Esekíelsbók 40Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Esekíelsbók 40

A Á tuttugasta og ítinta ári eftir að vér vorum herleiddir, í byrjun ársins, tíunda dag mánaðarins, fjórtán árum eftir að borgin var tekin, einmitt þann dag kom hönd Drottins yfir mig og flutti mig þangað.

Í guðlegri sýn flutti hann mig til Ísraelslands og setti mig niður á mjög hátt fjall; og á því var gagnvart mér sem endurreist borg.

Og er hann hafði flutt mig þangað, birtist maður nokkur, og var hann ásýndum sem af eiri væri; hann hélt á línstreng og mælistöng og stóð við hliðið.

Og maðurinn sagði við mig: Manns-son, lít á með augum þínum, hlýð á með eyrum þínum og hugfest þér alt, er eg sýni þér; því að þú ert til þess hingað fluttur, að þér verði sýnt þetta. Kunngjör þú Ísraelslýð alt það, sem þú sér.

Og sjá, múrveggur lá utan um musterið hringinn í kring, og maðurinn hélt á mælistöng í hendinni, hún var sex álna löng, alinin talin þverhönd lengri en almenn alin. Og hann mældi þykt múrsins, og var hún ein mælistöng, og hæðin var ein mælistöng.

Því næst gekk hann inn í hlið eitt, er vissi til austurs. Gekk hann upp tröppurnar, sem lágu upp að því, og mældi þröskuld hliðsins, og var hann ein mælistöng á breidd,

og hvert herbergi ein mælistöng á lengd og ein mælistöng á breidd og milli herbergjanna fimm álnir, og þröskuldur hliðsins til hliðar við forsal hliðsins að innanverðu ein mælistöng.

Og hann mældi forsal hliðsins,

og var hann átta álnir og múrstöpullinn fram af honum tvær álnir; en forsalur hliðsins gekk inn á við.

Og stúkurnar í hliðinu voru hver gegnt annarri, sínar þrjár hvorumegin; allar þrjár voru þær jafnar að máli; múrstöplarnir beggja vegna voru og jafnir að máli.

Og hann mældi dyravídd hliðsinsog var hún tíu álnir, en lengd hliðsins þrettán álnir.

Og fyrir framan stúkurnar Voru grindur, ein alin hvorumegin; en hver stúka var sex álnir á hvorn veg.

BOg hann mældi hliðið frá þaki einnar stúku yfir á þak annarfar og var breiddin tuttugu og fimm álnir. Dyrnar stóðust á beggja Vegna.

Og hann gjörði múrstöplana sextíu álnir alt í kring, alt að múrstöpli forgarðsins.

Og frá framhlið ytra dyrahliðsins inn að framhliðinni á forsal innra hliðsins voru fimtíu álnir.

Og hringinn í kring á hliðhúsinu voru gluggar, sem lágu inn í stúkurnar og inn í gegnum múrstöplana og smávíkkuðu inn á við, og sömuleiðis voru gluggar á forsalnum alt um kring inn á við, og á múrstöplunum voru pálmar.

Nú leiddi hann mig inn í ytri forgarðinn. Þar voru herbergi, og steinlagt gólf var í forgarðinum alt um kring; þrjátíu herbergi lágu við steingólfið.

Og steingólfið var fram með hliðarvegg hliðanna, Jafnlangt lengd hliðanna; það var lægra steingólfið.

Og hann mældi breidd forgarðsins frá innri framhlið neðra hliðsins að úthlið innri forgarðsins, og voru það hundrað álnir.

Og hliðið á ytri forgarðjuum, er vissi í norðurátt, lengd og breidd þess mældi hann einnig.

Og Í því voru þrjár stúkur hvorumegin, og múrstöplar þess og forsalur Voru jafnir að máli við fyrsta hliðið; lengd þess var fimtíu álnir og breiddin tuttugu og fimm álnir.

Og gluggar þess, forsalur og pálmar Voru jafnir að máli við það, sem var í hliðinu, er vissi Í austurátt. Var gengið upp að því um sjö þrep, og forsalur þess lá innan til.

Og hlið inn að innri forgarðinum var gegnt norðurhliðinu, eins og við austhrliliðið; og hann mældi hundrað álnir frá einu hliðinu til annars.

Því næst lét hann mig ganga í suðurátt; þar var hlið, sem vissi í suðurátt. Og hann mældi múrstöpla þess og forsal, og voru þeir jafnir hinum að máli.

Á því voru gluggar, svo og á forsal þess, hringinn í kring, eins og hinir gluggarnir voru; lengd þess var fimtíu álnir og breiddin tuttugu og fimm álnir.

Var gengið upp að því um sjö þrep, og forsalur þess lá innan til, og voru pálmar á honum, sinn hvorumegin, á múrstöplum hans.

Og hlið var á innri forgarðinum, er vissi í suður, og hann mældi hundrað álnir frá einu hliðinu til annars í suðurátt.

Þessu næst leiddi hann mig um suðurhliðið inn í innri forgarðinn og mældi suðurhliðið; var það jafnt hinum fyrri að máli;

sömuleiðis stúkur þess, múrstöpla og forsal, og voru þeir jafnir hinum fyrri að máli; á því voru gluggar, svo og á forsal þess, hringinn í kring; lengd þess var fimtíu álnir og breiddin tuttugu og fimm álnir.

Og forsalur var alt í kring, tuttugu og fimm álnir á lengd og fimm álnir á breidd.

Og forsalur þess lá út að ytri forgarðinum og pálmar voru á múrstöplum þess, og voru þar átta þrep upp að ganga.

Og hann leiddi mig að hliðinu, sem vissi í austurátt, og mældi hliðið; var það að máli jafnt hinum.

Og stúkur þess, múrstöplar og forsalur var jafnt að máli hinum fyrri, og á því voru gluggar, svo og á forsal þess, hringinn í kring; það var fimtíu álnir á lengd og tuttugu og fimm álnir á breidd.

Og forsalur þess lá út að ytri forgarðinum, og pálmar voru á múrstöplum þess beggja vegna; voru þar átta þrep upp að ganga.

Hann leiddi mig nú að norðurhliðinu og mældi

stúkur þess, múrstöpla og forsal; var það jafnt að máli hinum fyrri; á því voru gluggar hringinn í kring; það var fimtíu álnir á lengd og tuttugu og fimm álnir á breidd.

Og forsalur þess lá út að ytri forgarðinum, og pálmar voru á múrstöplum þess beggja vegna; voru þar átta þrep upp að ganga.

Þar var herbergi og dyr á við múrstöpla hliðanna; þar átti að þvo brennifórnina.

Og í forsal hliðsins stóðu tvö borð annars vegar og önnur tvö borð hins vegar, til þess að slátra á þeim brennifórninni, syndafórninni og sektarfórninni.

Og að utanverðu við hliðarvegginn, að norðanverðu þegar gengið er upp að hliðsdyrunum, voru tvö borð, og við hinn hliðarvegginn á forsal hliðsins voru önnur tvö borð;

fjögur borð öðrumegin og fjögur borð hinumegin við hliðarvegg hliðsins, alls átta borð, sem menn slátruðu á.

Voru fjögur borð til brennifórnar, af högnum steinum, hálfrar annarrar álnar löng, hálfrar annarrar álnar breið og álnar há; á þau skyldi leggja áhöldin, sem höfð voru, þá er brennifórnum og sláturfórnum var slátrað.

Og umhverfis borðin var þverhandarhá rönd, og skyldi fórnarkjötið lagt á borðin.

Og yfir borðunum voru þök, til þess að skýla þeim fyrir regni og hita. Og hann leiddi mig inn í innri forgarðinn, og sjá, þar voru tvö herbergi í innri forgarðinum, annað við hliðarvegg norðurhliðsins, og vissi framhlið þess í suðurátt; hitt við hliðarvegg suðurhliðsins, og vissi framhlið þess í norðurátt.

Og hann sagði við mig: Þetta herbergi, sem snýr framhlið sinni í suður, er ætlað prestunum, sem gegna þjónustu í musterinu.

En herbergið, sem snýr framhlið sinni í norður, er ætlað prestunum, sem gegna þjónustu við altarið. Þeir eru niðjar Zadóks; þeir einir af Levísonum mega nálgast Drottni, til þess að þjóna honum.

Og hann mældi forgarðinn; hann var hundrað álnir á lengd og hundrað álnir á breidd, réttur ferhyrningur, og altarið stóð fyrir framan sjálft musterið.

Því næst leiddi hann mig að forsal musterisins og mældi múrstöpla forsalsins, fimm álnir hvorumegin, og breidd hliðsins var fjórtán álnir og kampar hliðsins þrjár álnir hvorumegin.

Forsalurinn var tuttugu álnir á lengd og tólf álnir á breidd og var um tíu þrep upp að ganga að honum. En við múrstöplana voru súlur, ein hvorumegin.