Gamla testamentiðSaga
En er sjöundi mánuðurinn kom, og Ísraelsmenn voru í borgunum, safnaðist lýðurinn saman eins og einn maður í Jerúsalem.
Þá tóku þeir sig til: Jesúa Józadaksson og bræður hans, prestarnir, og Serúbabel Sealtíelsson og bræður hans og reistu altari Ísraels Guðs, til þess að á því yrðu færðar brennifórnir, eftir því sem fyrir er mælt í lögmáli guðsmannsins Móse.
Og þeir reistu altarið þar er það áður hafði staðið, því að þeim stóð ótti af landsbúum, og færðu Drottni brennifórnir á því, morgun-brennifórnir og kveld-brennifórnir.
Og þeir héldu laufskálahátíðina, eftir því sem fyrir er mælt, og báru fram brennifórnir á degi hverjum með réttri tölu, að réttum sið, það er við átti á hverjum degi;
og því næst hinar stöðugu brennifórnir, og fórnir tunglkomuhátíðanna og allra hinna helgu löghátíða Drottins, svo og fórnir allra þeirra, er færðu Drottni sjálfviljafórn.
Frá fyrsta degi hins sjöunda mánaðar byrjuðu þeir að færa Drottni -brennifórnir, og hafði þá eigi enn verið lagður grundvöllur að musteri Drottins.
Og þeir gáfu steinsmiðunum og trésmiðunum silfur og Zídoningum og Týrus-mönnum mat og drykk og ob’u til að flytja sedrusvið frá Líbanon sjóleiðis til Jafó, samkvæmt Leyfi Kýrusar Persakonungs þeim til handa.
Og á öðru ári eftir heimkomu þeirra til húss Guðs í Jerúsalem, í öðrum mánuðinum, byrjuðu þeir Serúbabel Sealtíelsson og Jesúa Józadaksson og aðrir bræður þeirra, prestarnir og Levítarnir, og allir þeir, er komnir voru úr útlegðinni tl Jerúsalem, að setja Levíta, tvítuga og þaðan af eldri, til að hafa eftirlit með byggingu húss Drottins.
Og þannig gengu þeir Jesúa, synir hans og bræður hans, Kadmíel og synir hans, synir Hódavja, synir Henadads, svo og synir þeirra og bræður þeirra, Levítarnir, sem einn maður að því verki, að hafa eftirlit með þeim, er unnu að byggingu Guðs húss.
Ög er símiðirnir lögðu grundvöllinn að musteri Drottins, námu prestarnir þar staðar í embættisskrúða með lúðra og Levítarnir, niðjar Asafs, með skálabumbur, til þess að vegsama Drottin, eftir tilskipun Davíðs Ísraels-konungs.
Og þeir hófu að lofa og vegsama Drottin fyrir það, að hann er góður og að miskunn hans við Ísrael er eitif. Og allur lýðurinn laust upp miklu fagnaðarópi og lofaði Drottin fyrir það, að grundvöllur var lagður að húsi Drottins.
En margir af prestunum og Levítunum og ætthöfðingjunum — öldungar þeir, er séð höfðu hið fyrra musterið, — grétu hástöfum, þegar grundvöllur þessa húss var lagður að þeim ásjáandi, en margir æptu líka fagnaðar-og gleðióp.
Og lýðurinn gat ekki greint fagnaðarópin frá gráthljóðunum í fólkinu; því að lýðurinn laust upp miklu fagnaðarópi, og heyrðist ómurinn langar leiðir. Tálmað byggingu musterisins og Jorúsalom-múra.