Gamla testamentiðSpámennirnir
Og þú, manns-son, spá þú gegn Góg og seg: Svo segir drott-, inn Drottinn: Eg skal finna þig, Góg, höfðingi yfir Rós, Mesek og Í úbal,
og snúa þér við og fara með þig og láta þig koma lengst úr horðri og leiða þig upp á Ísraels fjöll.
Og eg skal slá bogann úr Vinstri hendi þinni og láta örvarnar detta úr hægri hendi þinni.
Á mi’aels fjöllum skalt þú falla, þú og allar hersveitir þínar og þærþjóðlr sem eru í för með þér; alls konar ránfuglum og dýrum merkurinnar gef eg þig til fæðslu.
Úti á víðavangi skalt þú falla, því að eg hefi talað það, segir Drottinn Guð.
Og eg vil steypa eldi yfir Magóg og yfir þá, sem ugglausir búa í strandbygðunum, til þess að þeir viðurkenni, að eg er Drottinn.
Og eg vil gjöra mitt heilaga nafn kunnugt meðal lýðs míns Ísraels og ekki framar láta vanhelga mitt heilaga nafn, til þess að þjóðirnar viðurkenni, að eg er Drottinn, heilagur í Ísrael.
Sjá, það kemur fram og verður, segir Drottinn Guð; það er dagurinn, sem eg hefi talað um.
Þá munu íbúar Ísraels borga út ganga og eld kveikja og kynda með vopnum, törgum og skjöldum, með bogum og örvum, kylfum og lensum; í sjö ár skulu þeir elda þessu.
Þeir munu ekki sækja við í mörkina né höggva neitt í skógunum, heldur munu þeir kynda eld með vopnum; og þeir munu fletta þá, sem þá flettu, og ræna þá, sem þá ræntu, segir Drottinn Guð.
En á þeim degi mun eg ákveða Góg samastað, legstað í Ísrael, Abarímdal, fyrir austan hafið; menn munu girða fyrir Abarímdal. Þar munu þeir grafa Góg og allan liðmúg hans og nefna hann Gógsmúgadal.
Og Ísraelsmenn munu vera að jarða þá í sjö mánuði, til þess að hreinsa landið.
Og allur landslýðurinn skal starfa að þeim grefti, og það skal verða þeim til frægðar þann dag, er eg gjöri mig dýrlegan, segir Drottinn Guð.
Og þeir munu útvelja menn til þess stöðuga starfa að fara um landið og jarða þá, sem enn liggja eftir ofan jarðar, til þess að hreinsa landið; að liðnum sjö mánuðum skulu þeir enn kanna það.
Og þegar þeir fara um landið og einhver sér mannsbein, þá skal hann hlaða þar vörðu hjá, unz graftarmennirnir hafa grafið þau í Gógsmúgadal.
Og þannig skulu þeir grafa þar allan liðmúg sinn og hreinsa þannig landið.
En þú, manns-son, svo segir Drottinn Guð: Seg þú við alls konar fugla og við öll dýr merkurinnar: Safnist saman og komið; þyrpist saman úr öllum áttum til fórnarveizlu minnar, sem eg held yður, til mikillar fórnarveizlu á Ísraels fjöllum, og þér skuluð eta kjöt og drekka blóð.
Þér skuluð eta kjöt af köppum og drekka blóð úr þjóðhöfðingjum jarðarinnar: hrúta, lömb og hafra, uxa, alt saman alifé frá Basan.
Og þér skuluð eta feitt kjöt, unz þér eruð saddir orðnir, og þér skuluð drekka blóð, unz þér eruð druknir orðnir, í fórnarveizlu minni, sem eg held yður.
Og þér skuluð seðja yður við mitt borð á reiðskjótum og vagnhestum, á köppum og alls konar stríðsmönnum, segir Drottinn Guð.
Og eg vil auglýsa dýrð mína meðal þjóðanna, og allar þjóðir skulu sjá refsidóm minn, þann er eg hefi framkvæmt, og hönd mína, er eg hefi á þá lagt.
En Ísraelsmenn skulu viðurkenna, að eg, Drottinn, er Guð þeirra, upp frá þeim degi og framvegis.
Og þjóðirnar skulu viðurkenna, að Ísraelsmenn urðu að fara úr landi eingöngu vegna misgjörðar sinnar, fyrir þá sök að þeir höfðu rofið trúnað við mig, svo að eg byrgði auglit mitt fyrir þeim og seldi þá í hendur óvina þeirra, og féllu þeir þá allir fyrir sverðseggjum.
Eg breytti við þá eins og þeir höfðu til unnið með saurugleik sínum og fráhvarfi, og byrgði auglit mitt fyrir þeim.
Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Nú mun eg snúa við högum Jakobs og miskunna mig yfir allan Ísraelslýð og vandlæta um mitt heilaga nafn.
Og þeir skulu gleyma vanvirðu sinni og allri þeirri ófrygð, er þeir hafa í frammi haft við mig, þegar þeir búa aftur óhultir í landi sínu og enginn skelfir þá:
Þegar eg leiði þá heim aftur frá þjóðunum og safna þeim saman úr löndum óvina þeirra, þá skal eg auglýsa heilagleik minn á þeim í augsýn margra þjóða.
Og þá skulu þeir viðurkenna, að eg, Drottinn, er Guð þeirra, með því að eg herleiddi þá til þjóðanna, en safna þeim nú saman inn í þeirra eigið land og læt engan þeirra framar verða þar eftir.
Og eg vil ekki framar byrgja auglit mitt fyrir þeim, með því að eg hefi úthelt anda mínum yfir Ísraelslýð, segir Drottinn Guð.