Gamla testamentiðSpámennirnir
Á tíunda árinu, tólfta dag hins tíunda mánaðar, kom orð Drottins til mín, svo hljóðandi:
Manns-son, snú þér að Faraó, Egiptalands konungi, og spá gegn honum og gegn öllu Egiptalandi.
Tala og seg: Svo segir Drottinn Guð: Sjá, eg skal finna þig, Faraó, Egiptalands konungur, þú mikli krókódíll, sem liggur milli árkvíslanna og segir: Fljótið er mitt; eg hefi sjálfur búið það til!
Og eg skal setja króka í kjálka þína og láta fiskana í fljótum þínum loða á hreistri þínu og draga þig upp úr fljótum þínum, ásamt öllum fiskunum í fljótum þínum, þeim er loða á hreistri þínu.
Og eg skal varpa þér út á eyðimörk, þér og öllum fiskunum í fljótum þínum; þú skalt falla úti á bersvæði, þú munt ekki verða tekinn upp né jarðaður; eg gef þig dýrum jarðarinnar og fuglum himinsins til fæðslu.
Þá skulu allir íbúar Egiptalands viðurkenna, að eg er Drottinn. Af því að þú ert Ísraelsmönnum ekki annað en stafur úr reyri,
þegar þeir grípa um þig með hendinni, þá brotnar þú og fleiðrar alla höndina á þeim, og þegar þeir styðjast við þig, þá brestur þú í sundur og linar þá í öllum mjöðmunum —,
fyrir því segir Drottinn Guð svo: Sjá, eg skal láta sverðið koma yfir þig og gjöreyða hjá þér mönnum og fénaði.
Og Egiptaland skal verða að auðn og öræfum, til þess að þeir viðurkenni, að eg er Drottinn. Af því að þú hefir sagt: Fljótið er mitt og eg hefi búið það til!
sjá, fyrir því skal eg finna þig og árkvíslar þínar og gjöra Egiptaland að öræfum, að eyði-öræfum frá Migdól til Sýene og alt að landamerkjum Blálands.
Enginn maður skal stíga þar fæti sínum og engin skepna skal stíga þar fæti sínum, og það skal vera óbygt í fjörutíu ár.
Og eg skal gjöra Egiptaland að auðn innan um eyði-lönd, og borgir þess skulu liggja í eyði innan um borgir, sem liggja í rústum, í fjörutíu ár, og eg mun tvístra Egiptum meðal þjóðanna og dreifa þeim út um löndin.
Því að svo segir Drottinn Guð: Þegar fjörutíu ár eru liðin, mun eg saman safna Egiptum frá þeim þjóðum, þangað sem þeim var tvístrað,
og eg mun snúa við högum Egiptalands og flytja þá aftur inn í landið Patrós, landið þar sem þeir eru upprunnir; og þar munu þeir vera lítilfjörlegt ríki.
Það mun verða lítilfjörlegra en hin ríkin og ekki framar hefja sig upp yfir þjóðirnar, og eg gjöri þá fámenna, til þess að þeir geti ekki drotnað yfir þjóðunum.
Þá mun það ekki framar vera Ísraelsmönnum traust, er minni á misgjörð þeirra, er þeir leita bandalags við þá; og þeir munu viðurkenna, að eg er Drottinn Guð.
En á tuttugasta og sjöunda árinu, hinn fyrsta dag hins fyrsta mánaðar, kom orð Drottins til mín, svo hljóðandi:
Manns-son, Nebúkadrezar Babel-konungur hefir látið herlið sitt vinna mikið verk á Týrus; höfuð allra manna hans eru orðin hárlaus og axlir þeirra gnúnar; og þó hefir hvorki hann né herlið hans fengið nein laun frá Týrus fyrir verkið, er hann vann á henni.
Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Sjá, eg gef Nebúkadrezar Babel-konungi Egiptaland; hann skal flytja burt auðæfi þess og fara þar með rán og rifs; það skulu vera launin handa herliði hans.
Sem endurgjald handa því, er það hefir unnið fyrir, gef eg því Egiptaland, segir Drottinn Guð.
Á þeim degi vil eg láta Ísraels húsi horn vaxa og þá mun eg gefa þér að upp ljúka munni þínum meðal þeirra, til þess að þeir viðurkenni, að eg er Drottinn.