Gamla testamentiðSaga
Og þessir eru þeir úr skattlandinu, er heim fóru úr herleiðingarútlegðinni, þeir er Nebúkadnezar Babel-konungur hafði herleitt til Babel og nú sneru aftur til Jerúsalem og Júda, hver til sinnar borgar,
þeir sem komu með Serúbabel, Jesúa, Nehemía, Seraja, Reelja, Mordekai, Bilsan, Mispar, Bigvaí, Rehúm og Baana. Talan á mönnum Ísraelslýðs var:
Niðjar Pareós: tvö þúsund eitt hundrað sjötíu og tveir.
Niðjar Sefatja: þrjú hundruð sjötíu og tveir.
Niðjar Ara: sjö hundruð sjötíu og fimm.
Niðjar Pahat-Móabs, sem sé niðjar Jesúa og Jóabs: tvö þúsund átta hundruð og tólf.
Niðjar Elams! eitt þúsund tvö hundruð fimtíu og fjórir.
Niðjar Satlú: níu hundruð fjörutíu ogíimm.
Niðjar Sakkaí: sjö hundruð og sextíu.
Niðjar Bani: sex hundruð fjörutíu og tveir.
Niðjar Bebaí: sex hundruð tuttugu og þrír.
Niðjar Asgads: eitt þúsund tvö hundruð tuttugu og tveir.
Niðjar Adóníkams: sex hundruð sextíu og sex.
Niðjar Bigvai: tvö þúsund fimtíu og sex.
Niðjar Adins: fjögur hundruð fimtíu og fjórir.
Niðjar Aters, frá Hiskía: níutíu og átta.
Niðjar Bezai: þrjú hundruð tuttugu og þrír.
Niðjar Jóra: hundrað og tólf.
Niðjar Hasúms: tvö hundruð tuttugu og þrír.
Niðjar Gibbars: níutíu og fimm.
Ættaðir frá Betlehem: hundrað tuttugu og þrír.
Menn frá Netófa: fimtíu og sex.
Menn frá Anatót: hundrað tuttugu og átta.
Ættaðir frá Asmavet: fjörutíu og tveir.
Ættaðir frá Kirjat-Jearím, Kefíra og Beerót: sjö hundruð fjörutíu og þrír.
Ættaðir frá Rama og Geba: sex hundruð tuttugu og einn.
Menn frá Mikmas: hundrað tuttugu og tveir.
Menn frá Betel og Af: tvö hundruð tuttugu og þrír.
Ættaðir frá Nebó: fimlíu og tveir.
Niðjar Magbis: hundrað fimtíu og sex.
Niðjar Elams hins annars: eitt þúsund tvö hundruð fimtíu og fjórir,
Niðjar Haríms: þrjú hundruð og tuttugu.
Ættaðir frá Lód, Hadíd og Ónó: sjö hundruð tuttugu og fimm.
Ættaðir frá Jeríkó: þrjú hundruð fjörutíu og fimm.
Ættaðir frá Senaa: þrjú þúsund sex hundruð og þrjátíu,
Prestarnir: niðjar Jedaja, af ætt Jesúa: níu hundruð sjötíu og þrír.
Niðjar Immers: eitt þúsund fimtíu og tveir.
Niðjar Pashúrs: eitt þúsund tvö hundruð fjörutíu og sjö.
Niðjar Haríms: eitt þúsund og seytján.
Levítarnir: niðjar Jesúa og Kadmiíels, af niðjum Hódavja: sjötíu og fjórir.
Söngvararnir: niðjar Asafs: hundrað tuttugu og átta.
Niðjar hliðvarðanna: niðjar Sallúms, niðjar Aters, niðjar Talmóns, niðjar Akúbs, niðjar Hatíta, niðjar Sóbaí — alls hundrað þrjátíu og níu.
Musterisþjónarnir: niðjar Zíha, niðjar Hasúfa, niðjar Tabbaóts,
niðjar Kerós, niðjar Síeha, niðjar Padóns,
niðjar Lebana, niðjar Hagaba, niðjar Akúbs,
niðjar Hagabs, niðjar Salmaí, niðjar Hanans,
niðjar Giddels, niðjar Gahars, niðjar Reaja,
niðjar Rezíns, niðjar Nekóda, niðjar Gassams,
niðjar Ússa, niðjar Pasea, niðjar Besaí,
niðjar Asna, niðjar Meúníta, niðjar Nefísíta,
niðjar Bakbúks, niðjar Hakúfa, niðjar Harhúrs,
niðjar Bazelúts, niðjar Mehída, niðjar Harsa,
niðjar Barkós, niðjar Sísera, niðjar Tema,
niðjar Nezía, niðjar Hatífa.
Niðjar þræla Salómós: niðjar Sótaí, niðjar Sóferets, niðjar Perúda,
niðjar Jaela, niðjar Darkóns, niðjar Giddels,
niðjar Sefatja, niðjar Hattils, niðjar Pókeret-Hazzebaíms, niðjar Amil,
allir musterisþjónarnir og niðjar þræla Salómós voru þrjú hundruð níutíu og tveir.
Og þessir eru þeir, sem fóru heim frá Tel-Mela, Tel-Harsa, Kerúb, Addan, Immer, en kunnu eigi að greina ætt sína og uppruna, hvort þeir væru komnir af Ísrael:
Niðjar Delaja, niðjar Tobía, niðjar Nekóda: sex hundruð fimtíu og tveir.
Og af niðjum prestanna: Niðjar Habaja, niðjar Hakkóz, niðjar Barsillaí, er gengið hafði að eiga eina af dætrum Barsillaí Gíleaðita og nefndur hafði verið nafni þeirra.
Þessir leituðu að ættartölum sínum, en þær fundust ekki, var þeim því hrundið frá prestdómi.
Og landstjórinn sagði þeim, að þeir mættu ekki eta af hinu háheilaga, þar til er kæmi fram prestur, er kynni að fara með úrím og túmmím.
Allur söfnuðurinn var til samans fjörutíu og tvær þúsundir þrjú hundruð og sextíu,
auk þræla þeirra og ambátta, er voru sjö þúsund þrjú hundruð þrjátíu og sjö; og þeir höfðu tvö hundruð söngvara og söngkonur.
Hestar þeirra voru sjö hundruð þrjátíu og sex, múlar tvö hundruð fjörutíu og fimm,
úlfaldar fjögur hundruð þrjátíu og fimm, asnar sex þúsund sjö hundruð og tuttugu.
Og sumir ætthöfðingjanna gáfu, er þeir komu til musteris Drottins í Jerúsalem, sjálfvilja-gjafir til musteris Guðs, til þess að það yrði reist á sínum stað.
Gáfu þeir hver eftir efnum sínum í byggingarsjóðinn: í gulli sextíu og eitt þúsund daríka og í silfri fimm þúsund mínur, og hundrað prestserki.
Þannig bjuggu prestarnir og Levítarnir og nokkurir af lýðnum og söngvararnir og hliðverðirnir og musterisþjónarnir í borgum sínum, og allur Ísrael í borgum sínum.