Esrabók 1Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Esrabók 1

Og á fyrsta ríkisári Ivýrusar Persakonungs blés Drottinn Iíýrusi Persakonungi því í brjóst — til þess að orð Drottins fyrir munn Jeremía rættust —, að láta boð út ganga um alt ríki sitt, og það í konungsbréfi, á þessa leið:

svo segir Kýrus Persakonungur: Öll konungsríki jarðarinnar hefir Drottinn, Guð himnanna, gefið mér, og hann hefir skipað mér að reisa sér musteri í Jerúsalem í Júda.

Hver sá meðal yðar, sem tilheyrir gjörvallri þjóð hans, með honum sé Guð hans, og hann fari heim tl Jerúsalem í Júda og reisi musteri Drottins, Ísraels Guðs; það er sá Guð, sem býr í Jerúsalem.

Og hvern þann, sem enn er eftir, á sérhverjum þeim stað þar sem hann dvelst sem útlendingur, hann skulu menn á þeim stað styrkja með silfri og gulli og lausafé og kvikfénaði, auk sjálfvilja-gjafa til Guðs musteris í Jerúsalem.

Þá tóku ætthöfðingjar Júda og Benjamíns og prestarnir og Levítarnir sig upp — allir þeir, er Guð hafði blásið í brjóst að fara og reisa musteri Drottins í Jerúsalem.

Og allir nágrannar þeirra hjálpuðu þeim um áhöld úr silfri, um gull, um lausafé og um kvikfénað og um gersemar, auk alls þess, er menn gáfu sjálfviljuglega.

Ivýrus konungur lét og af hendi kerin úr musteri Drottins, þau er Nebúkadnezar hafði flutt burt frá Jerúsalem og selt í musteri guðs síns.

Kýrus Persakonungur fékk þau í hendur Mítredat féhirði; og hann taldi þau út í hendur Sesbazar, höfðingja Júda-ættkvíslar.

En talan á þeim var þessi: þrjátíu gullskálar, þúsund silfurskálar, tuttugu og níu pönnur,

þjálfu könnur af gulli, silfurkönnur minni háttar fjögur hundruð og tíu, önnur ker þúsund,

Höll kerin af gulli og silfri til samans fimm þúsund og fjögur hundruð. Alt þetta flutti Sesbazar með sér, þá er hinir herleiddu voru fluttir frá Babel heim til Jerúsalem. - Taldir þeir, er heim sneru.