Gamla testamentiðSpámennirnir
En þú, manns-son, spá þú um Ísraels fjöll og seg: Þér Ísraels fjöll, heyrið orð Drottins!
Svo segir Drottinn Guð: af því að óvinirnir af ... hafa hrópað yfir yður: Hæ! Eilíf auðn! Það er orðið vor eign!
fyrirþví spá þú og seg: Svo segir Drottinn Guð: Fyrir þá sök, vegna þess að menn eyddu yður og ágirntust yður alla vega, að þér yrðuð eign hinna þjóðanna, og af því að þér komust í orðræðu manna og urðuð fyrir ámæli fólks,—
fyrir því heyrið orð Drottins Guðs, þér Ísraels fjöll! Svo segir Drottinn Guð við fjöllin og hæðirnar, við hvammana og dalina, við eyðirústirnar og við yfirgefnu borgirnar, sem orðnar eru að herfangi og að spotti fyrir hinar þjóðirnar, sem umhverfis yður eru, —
fyrir því segir Drottinn Guð svo: Sannlega tala eg í minni brennandi vandlæting til hinna þjóðanna og alls Edóms, sem hafa ætlað sér land mitt til eignar, með alls hugar fögnuði og innilegri fyrirlitning, til þess að þeir gætu rekið íbúana burt og rænt það.
Spá þú þess vegna um Ísraelsland og seg við fjöllin og hæðirnar, við hvammana og dalina: Svo segir Drottinn Guð: Sjá, eg hefi talað í vandlæting minni og heiftarreiði, af því að þér hafið orðið að þola háðungar þjóðanna.
Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Eg hef upp hönd mína og sver: Þjóðirnar, sem umhverfis yður eru, skulu vissulega verða að þola háðung sína.
SEn þér, Ísraels fjöll, skjótið greinum yðar og berið ávöxt yðar handa lýð mínum Ísrael; því að bráðum munu þeir koma heim.
Því að sjá, eg mun koma til yðar og snúa mér að yður, og þér munuð verða yrkt og sáin.
Og eg mun fjölga fólkinu á yður — gjörvöllum Ísraelslýð —, og borgirnar verða bygðar og rústirnar reistar af nýju.
Og. eg vil fjölga mönnum og skepnum á yður, og það skal margfaldast og verða frjósamt. Og eg mun láta yður verða bygð, eins og þér voruð í fyrri daga, og auðsýna yður enn meira gott en áður fyr, til þess að þér viðurkennið, að eg er Drottinn.
Og eg mun láta menn á yður ganga, lýð minn Ísrael; þeir skulu taka þig til eignar, svo að þú verðir arfleifð þeirra, og þú munt ekki framar gjöra þá barnlausa.
Svo segir Drottinn Guð: Af því að menn sögðu við yður: þú varst mannæta og varst vön að gjöra þjóð þína barnlausa
fyrir því skalt þú ekki framar mönnum farga og ekki framar gjöra þjóð þína barnlausa, segir Drottinn Guð.
Og eg skal ekki framar láta þig heyra háðungar heiðingjanna og þú skalt ekki framar þurfa að þola smánanir þjóðanna og þú skalt ekki framar gjöra þjóð þína barnlausa, segir Drottinn Guð.
Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:
Manns-son, þegar Ísraelsmenn bjuggu í landi sínu, þá saurguðu þeir það með breytni sinni og verkum sínum. Breytni þeirra var fyrir mér eins og óhreinleiki konu, sem hefir tíðir.
Og eg úthelti reiði minni yfir þá, sökum þess blóðs, er þeir höfðu úthelt í landinu, og af því að þeir höfðu saurgað það með skurðgoðum sínum.
Og eg tvístraði þeim meðal þjóðanna, og þeir dreifðust út um löndin; eftir breytni þeirra og verkum þeirra dæmdi eg þá.
Og þeir komu til hinna heiðnu þjóða; hvar sem þeir komu, þar vanhelguðu þeir mitt heilaga nafn, með því að mönnum fórust svo orð um þá: Þetta er lýður Drottins, og þó urðu þeir að fara burt úr landi sínu!
Og mig tók það sárt, að Ísraelsmenn skyldu svo vanhelga heilagt nafn mitt meðal Þjóðanna, hvar sem þeir komu.
Seg því við Ísraelsmenn: Svo segir Drottinn Guð: Eigi er það yðar vegna, Ísraelsmenn, að eg læt til mín taka, heldur vegna míns heilaga nafns, sem þér hafið vanhelgað meðal þjóðanna, hvar sem þér komuð.
Og eg mun helga mitt hið mikla nafn, se vanhelgað var meðal þjóðanna, það er þér vanhelguðuð meðal þeirrð, til þess að þjóðirnar viðurkenni, að eg er Drottinn, segir Drottinn Guð þá er eg auglýsi heilagleik minn á yður í augsýn þeirra.
Og eg mun sækja yður til þjóðanna og saman safna yður úr öllum löndum og flytja yður inn í yðar land.
Og eg mun stökkva hreinu vatni á yður, svo að þér verðið hreinir; eg mun hreinsa yður af öllum óhreinindum yðar og skurðgoðum.
Og eg mun gefa yður nýtt hjarta og leggja yður nýjan anda í brjóst, og eg mun taka steinhjartað úr líkama yðar og gefa yður hjarta af holdi.
Og eg mun leggja yður anda minn í brjóst og koma því til vegar, að þér hlýðið boðorðum mínum og varðveitið setninga mína og breytið eftir þeim.
Og þér skuluð búa í landinu, sem eg gaf feðrum yðar, og þér skuluð vera mín þjóð og eg skal vera yðar Guð.
Og eg mun frelsa yður frá öllum óhreinindum yðar og eg mun kalla á kornið og margfalda það, og ekkert hallæri mun eg láta yfir yður koma.
Og eg mun margfalda ávöxtu trjánna og gróða vallarins, til þess að þér þurfið ekki að þola brigzl meðal heiðnu þjóðanna fyrir hallæri.
Þá munuð þér minnast yðar vondu breytni og verka yðar, sem ekki voru góð, og yður mun bjóða við sjálfum yður sökum misgjörða yðar og viðurstygða.
Eigi er það yðar vegna, að eg læt til mín taka, segir Drottinn Guð; það skuluð þér vita! Blygðist og skammist yðar fyrir breytni yðar, þér Ísraelsmenn!
Svo segir Drottinn Guð: Á þeim degi, er eg hreinsa yður af öllum misgjörðum yðar, þá mun eg aftur láta borgirnar verða bygðar, og þá skulu fallin húsin rísa úr rústum.
Og hið eydda land mun yrkt verða, í stað þess að það áður var eins og auðn í augum allra umfarenda.
Þá mun sagt verða: Þetta land, sem komið var í auðn, er orðið eins og Edens garður, og borgirnar, sem orðnar voru að rústum, sem eyddar voru og umturnaðar, eru nú víggirtar og bygðar.
Þá munu þær þjóðir, sem eftir eru orðnar kring um yður, viðurkenna, að eg, Drottinn, hefi reist af nýju það, sem umturnað var, og gróðursett það, sem var í eyði lagt. Eg, Drottinn, hefi talað það og mun framkvæma það.
Svo segir Drottinn Guð: Þá bón skal eg enn veita Ísraelsmönnum: eg skal gjöra þá svo mannmarga sem hjörð er að sauðum.
Eins og helgidómurinn fyllist af sauðum, eins og Jerúsalem fyllist af sauðum á hátíðunum, svo munu eyðiborgirnar fyllast af mannahjörðum, til þess að þeir viðurkenni, að eg er Drottinn.