Gamla testamentiðSpámennirnir
Þessu næst leiddi hann mig inn í aðalhúsið og mældi múrstöplana, og voru þeir sex álnir að þykt báðumegin.
Og dyrnar voru tíu álna breiðar og dyrakamparnir fimm álnir hvorumegin. Og hann mældi lengd þess, og var hún fjörutíu álnir og breiddin tuttugu álnir.
Síðan gekk hann inn fyrir og mældi dyrastöplana, og voru þeir tveggja álna þykkir og vídd dyranna sex álnir, og dyrakamparnir sjö álnir hvorumegin.
Og hann mældi lengd þess, og var hún tuttugu álnir, og breiddin tuttugu álnir frammi við aðalhúsið; og hann sagði við mig: Þetta er hið allrahelgasta.
Og hann mældi musterisvegginn, og var hann sex álna þykkur og breidd hliðarhússins fjórar álnir alt í kring um musterið.
Og hliðarherbergin lágu hvert áfast við annað, þrjátíu þrisvar sinnum; og stallar voru á veggnum, sem var á musterinu fyrir hliðarherbergin alt í kring, til þess að þau hvíldu á honum, en væru eigi lest á musterisvegginn.
Og þau urðu æ breiðari, því ofar sem þau lágu kring um musterið, því að hliðarherbergin voru alveg upp úr hringinn í kring um musterið. Fyrir því minkaði breidd musterishússins upp á við, og mátti ganga af neðsta gólfi hliðarhússins yfir neðra loftið upp á efra loftið.
Og eg sá að á musterishúsinu var pallur hringinn í kring, og grundvöllur hliðarherbergjanna var full sex álna mælistöng.
Þykt útveggsins á hliðarhúsinu var fimm álnir; auk þess var autt rúm milli hliðarhússins og musterisins.
Og milli herbergjanna var tuttugu álna breidd hringinn í kring um musterið.
Og dyr gengu frá hliðarhúsinu að auða rúminu, aðrar dyrnar til norðurs, hinar til suðurs. Og breidd auða rúmsins var fimm álnir hringinn í kring.
Og húsið, sem lá gegnt afgirta svæðinu, við vesturhliðina, var sjötíu álna breitt og veggur hússins fimm álna þykkur hringinn í kring og lengd þess níutíu álnir.
Og hann mældi musterishúsið, og var það hundrað álna langt, og afgirta svæðið og húsið með veggjum þess var hundrað álnir á lengd.
Og framhlið musterishússins og afgirta svæðið austanmegin var hundrað álnir á breidd.
Og hann mældi lengd hússins, sem var gegnt afgirta svæðinu og lá bak við það, og súlnagöng þess beggja vegna, og var það hundrað álnir. Og aðalhúsið og innhúsið og forsalur þess,
þröskuldarnir og skáhöllu gluggarnir og súlnagöngin umhverfis, þessi þrjú hús voru þiljuð frá jörðu og upp að gluggum; en ghiggarnir voru lokaðir.
Uppi yfir dyrum aðalhússins innan og utan og á öllum veggnum innan og utan hringinn í kring
voru festir kerúbar og pálmar, og var einn pálmi milli hverra tveggja kerúba. En kerúbinn hafði tvö andlit:
annars vegar sneri mannsandlit að pálmanum, en ljónsandlit hins vegar. Svo var á húsinu alt um kring.
Neðan frá gólfi Og upp fyrir dyr voru gjörðir kerúbar og pálmar á veggnum.
Umgjörðin yfir dyrunum og dyrustafir aðalhússins mynduðu ferhyrning. Og fyrir framan helgidóminn var eitthvað, sem líktist
altari af tré, þriggja álna hátt; það var tvær álnir á lengd og tvær álnir á breidd; og á því voru horn, og undirstöður þess og hliðveggir voru af tré. Og hann sagði við mig: Þetta er borðið, sem stendur frammi fyrir Drottni.
Og tvær voru hurðir á aðalhúsinu og helgidóminum.
Og í hverri hurð voru tveir hlerar, tveir hlerar, er léku á hjörum; í annarri hurðinni voru tveir og í hinni voru tveir hlerar.
Og á þeim voru kerúbar og pálmar, eins og á veggjunum, og þakskygni af tré var fram af forsalnum.
Og skáhallir gluggar og pálmar voru beggja vegna á hliðarveggjum forsalsins; þakskygni voru og á hliðarhúsi musterisins.