Gamla testamentiðSpámennirnir
Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:
Manns-son, þú býr á meðal þverúðugs lýðs, meðal manna, sem hafa augu til að sjá með, en sjá þó ekki, eyru til að heyra með, en heyra þó ekki; því að þverúðugur lýður eru þeir.
En þú, manns-son, haf til ferðatæki þín og legg af stað um hádag í augsýn þeirra, og þú skalt fara burt þaðan, sem þú nú býr, á annan stað, að þeim ásjáandi, — ef vera mætti að augu þeirra lykjust upp, því að þeir eru þverúðugur lýður.
Þú skalt færa út föng þín svo sem önnur ferðatæki um hádag í augsýn þeirra; en sjálfur skalt þú út fara að kveldi að þeim ásjáandi, eins og þegar útlegðarmenn fara burt.
Brjót þú gat á vegginn í augsýn þeirra og gakk þar út um.
Þú skalt bera þau á öxlinni í augsýn þeirra; þú skalt fara út í myrkri og hylja ásjónu þína og ekki sjá landið. Því að eg gjöri þig að tákni fyrir Ísraels lýð.
Eg gjörði sem mér var boðið: eg færði föng mín út svo sem önnur ferðatæki um hádag og að kveldi braut eg með hendinni gat á vegginn; eg fór út í myrkri og bar þau á öxlinni í augsýn þeirra.
og að kveldi braut eg með hendinni gat á vegginn;
Þú manns-son, hafa þeir ekki sagt við þig, Ísraelsmenn, hinn þverúðugi lýður: Hvað ertu að gjöra?
Seg við þá: Svo segir Drottinn Guð: Þetta guðmæli á við höfðingjann í Jerúsalem og alla Ísraelsmenn, þá sem eru meðal yðar.
Seg: Eg er yður tákn; eins og eg hefi gjört, svo mun með þá farið verða: þeir munu fara í útlegð, herleiddir verða.
Og höfðinginn, sem meðal þeirra er, mun taka föng sín á öxl sér og fara út í myrkri; hann mun brjóta gat á vegginn, til þess að fara þar út um; hann mun hylja ásjónu sína, til þess að hann sjái ekki landið.
Og eg mun kasta yfir hann neti mínu, og hann mun veiddur verða í veiðarfæri mín; og eg mun flytja hann til Babel, til Kaldealands; það land skal hann ekki sjá og þó mun hann þar deyja.
Og öllu því, sem umhverfis hann er, fulltingjurum hans og gjörvöllum herflokkum hans, mun eg tvístra í allar áttir og vera á hælum þeim með brugðnu sverði.
Og þá skulu þeir kannast við, að eg er Drottinn, er eg dreifi þeim meðal heiðnu þjóðanna og tvístra þeim út um löndin.
Og eg læt aðeins fáeina menn af þeim komast undan sverðinu, hungrinu og drepsóttinni, til þess að þeir segi frá öllum svívirðingum sínum meðal þjóðanna, sem þeir koma til, og þeir skulu kannast við, að eg er Drottinn.
Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:
Manns-son, ef brauð þitt með hræðslu og drekk vatn þitt með skjálfta og angist
og seg við landslýðinn: Svo segir Drottinn Guð um þá, sem búa í Jerúsalem í Ísraelslandi! Þeir munu eta brauð sitt með angist og drekka vatn sitt með skelfingu, til þess að land hennar leggist í auðn og verði svift gæðum sínum, sakir glæps þess, er allir íbúar þess í frammi hafa.
Bygðar borgir skulu í eyði leggjast og landið verða að öræfum; og þá skuluð þér kannast við, að eg er Drottinn.
Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:
Manns-son, hvaða orðtak er þetta, sem þér hafið í Ísraelslandi, er þér segið: Tíminn dregst, og allar vitranir reynast marklausar?
seg því við þá: Svo segir Drottinn Guð: Eg mun gjöra enda á þessu orðtaki, og menn munu eigi framar nota það í Ísrael. Seg þeim þar í móti: Tíminn er nálægur og allar vitranir rætast.
Því að hér eftir skal engin hégómasýn eða hræsnispádómur stað hafa meðal Ísraelsmanna;
því að eg, Drottinn, mun tala það orð, er eg vil tala, og það mun koma fram. Það mun ekki dragast lengur; því að á yðar dögum, þverúðuga kynslóð, mun eg tala orð og framkvæma það — segir Drottinn Guð.
Og orð Drottins kom til mín, svo hljóðandi:
Manns-son, sjá, Ísraelsmenn segja: Sýnin, sem hann sér, á sér langan aldur, og hann spáir langt fram í ókonmar tíðir.
Seg því við þá: Svo segir Drottinn Guð: Á engu mínu orði mun framar frestur verða; því orði, er eg tala, mun framgengt verða — segir Drottinn Guð.