Gamla testamentiðSpámennirnir
En þú, manns-son, tak þér hvast sverð — skalt þú hafa það fyrir rakhníf — og lát það ganga um höfuð þitt og vanga; tak síðan vog og skift hárinu í sundur.
Einn þriðjunginn skalt þú í eldi brenna í miðri borginni, þá er umsátursdagarnir eru liðnir; annan þriðjunginn skalt þú taka og slá með sverði hringinn í kring um hann, og síðasta þriðjungnum skalt þú dreifa út í vindinn, og eg mun bregða sverði á eftir þeim.
Því næst skalt þú taka fáein hár Og binda þau í skikkjulaf þitt.
Og af þeim skalt þú enn taka nokkur Og kasta þeim á eld og brenna þau á eldi. Þaðan mun eldur koma Yfir alt Ísraels hús. Og seg við alt Ísraels hús:
svo segir Drottinn. Drottinn: Þetta er Jerúsalem, sem eg hefi sett mitt á meðal þjóðanna og lönd umhverfis hana.
En hún hefir sett sig upp á móti lögum mínum með meira guðleysi en heiðnu þjóðirnar og móti boðorðum mínum meir en löndin, sem umhverfis hana eru, því að þeir hafa hafnað lögum mínum og eigi breytt eftir boðorðum mínum.
Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Af því að þér hafið verið þrjózkari en heiðnu þjóðirnar, sem umhverfis yður búa, eigi breytt eftir boðorðum mínum, né haldið lög mín, og jafnvel ekki farið eftir lögum heiðnu þjóðanna, sem umhverfis yður eru,
fyrir því segir Drottinn Guð svo: Sjá nú vil eg rísa gegn þér og framkvæma dóma í þér miðri í augsýn þjóðanna.
Og eg vil gjöra þér það, sem eg aldrei hefi áður gjört og mun ekki hér eftir gjöra, vegna svívirðinga þinna.
Þess vegna skulu í þér feður eta börn sín og börnin feður sína, og eg vil framkvæma dóma á þér og dreifa leifum þínum í allar áttir.
Fyrir því, svo sannarlega sem eg lifi, segir Drottinn Guð: Af því að þú hefir saurgað helgidóm minn með öllum viðurstygðum þínum og öllum svívirðingum þínum, þá vil eg einnig útskúfa þér, ekki líta þig vægðarauga og ekki sýna neina meðaumkun.
Einn þriðjungurinn af þér skal deyja af drepsótt og verða hungurmorða í þér miðri; annar þriðjungurinn skal fyrir sverði falla umhverfis þig, og síðasta þriðjungnum skal eg tvístra í allar áttir, og eg mun vera á hælum þeim með brugðnu sverði.
Og eg skal úthella allri reiði minni og láta heift mína hvíla yfir þeim, og eg skal svala mér; þeir skulu þá sanna, að eg, Drottinn, hefi talað þetta í vandlæting minni, þá er eg næ að svala heift minni á þeim.
Og eg skal gjöra þig að auðn og að háðung meðal þjóðanna, sem umhverfis þig búa, já, í augum allra, sem fram hjá ganga.
Og þú skalt verða að háðung og spotti, til viðvörunar og skelfingar þjóðunum, sem umhverfis þig búa, þá er eg í reiði og heift læt dóma yfir þig ganga og með áköfum refsingum. Eg, Drottinn, hefi talað það.
Þegar eg hleypi á þá hungursins skæðu og eyðileggjandi örvum, þær er eg mun senda yður til að tortíma yður, og eg magna hungrið meðal yðar, þá mun eg sundurbrjóta staf brauðsins fyrir yður
og senda í móti yður hungur og óarga dýr, til þess að gjöra yður barnlausa, og drepsótt og blóðsúthelling skal geisa hjá þér, og eg skal hafa sverðið á lofti yfir þér. Eg, Drottinn, hefi talað það.