Er eg ekki frjáls? Er eg ekki postuli? Hefi eg ekki séð Jesúm, Drottin vorn? Eruð þér ekki verk mitt í drotni?
Þótt ekki væri eg postuli fyrir aðra, þá er eg það fyrir yður. Því að þér eruð í drotni innsigli postuladóms míns;
þetta er vörn mín gagnvart þeim, sem dæma um mig.
Höfum vér ekki frelsi til að eta og drekka?
Höfum vér ekki frelsi til að ferðast um með kristna eiginkonu, alveg eins og hinir postularnir og bræður Drottins og Kefas?
Eða erum við Barnabas þeir einu, sem ekki eru undanþegnir því að vinna?
Hver tekst nokkurn tíma herþjónustu á hendur á sjálfs síns mála? Hver gróðursetur víngarð og neytir ekki ávaxtar hans? eða hver gætir hjarðar og neytir ekki af mjólk hjarðarinnar?
Tala eg þetta á mannlegan hátt? Eða segir ekki einnig lögmálið það?
Því að ritað er í lögmáli Móse: Þú skalt ekki múlbinda uxann, er hann þreskir. Hvort lætur Guð sér ant um uxana?
Eða segir hann það ekki að öllu leyti vor vegna? Jú, því að vor vegna var það skrifað, því að plógarinn á að plægja með von og þreskjarinn með von um hlutdeild.
Ef vér nú höfum sáð því sem andlegt er hjá yður, er þá mikið að vér uppskerum hjá yður það sem líkamlegt er?
Ef aðrir hafa þennan rétt hjá yður, höfum vér hann þá ekki enn þá fremur? En vér höfum ekki hagnýtt oss þennan rétt, heldur sættum oss við alt, til þess að vér enga tálmun gjörum fagnaðarerindi Krists.
Vitið þér ekki, að þeir sem vinna að hinum helgu athöfnum, þeir alast við það sem kemur úr helgidóminum, að þeir, sem starfa við altarið, taka hlut með altarinu?
Þannig hefir Drottinn einnig fyrirskipað, að þeir, sem prédika fagnaðarerindið, skuli lifa af fagnaðarerindinu.
En eg hefi ekki hagnýtt mér neitt af þessu, og eg skrifa þetta ekki heldur til þess að þannig skuli verða gjört við mig. Því að mér væri betra að deyja en að nokkur ónýti það sem eg hrósa mér af.
Því að þótt eg sé að boða fagnaðarerindi, þá er það mér ekki neitt hrósunarefni, því að nauðsyn hvílir á mér; já, vei mér, ef eg ekki boðaði fagnaðarerindi.
Því að gjöri eg þetta af frjálsum vilja, þá fæ eg laun, en gjöri eg það tilknúður, þá hefir mér verið trúað fyrir ráðsmensku.
Hver eru þá laun mín? Að eg læt fagnaðarerindið vera ókeypis, er eg boða það, svo að eg hagnýti mér ekki það sem eg á rétt á í fagnaðarerindinu.
Því að þótt eg sé öllum óháður, hefi eg gjört sjálfan mig að þjóni allra, til þess að eg áynni þess fleiri.
Og eg hefi verið Gyðingunum sem Gyðingur, til þess að eg áynni Gyðinga, þeim sem eru undir lögmálinu eins og sá, sem er undir lögmálinu, enda þótt eg sjálfur sé ekki undir lögmálinu, til þess að eg áynni þá sem eru undir lögmálinu;
hinum lögmálslausu sem lögmálslaus, þótt eg sé ekki lögmálslaus fyrir Guði, heldur lögbundinn Kristi, til þess að eg áynni hina lögmálslausu.
Hinum óstyrku hefi eg verið óstyrkur, til þess að eg áynni hina óstyrku. Eg er orðinn öllum alt, til þess að eg yfir höfuð geti frelsað nokkura.
En eg gjöri alt vegna fagnaðarerindisins, til þess að eg fái hlutdeild með því.
Vitið þér ekki, að þeir sem á skeiðvellinum hlaupa, hlaupa að sönnu allir, en einn fær sigurlaunin? Hlaupið þannig, að þér getið hlotið þau.
En sérhver, sem tekur þátt í kappleikjum, er bindindissamur í öllu, þeir til þess að hljóta forgengilegan sigursveig, en vér óforgengilegan.
Þess vegna hleyp eg þá ekki eins og upp á óvissu; eg berst eins og sá, er ekki slær í vindinn;
en eg lem líkama minn og leiði hann í ánauð, til þess að eg, sem hefi prédikað fyrir öðrum, skuli ekki sjálfur verða gjörður rækur.