Gamla testamentiðSpámennirnir
Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:
Manns-son, snú þér gegn Seír-fjalllendi og spá gegn því
og seg við það: Svo segir Drottinn Guð: Sjá, eg skal finna þig, Seír-fjalllendi, og eg skal rétta hönd mína út í móti þér og gjöra þig að auðn og öræfum.
Borgir þínar gjöri eg að rústum, og þú skalt sjálft verða að auðn, svo að þú viðurkennir, að eg er Drottinn.
Af því að þú bjóst yfir eilífum fjandskap og seldir Ísraelsmenn undir sverðseggjar á ógæfutíma þeirra, þá er tími endasektarinnar rann upp,
fyrir því, svo sannarlega sem eg lifi, segir Drottinn Guð, blóðskuld hefir þú bakað þér, og blóð skal ofsækja þig.
Og eg gjöri Seir-fjalllendi að auðn og öræfum og læt þar alla umferð af leggjast.
Og eg fylli fjöll þess vegnum mönnum; á hæðum þínum, í dölum þínum og í öllum hvömmum þínum munu Vopnbitnir menn falla.
Og eg vil gjöra þig að æfinlegri auðn, og borgir þínar skulu vera óbygðar, til þess að þér viðurkennið, að eg er Drottinn.
Af því að þú sagðir: Báðar þjóðirnar og bæði löndin skulu vera mín, og vér skulum taka þau til eignar, — en þótt Drottinn væri þar —
fyrir því, svo sannarlega sem eg lifi, segir Drottinn Guð, mun eg fara með þig samkvæmt reiði þeirri og vandlæting, er þú hefir á þeim sýnt vegna haturs þíns, og eg mun láta þig kenna á mér, þá er eg dæmi þig,
til þess að þú viðurkennir, að eg er Drottinn. Eg hefi heyrt öll lastmæli þín, þau er þú hefir talað gegn Ísraels fjöllum, er þú sagðir: Þau eru í eyði lögð; oss eru þau gefin til afneyzlu.
Og þér töluðuð stóryrði í gegn mér og höfðuð orðmælgi við mig — eg hefi heyrt það.
Svo segir Drottinn Guð: Eins og þú fagnaðir yfir landi mínu, að það lá í eyði, svo mun eg láta hið sama fram við þig koma;
eins og þú fagnaðir yfir arfleifð Ísraels húss, að hún var í eyði lögð, svo mun eg við þig gjöra. Að auðn skalt þú verða, Seír-fjalllendi, og alt Edómland, eins og það leggur sig til, til þess að þeir viðurkenni, að eg er Drottinn.