaðir.

Salómó drotnaði yfir öllum konungaríkjum frá Fljótinu Filistalands og til landamæra Egiptalands; færðu þeir Salómó skatt af voru þegnskyldir honum alla æfi hans.

Og Salómó þurfti daglega þú matar þrjátíu kór af hveiti og sextíu kór af mjöli,

tíu alda uxa og tuttugu uxa haggenga og hundrað sauði, auk hjarta, skógargeita, dáhjarta og alifugla.

Því að hann réð yfir öllu landi fyrir vestan Fljótið, frá Tífsa til Gasa, yfir öllum konungum fyrir vestan Fljótið, og hafði frið á allar hliðar hringinn í kring,

svo að Júda og Ísrael bjuggu öruggir, hver maður undir sínu víntré og fíkjutré, frá Dan til Beerseba, alla æfi Salómós.

Og Salómó hafði fjörutíu þúsund vagneyki og tólf þúsund reiðhesta.

Og fógetar þessir birgðu Salómó konung að vistum og alla þá, er komu að borði Salómós konungs, sinn mánuðinn hver; létu þeir ekkert skorta.

Og bygg og hey handa akhestunum og gæðingunum fluttu þeir þangað, er hann var, hver eftir því sem honum bar.

Og Guð veitti Salómó afarmikla speki og vizku og djúpsæi andans, sem sandur er margur á sjávarströnd,

og speki Salómós var meiri en speki allra austurbyggja og öll speki Egiptalands.

Og hann var allra manna vitrastur, vitrari en Etan Esrahíti og Heman og Kalkól og Darda Mahólssynir, og hann var nafnfrægur með öllum þjóðum umhverfis.

Og hann mælti þrjú þúsund orðskviðu, og ljóð hans voru eitt þúsund og fimm að tölu.

Og hann talaði um trén, alt frá sedrustrjánum á Líbanon til ísópsins, sem sprettur á múrveggnum. Og hann talaði um fénað og fugla, orma og fiska,

og menn komu af Öllum þjóðum til þess að heyra speki Salómós, frá öllum konungum Jarðarinnar, er heyrðu speki hans getið. Salómó gjörir samning við Híram og undirbýr musterisbygginguna.