Að öðru leyti biðjum vér yður því, bræður, og áminnum í drotni Jesú, að eins og þér hafið numið af oss, hvernig yður ber að framganga og þóknast Guði, svo sem þér einnig framgangið, að þér takið enn þá meiri framförum;
því að þér vitið hver boðorð vér gáfum yður fyrir Drottin Jesúm;
því að þetta er vilji Guðs: helgun yðar, að þér skulið halda yður frá frillulífi,
að sérhver yðar skuli láta sér lærast að fá sér sitt eigið ker, í heilagleika og heiðri,
en ekki í girndarbruna, eins og heiðingjarnir, er ekki þekkja Guð;
að enginn veiti yfirgang eða hafi af bróður sínum í nokkuru máli, því að Drottinn er hegnari alls þvílíks, eins og vér höfum áður sagt yður og vitnað kröftuglega,
því að ekki kallaði Guð oss til saurlifnaðar, heldur í helgun.
Sá, sem þess vegna fyrirlítur þetta, fyrirlítur ekki mann, heldur Guð, sem gefur yður sinn heilaga anda.
En ekki hafið þér þess þörf, að eg skrifi yður um bróðurkærleikann, því að sjálfir eruð þér uppfræddir af Guði til að elska hver annan,
því að það gjörið þér einnig við alla bræðurna, sem eru í allri Makedóníu; en vér áminnum yður, bræður, að taka enn meiri framförum
og leita sæmdar í því að lifa kyrlátu lífi, og stunda hver sitt starf, og vinna með höndum yðar, eins og vér höfum boðið yður,
til þess að þér framgangið sómasamlega gagnvart þeim, sem fyrir utan eru, og séuð upp á engan komnir.
Ekki viljum vér, bræður, láta yður vera ókunnugt um þá, sem sofa, til þess að þér séuð ekki hryggir eins og hinir, sem ekki hafa von.
Því að ef vér trúum því að Jesús sé dáinn og upprisinn, þá mun Guð sömuleiðis fyrir Jesúm leiða ásamt honum fram þá, sem sofnaðir eru;
því það segjum vér yður með orði Drottins, að vér sem lifum og erum eftir við tilkomu Drottins, munum alls ekki fyrri verða en hinir sofnuðu;
því að sjálfur Drottinn mun með kalli, með höfuðengils raust og með básúnu Guðs, stíga niður af himni; og þeir, sem í Kristi eru dánir, munu fyrst upp rísa;
síðan munum vér, sem lifum, sem eftir erum, verða ásamt þeim hrifnir burt í skýjum til fundar við Drottin í loftinu; og síðan munum vér vera með drotni alla tíma.
Huggið því hver annan með þessum orðum.