Gamla testamentiðSaga
Þennan sama dag gaf Ahasverus konungur Ester drotningu hús Hamans, fjandmanns Júða. En Mordekai gekk fyrir konung, því að Ester hafði sagt honum, hvað hann væri sér.
Og konungur dró innsiglishringinn af hendi sér, þann er hann hafði látið taka af Haman, og fékk Mordekai hann. En Ester setti Mordekai yfir hús Hamans. Júðum leyft að verja hendur sínar og hefna sín.
Og Ester talaði enn við konung, féll honum til fóta og bað hann grátandi að ónýta ilskuráð Hamans Agagíta, þau er hann hafði upp hugsað gegn Júðum.
En konungur rétti gullsprotann út í móti Ester. Þá stóð Ester upp og gekk fyrir konung
og mælti: Ef konunginum þóknast svo og hafi eg fundið náð í augum hans og sé konunginum það ekki ógeðfell og ef hann hefir mætur á mér, þá sé nú gefin út skrifleg skipun til þess að afturkalla bréfin, ráðagerð Hainans Hamdalasonar Agagíta, þau er hann ritaði til þess að láta eyða Júðum í öllum skattlöndum konungs.
Því að hvernig mundi eg fá afborið að horfa upp á ógæfu þá, er koma á yfir þjóð mína, og hvernig mundi eg fá afborið að horfa upp á tortíming kynsmanna minna?
Þá sagði Ahasverus konungur við Ester drotningu og Mordekai Júða: Sjá, hús Hamans hefi eg gefið Ester og sjálfur hefir hann verið festur á gálga, fyrir þá sök, að hann hafði lagt hendur á Júða.
En skrifið þið nú um Júða það er ykkur líkar í nafni konungs og innsiglið það með innsiglishring konungs. Því að ekkert það bréf, sem skrifað er í nafni konungs og innsiglað með innsiglishring konungs, verður afturkallað.
Og skrifurum konungs var þá stefnt saman, hinn tuttugasta og þriðja dag hins þriðja mánaðar — það er mánuðurinn sívan—; og var þá skrifað með öllu svo sem Mordekai bauð, til Júða og til jarlanna og til landstjóranna og til höfðingja skattlandanna frá Indlandi til Blálands, til skattlandanna hundrað tuttugu og sjö, í hvert skattland með skrift þess lands og til hverrar þjóðar á hennar tungu, og einnig til Júða með þeirra skrift og á þeirra tungu.
Og hann skrifaði í nafni Ahasverusar konungs og innsiglaði með innsiglishring konungs; og hann sendi bréf með ríðandi hraðboðum, sem riðu fyrirmanna-gæðingum úr stóði konungs,
þar sem konungur leyfði Júðum í öllum borgum að safnast saman og verja líf sitt, og að eyða, deyða og tortíma öllum liðsafla þeirrar þjóðar og lands, er sýndi þeim fjandskap, jafnvel börnum og konum, og ræna fjármunum þeirra,
á einum degi í öllum skattlöndum Ahasverusar konungs, hinn þrettánda dag hins tólfta mánaðar —- það er mánuðurinn adar,
Eftirrit af bréfinu skyldi gefið út sem lög í hverju skattlandi, til þess að gjöra þetta kunnugt öllum þjóðunum og til þess að Júðar skyldu vera viðbúnir þennan dag að hefna sín á óvinum sínum.
Hraðboðarnir, sem riðu fyrirmanna-gæðingunum, fóru af stað með skyndingu og flýti, að boði konungs, þegar er lagaboðið var gefið út í borginni Súsan.
En Mordekai gekk út frá konungi í konunglegum skrúða, purpurabláum og hvítum, með stóra gullkórónu og í mötli úr býssus og rauðum purpura, og í borginni Súsan varð gleði mikil og fögnuður.
Og hjá Júðum var ljós og gleði, fögnuður og dýrð.
Og í öllum skattlöndum og öllum borgum, þar sem skipun konungs og lagaboð hans kom, var gleði og fögnuður meðal Júða, veizluhöld ok hátíðisdagur; og Margir hinna heiðnu landsbúa gjörðust Júðar, því að ótti við Júða var yfir þá kominn. Júðar hefna sín á óvinum sínum og halda hátíð.