Gamla testamentiðSaga
Þá er þeir konungur og Haman voru komnir, til þess að drekka hjá Ester drotningu,
þá sagði konungur við Ester einnig þennan hinn annan dag, þá er þau voru sezt að vindrykkjunni: Hver er bón þín, Ester drotning? Hún mun veitast þér. Og hvers beiðist þú? Þótt það væri helmingur ríkisins, þá skal það í té látið.
Þá svaraði Ester drotning og sagði: Hafi eg fundið náð í augum þínum, konungur, og Þóknist konunginum svo, þá sé mér gefið líf mitt vegna bænar minnar og þjóð mín vegna beiðni minnar.
Því að vér erum seldir, eg og þjóð mín, til eyðingar, deyðingar og tortímingar. Og ef vér hefðum aðeins verið seldir að þrælum og ambáttum, þá mundi eg hafa þagað, þótt mótstöðumaðurinn hefði eigi verið fær um að bæta konungi skaðann.
Þá mælti Ahasverus konungur og sagði við Ester drotningu: Hver er sá og hvar er sá, er dirfðist að gjöra slíkt?
Ester mælti: Mótstöðumaðurinn og óvinurinn er þessi vondi Haman! En Haman Varð hræddur við konung og drolningu.
Og konungur stóð upp frá vindrykkjunni í reiði og gekk út í hallargarðinn, en Haman stóð eftir, til þess að Þiðja Ester drotningu um líf sitt, því að hann sá sér ógæfu búna af konungi.
En þegar konungur kom aftur utan úr hallargarðinum jnn í veizlusalinn, þá hafði Haman látið fallast á hvílubekk þann, sem Ester sat á. Þá sagði konungur: Mun hann einnig ætla að nauðga un un un að drotningunni hjá mér hér í höllinni? Óðara en þessi orð voru komin út af vörum konungs, huldu menn auglit Hamans.?
Og Harbóna, einn af geldingum þeim, er þjónuðu konungi, mælti: Sjá, gálginn, sem Haman lét gjöra handa Mordekai, sem þó hafði talað það, er konungi varð til heilla, stendur búinn í húsagarði Hamans, fimtíu álna hár. Þá mælti konungur: Festið hann á hann!
Og þeir festu Haman á gálgann, sem hann hafði reisa látið handa Mordekai. Þá rann konungi reiðin.