Esterarbók 9Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Esterarbók 9

Og þrettánda dag hins tólfta mánaðar — það er mánuðurinn adar —, þá er skipun konungs og lagaboði hans skyldi fullnægt, þann dag er óvinir Júða höfðu vonað að fá jdirlmgað þá, en nú þvert á móti •lúðar sjálfir skyldu yfirbuga fjendur sína:

þá söfnuðust Júðar saman Í borgum sínum um öll skattlönd Ahasverusar konungs, til þess að leggja hendur á þá, er þeim leituðu tjóns. Og enginn fékk staðist fyrir þeim, því að ótti við þá var kominn yfir allar þjóðir.

Og allir höfðingjar skattlandanna og jarlarnir og landstjórarnir og embættismenn konungs veittu Júðum lið, því að ótti við Mordekai var yfir þá kominn.

Því að Mordekai var mikill orðinn við hirð konungs, og orðstír hans fór um öll skattlöndin, því að maðurinn Mordekai varð æ voldugri og voldugri.

Og Júðar drápu óvini sína hrönnum: vógu þá með sverði, myrtu þá og tortímdu þeim, og fóru þeir með hatursmenn sína eftir geðþekni sinni.

Og í borginni Súsan drápu Júðar og tortímdu fimm hundruðum manns.

Og þeir drápu Parsandafa, Dalfón, Aspafa,

Pórata, Adalja, Arídata,

Parmasta, Arísaí, Arídaí og Vajesata,

tíu sonu Hamans Hamdatasonar, fjandmanns Júða; en eigi lögðu þeir hendur á fjármuni manna.

Þennan sama dag kom tala hinna myrtu í borginni Súsan fyrir konung.

Og konungur sagði við Ester drotningu: Í borginni Súsan hafa Júðar myrt og drepið fimm hundruð manns og tíu sonu Hamans; hvað munu þeir hafa gjört í öðrum skattlöndum konungs? Og hver er bæn þín? Hún skal veitast þér. Og hvers beiðist þú frekar? Það skal í té látið.

Þá mælti Ester: Ef konunginum þóknast svo, þá sé Júðum, þeim sem eru í borginni Súsan, leyft að fara hinu sama fram á morgun sem í dag; og þá tíu sonu Hamans festi menn á gálga.

Og konungur bauð að svo skyldi gjöra; og fyrirskipun var útgefin í Súsan, og synir Hamans tíu voru festir á gálga.

Og Júðar í Súsan söfnuðust og saman hinn fjórtánda dag adar-mánaðar og myrtu þrjú hundruð manns í Súsan; en eigi lögðu þeir hendur á fjármuni þeirra.

En aðrir Júðar, þeir er bjuggu í skattlöndum konungs, söfnuðust og saman og vörðu líf sitt, með því að hefna sín á óvinum sínum og myrða sjötíu og fimm þúsundir meðal fjandmanna sinna, — en eigi lögðu þeir hendur á fjármuni þeirra —

hinn þrettánda dag adar-mánaðar, og þeir tóku sér hvíld hinn fjórtánda og gjörðu hann að veizlu- og gleðidegi.

En Júðar þeir, sem bjuggu í Súsan, höfðu safnast saman bæði hinn þrettánda og hinn fjórtánda mánaðarins, og tóku þeir sér hvíld hinn fimtánda og gjörðu hann að veizlu- og gleðidegi.

Fyrir því halda Júðar í sveitunum, þeir er búa í sveita-þorpunum, hinn fjórtánda dag adar-mánaðar sem gleði-, veizlu- og hátíðisdag, og senda þá hver öðrum matgjafir.

Og Mordekai skrásetti þessa viðburði og sendi bréf til allra Júða í öllum skattlöndum Ahasverusar konungs, bæði nær og fjær,

til þess að gjöra þeim að skyldu að halda árlega helgan fjórtánda og fimtánda dag adar-mánaðar

eins og dagana, sem Júðar fengu hvíld frá óvinum sínum, og mánuðinn, er hörmung þeirra snerist í fögnuð og hrygð þeirra í hátíðisdag — með því að gjöra þá að veizudögum og fagnaðar, og senda þá hver öðrum matgjafir og fátækum ölmusu.

Og Júðar lögleiddu að gjöra það, er þeir höfðu upp byrjað og Mordekai hafði skrifað þeim.

í Með því að Haman Hamdatason Agagili, fjandmaður allra Júða, hafði hugsað það ráð upp gegn Júðum, að eyða þeim, og varpað púr, það er hlutkesti, til að afmá þá og eyða þeim,

en konungur hafði fyrirskipað með bréfi, þá er Ester gekk fyrir hann, að hið vonda ráð, er hann hafði upphugsað gegn Júðum, skyldi honum sjálfum í koll koma og hann og synir hans skyldu festir á gálga,

fyrir því voru þessir dagar kallaðir púrím, eftir orðinu púr. Þess vegna — vegna allra orða þessa bréfs, bæði vegna þess, er þeir sjálfir höfðu séð, og hins, er þeir höfðu orðið fyrir, —

gjörðu Júðar að að skyldu og lögleiddu það sem venju, er eigi mætti út af bregða, bæði fyrir sig og niðja sína og alla þá, er sameinuðust þeim, að halda þessa tvo daga helga árlega, samkvæmt fyrirskipuninni um þá og á hinum ákveðna tíma,

og að þessara daga skyldi verða minst og þeir helgir haldnir af hverri kynslóð og hverri ætt, í hverju skattlandi og í hverri borg, svo að þessir púrímdagar skyldu eigi líða undir lok meðal Júða og minning þeirra aldrei í gleymsku falla hjá niðjum þeirra.

Og Ester drotning, dóttir Abíhaíls, og Mordekai Júði rituðu bréf og beittu þar öllu valdi sínu, til þess að gjöra að lögum þetta annað bréf um púrím,.

Og hann sendi bréf til allra Júða í skattlöndin hundrað tuttugu og sjö, um alt ríki Ahasverusar, friðar- og sannleiksorð,

til þess að lögleiða þessa púrímdaga á hinum ákveðna tíma, eins og Mordekai Júði og Ester drotning höfðu lögleitt þá fyrir þá, eins og þeir höfðu lögleitt ákvæðin um föstur og harmakvein, er þeim skyldi fylgja, fyrir sig og niðja sína.

Og skipun Esterar gjörði púrímákvæði þessi að lögum, og var hún rituð í bók.