Gamla testamentiðSaga
Ester drottning leitaði og til Drottins, því að hún óttaðist þann háska, sem yfir vofði.
Og er hún hafði lagt af sér konunglegan skrúða sinn, klæddist hún klæðum, sem hæfðu gráti og sorg; í stað ýmissa dýrra smyrsla huldi hún höfuð sitt ösku og saur, og hún lægði líkama sinn með föstum; og alla þá staði, sem hún hafði áður vanist að gleðjast á, fyllti hún slitnu hári sínu.
Og hún bað til Drottins, Guðs Ísraels, og sagði: „Drottinn minn, þú sem einn ert konungur vor, hjálpa mér, einmana konu, sem engan hef annan hjálpara en þig.
Háski minn er í höndum mínum.
Eg hef heyrt af föður mínum, að þú, Drottinn, tókst Ísrael úr hópi allra þjóða og feður vora af öllum forfeðrum þeirra til að eiga þá að eilífri arfleifð, og þú hefir gjört þeim eins og þú hést.
Vér höfum syndgað í augsýn þinni, og fyrir því hefir þú ofurselt oss í hendur óvina vorra,
því að vér höfum tilbeðið guði þeirra. Réttlátur ert þú, Drottinn.
Og nú láta þeir sér eigi nægja að kúga oss með hinni hörðustu ánauð, heldur eigna þeir mátt handa sinna valdi skurðgoða sinna
og ásetja sér að breyta fyrirheitum þínum og eyða arfleifð þinni og loka munnum þeirra, sem þig lofa, og slökkva dýrð musteris þíns og altaris,
að þeir megi opna munna heiðingjanna og lofa styrk skurðgoða og mikilla að eilífu holdlegan konung.
Gef eigi, Drottinn, veldissprota þinn þeim, sem eigi eru til, svo að þeir hlæi eigi að falli voru; heldur snú ráði þeirra yfir þá sjálfa og eyð þeim, sem tekið hefir að geisa gegn oss.
Minnstu, Drottinn, og sýn þig oss á tíma þrengingar vorrar, og gef mér djörfung, Drottinn, konungur guðanna og alls valds.
Gef mér vel skipaða ræðu í munn minn frammi fyrir ljóninu, og snú hjarta hans til haturs á óvini vorum, að bæði hann sjálfur farist og hinir, sem honum samsinna.
En frelsa oss með hendi þinni, og hjálpa mér, sem engan hef annan hjálpara en þig, Drottinn, þú sem hefir þekking á öllum hlutum.
Og þú veist, að eg hata dýrð hinna óguðlegu og hef andstyggð á beði hinna óumskornu og hvers útlendings.
Þú þekkir neyð mína, að eg hef andstyggð á tákni drambs míns og dýrðar, sem á höfði mínu er á dögum opinberrar framgöngu minnar, og hata það sem blóðugan tuskudúk og ber það eigi á dögum þagnar minnar,
og að eg hef eigi etið við borð Hamans né hefir veisla konungsins mér þóknast, og að eg hef eigi drukkið vín dreypifórnanna,
og að ambátt þín hefir aldrei fagnað, síðan eg var hingað flutt alt til þessa dags, nema í þér, Drottinn, Guð Abrahams.
Guð, sem ert máttugur yfir öllu, heyr rödd þeirra, sem enga aðra von hafa, og frelsa oss úr hendi hinna óguðlegu, og frelsa mig frá ótta mínum.“