Esekíelsbók 30Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Esekíelsbók 30

Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:

Manns-son, spá og seg: Svo segir Drottinn Guð: Æpið vei yfir deginum!

Því að dagur er nálægur, já, dagur Drottins er nálægur; dagur skýþyknis, endadægur þjóðanna mun það verða.

Og sverð mun koma til Egiptalands, og Bláland mun skelfast, þá er menn lniíga helsærðir á Egiptalandi, og auðæfi þess verða burt flutt og undirstöðum þess rótað upp.

Blálendingar, Pútítar, Lúdítar og allur þjóðblendingurinn og Líbýumenn og Kretar munu fyrir sverði falla ásamt þeim.

Svo segir Drottinn: Þá munu stoðir Egiptalands falla og hið dýrlega skraut þess hníga; frá Migdól og alt til Sýene skulu menn fyrir sverði falla í því, segir Drottinn Guð.

Og það mun verða að auðn innan um eyðilönd, og borgir þess munu liggja innan um borgir, sem eru í rústum.

Og þeir - munu viðurkenna, að eg er Drottinn, þegar eg legg eld í Egiptaland og allir liðveizlumenn þess verða muldir sundur.

Á þeim degi munu sendiboðar fara frá mér á skipum, til þess að færa hinum ugglausu Blálendingum hin hræðilegu tíðindin, og þeir munu skelfast vegna ógæfudags Egiptalands; því að sjá, hann kemur.

Svo segir Drottinn Guð: Þannig mun eg láta Nebúkadrezar Babel-konung enda gjöra á mikillæti Egiptalands.

Hann mun verða sóttur og lið hans með honum, hinar grimmustu þjóðir, til þess að herja landið; og þeir munu bregða Sverðum sínum gegn Egiptalandi og fylla landið vegnum mönnum.

Og eg mun þurka upp árkvíslarnar og selja Egiptaland í hendur illmenna og láta útlenda menn eyða landið og öllu, sem í því er. Eg, Drottinn, hefi talað það.

Svo segir Drottinn Guð: Eg gjöri skurðgoðin að engu og upprSMi falsguðina úr Nóf og höfðingjana af Egiptalandi, svo að engir skulu þar framar til vera; og eg mun skelfa Egiptaland.

Og eg eyði Patrós og legg eld í Zóan og framkvæmi refsidóma á Nó.

Og eg Úthelli heift minni yfir Sín, varnarvirki Egiptalands, og tortími hinum Ysmikla múg í Nó.

Eg legg eld í Egiptaland, Sín mun nötra og Skarð mun brotið verða inn í Nó og múrar hennar niðurrifnir.

ÆskuMennirnir í Ón og Píbeset munu fyrir sverði falla og íbúar annarra borga fara í útlegð.

Í Tahpanhes mun dagurinn myrkvast, er eg Sundurbrýt þar veldissprota Egiptalands og hið dýrlega skraut þess Verður að engu gjört. Skýþykni mun hylja hana, og dætur hennar Munu fara í útlegð.

Og þannig mun eg láta refsidóma koma yfir Egiptaland, til þess að þeir viðurkenni, að eg er Drottinn.

En á ellefta árinu, sjöunda dag hins fyrsta mánaðar, kom orð Drottins til mín, svo hljóðandi:

Manns-son, eg hefi brotið armlegg Faraós, Egiptalands konungs, og sjá, það skal eigi verða um hann bundið, til þess að gjöra hann heilan, með því að setja á hann sáraumbúðir, til þess að hann styrktist aftur og fengi gripið sverðið.

Þyrir því segir Drottinn Guð svo: Sjá, eg skal finna Faraó, Egiptaauds konung, eg skal brjóta armleggi hans, hinn heila og hinn brotna, slá sverðið úr hendi hans.

Og eg skal tvístra Egiptum meðal þjóðanna og dreifa þeim út um löndin.

Og eg skal styrkja armleggi Babel-konungs og fá honum sverð mitt í hönd; en armleggi Faraós skal eg brjóta, svo að hann skal liggja stynjandi fyrir fótum hans, eins og helstunginn maður.

Eg skal styrkja armleggi Babel-konungs, en armleggir Faraós skulu niður síga, og menn skulu viðurkenna, að eg er Drottinn, þegar eg fæ Babel-konungi sverð mitt í hönd, og hann reiðir það að Egiptalandi.

Og eg skal tvístra Egiptum meðal þjóðanna og dreifa þeim út um löndin, til þess að þeir viðurkenni, að eg er Drottinn.