Gamla testamentiðSpámennirnir
Þú manns-son, tak þér tigulstein, legg hann fyrir framan þig og drag þar upp borg, sem sé Jerúsalem.
Og reis þú hervirki gegn henni og hlað víggarð gegn henni; hleyp upp jarðhrygg gegn henni, skipa hersetuliði um hana og set víghrúta umhverfis hana.
Og tak þér járnpönnu og set hana sem járnvegg milli þín og borgarinnar; snú því næst andliti þínu gegn henni, svo að hún komist undir hersetu, og þú sitjir um hana. Þetta skal vera Ísraelsmönnum tákn.
En legg þú þig á vinstri hliðina og tak á þig misgjörð Ísraels húss; alla þá daga, er þú liggur á henni, skalt þú bera misgjörð þeirra.
Og tel ey þér misgjörðarár þeirra til jafnmargra daga — þrjú hundruð og níutíu dagar —, og þannig skalt þú bera misgjörð Ísraels húss.
Og þegar þú hefir fullnað þessa daga, þá skalt þú leggjast á hægri hliðina hið annað sinn og bera misgjörð Júda húss, fjörutíu daga; tel eg þér dag fyrir ár hvert.
Og þú skalt snúa andliti þínu og nöktum armlegg þínum gegn umsátri Jerúsalem og þú skalt spá í gegn henni.
Og sjá, eg legg hönd á þig, svo að þú skalt ekki ná að snúa þér af einni hlið á aðra, unz þú hefir af lokið umsátursdögum þínum.
En tak þér hveiti, bygg, baunir, flatbaunir, hirsi og speldi; lát Það alt í eitt ker og gjör þér brauð af; skalt þú hafa það til matar allan þann tíma, er þú liggur á hliðinni.
Og vega skal þér mat þinn, þann er þú neytir, tuttugu sikla á dag; skalt þú neyta hans á ákveðnum tíma einu sinni á dag.
Mæla skal þér og vatn að drekka, Sjöttung hinar í hvert sinn; skalt þú drekka það á ákveðnum tíma einu sinni á dag.
skalt þú eta það sem byggkökur, og þær skaltu baka við mannaþrekk fyrir augum þeirra.
Og Drottinn sagði: Svo munu Ísraelsmenn eta brauð sitt óhreint hjá þjóðum þeim, er eg rek þá til.
Þá sagði eg: Æ, Drottinn Guð! Sjá, eg hefi aldrei saurgað mig, og alt í frá barnæsku minni og fram á þennan dag hefi eg aldrei etið það, er sjálfdautt væri eða dýrrifið, og óhreint kjöt hefi eg aldrei lagt mér til munns.
Þá sagði hann við mig: Sjá þú, eg leyfi þér að hafa nautatað í stað mannaþrekks; við það skalt þú gjöra brauð þitt.
Og hann sagði við mig: Þú manns-son, sjá, eg brýt sundur Staf brauðsins í Jerúsalem, og þeir skulu eta brauðið eftir skamti og Með angist og vatnið skulu þeir drekka eftir mæli og með skelfingu,
þess að þá skorti brauð og vatn og þeir skelfist hver með öðrum Og veslist upp vegna misgjörðar sinnar.