Esterarbók 12Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Esterarbók 12

Og hann dvaldist á þeim tíma í hirð konungsins með Bagata og Þara, geldingum konungsins, sem voru dyraverðir hallarinnar.

Og er hann skildi ráðagerðir þeirra og hafði kostgæfilega rannsakað fyrirætlanir þeirra, komst hann að því, að þeir hygðust leggja hendur á Artaxerxes konung með ofbeldi, og hann sagði konunginum frá því.

Þá lét konungurinn yfirheyra þá báða, og eftir að þeir höfðu játað, bauð hann að lífláta þá.

En konungurinn lét skrá það, sem gjörst hafði; og Mordekaí færði og minningu málsins í letur.

Og konungurinn bauð honum að dveljast í garði hallarinnar og gaf honum gjafir fyrir upplýsingarnar.

En Haman, sonur Amadatí Búgíta, var í miklum heiðri hjá konunginum og leitaðist við að gjöra Mordekaí og lýð hans mein sakir geldinganna tveggja, sem líflátnir voru.