Esekíelsbók 38Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Esekíelsbók 38

Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:

Manns-son, snú þér gegn Góg í Magóg-landi, höfðingja yfir Rós, Mesek og Túbal, spá gegn honum

og seg: Svo segir Drottinn Guð: Eg skal finna þig; Góg, höfðingi yfir Rós, Mesek og Túbal,

og eg skal setja króka í kjálka þína og leiða þig út, ásamt öllu herliði þínu, hestum og riddurum, öllum með alvæpni, mikinn manngrúa, með skjöld og törga. alla með sverð í höndum.

Persar, Blálendingar og Púlmenn eru í för með þeim, allir með törgu og hjálm;

Gómer og allir herflokkar hans, Tógarma-lýður, hin yzta norðurþjóð, og allir herflokkar hans — margar þjóðir eru í för með þér.

Bú þig út og ver viðbúinn, þú og allar hersveitirnar, sem safnast hafa til þín, og ver þú yfirmaður þeirra.

Eftir langan tíma munt þú útboðsskipun hljóta; á síðustu árunum munt þú koma inn í það land, sem aftur er unnið undan sverðinu, il þjóðar, sem safnað hefir verið saman frá mörgum þjóðum á Ísraels fjöll, sem stöðuglega hafa í eyði legið; já, frá þjóðunum var hún flutt, Og nú búa allir öruggir.

Þá munt þú brjótast fram sem þrumuveður, koma sem óveðursský, til þess að hylja landið, þú og allir herflokkar þínir og margar þjóðir með þér.

Svo segir Drottinn Guð: Á þeim degi munu illar hugsanir koma upp í hjarta þínu og þú munt hafa illar fyrirætlanir með höndum

og segja: »Eg vil fara í móti bændabýlalandi, ráða á friðsama menn, sem búa óhultir; þeir búa allir múrveggjalausir og hafa hvorki slagbranda né hlið«,

til þess að fara með rán og rifs, til þess að leggja hönd þína á borgarrústir, sem aftur eru bygðar orðnar, og á þjóð, sem saman söfnuð er frá heiðingjunum, sem aflar sér búfjár og fjármuna, á menn, sem búa á nafla jarðarinnar.

Seba og Dedan og verzlunarmenn frá Tarsis og kaupmenn hennar segja við þig: Kemur þú til þess að ræna? Hefir þú dregið Saman liðsveitir þínar tl þess að rupla, til þess að hafa á burt silfur og gull, flytja burt búfé og fjármuni, til þess að afla mikils herfangs?

Fyrir því spá þú, manns-son, og seg við Góg: Svo segir Drottinn Guð: Munt þú ekki á þeim degi, er lýður minn Ísrael býr óhultur, leggja af stað

og koma frá stöðvum þínum, lengst úr norðri, þú og margar þjóðir með þér, allir ríðandi hestum, mikill liðssafnaður, fjölmennur her,

og fara í móti lýð mínum Ísrael eins og óveðursský, til þess að hylja landið? Á hinum síðustu dögum mun eg leiða þig Móti landi mínu, til þess að þjóðirnar læri að þekkja mig, þegar eg auglýsi heilagleik minn á þér, Góg, fyrir augum þeirra.

Svo segir Drottinn Guð: Ert þú sá, er eg talaði um í fyrri daga fyrir munn þjóna minna, spámanna Ísraels, er spáðu í þá daga árum saman, að eg mundi leiða þig móti þeim?

En þann dag, daginn sem Góg fer móti Ísraelslandi, segir Drottinn Guð, mun reiðin Tdossa í nösum mér.

Í vandlæting minni, í minni brennandi heift, tala eg það: Vissulega, á þeim degi skal mikill jarðskjálfti verða í Ísraelslandi.

Þá skulu fiskar sjávarins skjálfa fyrir mér og fuglar himinsins, dýr merkurinnar og öll skriðkvikindi, sem skríða á jörðunni, og allir menn, sem eru á jörðunni; og fjöllin skulu kollvarpast Og hamrarnir hrynja og hver múrveggur til jarðar falla.

Og á öllum fjöllum mínum vil eg kalla á sverðin í móti honum, segir Drottinn Guð; eins sverð skal vera í móti öðrum.

Og eg vil ganga í dóm við hann með drepsótt og blóðsúthelling, með dynjandi steypiregni og haglsteinum; eldi og brennisteini vil eg rigna láta yfir hann og yfir hersveitir hans og yfir margar þjóðir, sem með honum eru.

Og eg vil auglýsa mig dýrlegan og heilagan og gjöra mig kunnan í augsýn margra þjóða, Út þess að þær viðurkenni, að eg er Drottinn.