Fyrra Þessaloníkubréf 5Krans-útgáfa

Fyrra Þessaloníkubréf 5

En um tíma og tíðir hafið þér, bræður, ekki þörf á að yður sé skrifað,

því að sjálfir vitið þér gjörla, að dagur Drottins kemur sem þjófur á nóttu.

Þegar menn segja: »Friður og engin hætta«, þá kemur snögglega tortíming yfir þá, eins og jóðsótt yfir þungaða konu, og þeir munu alls ekki undan komast.

En þér, bræður, eruð ekki í myrkri, svo að dagurinn geti komið yfir yður sem þjófur;

því að allir eruð þér synir ljóssins og synir dagsins. Vér erum ekki næturinnar né myrkursins;

vér skulum þess vegna ekki sofa eins og aðrir, heldur vökum og verum algáðir;

því að þeir, sem sofa, sofa á nóttunni, og þeir, sem drekka, drekka á nóttunni.

En vér, sem heyrum deginum til, skulum vera algáðir, íklæddir brynju trúar og kærleika, og von hjálpræðisins sem hjálmi;

því að ekki hefir Guð selt oss til reiði, heldur til að öðlast sáluhjálp fyrir Drottin vorn Jesúm Krist,

sem dó fyrir oss, til þess að hvort sem vér vökum eða sofum, þá mættum vér lifa ásamt honum.

Áminnið því hver annan og uppbyggið hver annan, eins og þér og gjörið.

En vér biðjum yður, bræður, að sýna viðurkenningu þeim, sem erfiða meðal yðar og veita yður forstöðu í drotni og áminna yður,

og að hafa þá í sérlega miklum metum í kærleika fyrir verk þeirra. Lifið í friði yðar á milli.

En vér áminnum yður, bræður: Vandið um við þá, sem óreglusamir eru, huggið ístöðulitla, takið að yður þá, sem óstyrkir eru, verið langlyndir við alla.

Gætið þess að enginn gjaldi neinum ilt með illu, en keppið ávalt eftir hinu góða, bæði hver við annan og við alla.

Verið ætíð glaðir.

Biðjið án afláts.

Gjörið þakkir í öllu, því að það er vilji Guðs yður viðvíkjandi í Kristi Jesú.

Slökkvið ekki andann.

Fyrirlítið ekki spádóma.

Prófið alt; haldið því, sem gott er.

Haldið yður frá sérhverri mynd hins illa.

En sjálfur friðarins Guð helgi yður algjörlega, og gjörvallur andi yðar, sál og líkami varðveitist ólastanlega í tilkomu Drottins vors Jesú Krists.

Trúr er sá, er yður kallar, og hann mun og koma þessu til leiðar.

Bræður, biðjið fyrir oss!

Heilsið öllum bræðrunum með heilögum kossi.

Eg særi yður við Drottin, að þér látið lesa bréf þetta upp fyrir öllum bræðrunum.

Náðin Drottins vors Jesú Krist sé með yður.