Esekíelsbók 28Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Esekíelsbók 28

Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:

Manns-son, seg tignarmönnunum í Týrus: Svo segir Drottinn Guð: Af því að hjarta þitt var hrokafull, svo að þú sagðir: Eg er guð, eg sit í guðasæli mitt úti í hafi! þar sem þú ert þó maður og enginn guð, en leizt á þig eins og guð, —

Sjá, þú varst vitrari en Daniel, ekkert hulið var þér of myrkt.

Með speki þinni og hyggindum aflaðir þú þér auðæfa og safnaðir gulli og silfri í féhirzlur þínar.

Með vizkugnótt þinni, með verzlun þinni jókst þú auðæfi þín, og hjarta þitt varð hrokafult af auðæfunum —

fyrir því segir Drottinn Guð svo: Af því að þú leizt á sjálfa þig eins og guð,

sjá, fyrir því læt eg útlenda menn yfir þig koma, hinar grimmustu þjóðir; þeir skulu bregða sverðum sínum gegn snildarfegurð þinni og vanhelga prýði þína.

Þeir munu steypa þér niður í gröfina ög þú munt deyja dauða hins vopnbitna úti í hafi.

Hvort munt þú þá segja: Eg er guð! frammi fyrir banamanni þínum, þar sem þú ert þó maður og enginn guð á valdi veganda þíns?

Þú skalt deyja dauða óumskorinna manna fyrir hendi útlendinga, því að eg hefi talað það, segir Drottinn Guð.

Og orð Drottins kom -tif mín, svo hljóðandi:

Manns-son, hef upp harmljóð yfir konunginum í Týrus og seg við hann: Svo segir Drottinn Guð: Þú varst ímynd innsiglishrings, fullur af speki og fullkominn að fegurð!

Þú varst í Eden, aldingarði Guðs; þú varst þakinn alls konar dýrum steinum: karneól, tópas, jaspis, krýsolít, sjóam, onýx, safír, karbunkul, smaragð, og umgjörðir þínar og útflúr var gjört af gulli; daginn, sem þú varst skapaður, var það búið til.

Eg hafði Skipað þig verndar-kerúb; þú varst á hinu heilaga goðafjalli, þú gekst innan um glóandi steina.

Þú varst óaðfinnanlegur í breytni þinni frá þeim degi, er þú varst skapaður, þar til er yfirsjón fanst hjá þér.

Fyrir þína miklu verzlun fyltir þú þig hið innra ofríki og syndgaðir; þá óhelgaði eg þig og rak þig burt af goðafjallinu og tortímdi þér, þú Verndar-kerúb, burt frá hinum glóandi steinum.

Hjarta þitt varð hrokafull af fegurð þinni; þú gjörðir speki þína að engu vegna viðhafnarljóma þíns. Eg varpaði þér til jarðar, ofurseldi þig konungum, svo að þeir mættu horfa nægju sína á þig.

Með hinum mörgu misgjörðum þínum, með hinni óráðvöndu kaupverzlun þinni vanhelgaðir þú helgidóma þína. Þá lét eg eld brjótast út frá þér, hann eyddi þér, Og eg gjörði þig að ösku á jörðunni í augsýn allra, er sáu þig.

Allir þeir meðal þjóðanna, er þektu þig, voru agndofa yfir þér; þú fórst voveiflega og ert eilíflega horfin.

Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:

Manns-son, snú þér að Zídon og spá gegn henni

og seg: Svo segir Drottinn Guð: Sjá, eg skal finna þig, Zídon, og gjöra mig vegsamlegan í þér miðri, til þess að þeir viðurkenni, að eg er Drottinn, er eg framkvæmi refsidóma í henni og auglýsi heilagleik minn á henni.

Og eg mun senda drepsótt í hana og blóðsúthelling á stræti hennar, og menn skulu í henni falla helsærðir fyrir sverði, er alla vega skal yfir hana ganga, til þess að þeir viðurkenni, að eg er Drottinn.

En fyrir Ísraelsmenn mun eigi framar vera til neinn kveljandi þyrnir né stingandi þistill af öllum þeim, sem umhverfis þá eru, þeim er óvirtu þá, til þess að þeir viðurkenni, að eg er Drottinn Guð.

Svo segir Drottinn Guð: Þegar eg safna Ísraelsmönnum saman frá þjóðunum, þangað sem þeim var tvístrað, þá skal eg auglýsa heilagleik minn á þeim í augsýn þjóðanna, og þeir skulu búa í landi sínu, því er eg gaf þjóni mínum Jakob.

Og þeir munu búa þar óhultir og reisa hús og planta víngarða og búa óhultir, með því að eg læt refsidóma ganga yfir alla nágranna þeirra, er þá hafa óvirt, til þess að þeir viðurkenni, að eg er Drottinn, Guð þeirra.