Esekíelsbók 11Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Esekíelsbók 11

Og andinn hóf mig upp og flutti mig að austurhliði musteris Drottins, sem horfir mót austri; þar stóðu fyrir dyrum hliðsins tuttugu og fimm menn, og á meðal þeirra sá eg Jaasanja Assúrsson og Pelatja Benajason, foringja lýðsins.

Þá sagði hann við mig: Mannsson, það eru þessir menn, sem hafa út í huga og ráða mönnum óheill í þessari borg;

þeir segja: Hafa ekki húsin nýlega verið endurreist? Hún er potturinn, en vér erum kjötið.

Spá þú þess vegna móti þeim, spá þú, manns-son!

Þá kom andi Drottins yfir mig og sagði við mig: Seg þú: Svo segir Drottinn: Svo segið þér, Ísraelsmenn, og eg þekki hugrenningar yðar.

Marga menn yðar hafið þér drepið í þessari borg og þér hafið fylt stræti hennar vegnum mönnum.

Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Þeir menn, sem þér hafið myrt og lagt að velli í borginni, þeir eru kjötið og hún er potturinn. En þér munuð fluttir verða burt úr henni.

Við sverðið eruð þér hræddir, og sverðið skal eg láta yfir yður koma, segir Drottinn Guð.

Og eg skal færa yður burt úr borginni og selja yður útlendum mönnum í hendur og framkvæma dóma meðal yðar.

Fyrir sverði skuluð þér falla; í Ísraelslandi skal eg dæma yður, og þér skuluð viðurkenna, að eg er Drottinn.

Borgin skal ekki verða yður að potti og þér skuluð ekki verða kjöt í henni; í Ísraelslandi skal eg dæma yður.

Þá skuluð þér viðurkenna, að eg er Drottinn, en mínum boðorðum hafið þér ekki hlýtt og mína setninga hafið þér ekki haldið, heldur hafið þér breytt eftir setningum heiðnu þjóðanna, sem umhverfis yður eru.

meðan eg spáði þannig, féll Pelatja Benajason dauður niður. Þá féll eg fram á ásjónu mína, kallaði upp hárri röddu og sagði: Æ, Drottinn Guð, ætlar þú að gjöreyða öllum eftirleifum Ísraels?

Þá kom orð Drottins til mín, svo hljóðandi:

Manns-son, bræður þínir, bræður þínir, þeir menn, er með þér Voru herleiddir, og gjörvallur Ísraels lýður, eins og hann er sig til, en um þá segja Jerúsalembúar: Þeir eru langt í burtu frá Drottni; oss er landið gefið til eignar!

Fyrir því skalt þú segja: Svo segir Drottinn Guð: Já, eg hefi rekið þá langt burt til heiðinna þjóða og dreift þeim út um löndin og varð þeim lítillega að helgidómi í löndum þeim, sem þeir eru komnir til.

Fyrir því skalt þú segja: Svo segir Drottinn Guð: Eg vil safna yður saman frá þjóðunum og stefna yður saman frá löndunum, þangað sem yður var dreift, og gefa yður Ísraelsland.

Þangað munu þeir komast og útrýma þaðan öllum viðurstygðum þess og öllum svívirðingum þess.

Og eg mun gefa þeim nýtt hjarta og leggja þeim nýjan anda í brjóst; eg mun taka steinhjartað úr líkama þeirra og gefa þeim hjarta af holdi,

til þess að þeir hlýði boðorðum mínum og varðveiti setninga mína og breyti eftir þeim. Og þá skulu þeir vera mín þjóð og eg skal vera þeirra Guð.

En þessir — hjarta þeirra eftir viðurstygðir þeirra og andstygðir; eg skal láta athæfi þeirra koma þeim í koll, segir Drottinn Guð.

Nú hófu kerúbarnir vængi sína og hjólin færðust til samtímis Þeim, en dýrð Ísraels Guðs var uppi yfir þeim.

Og dýrð Drottins hóf Sig upp frá borginni og staðnæmdist á fjallinu, sem er fyrir austan borgina.

Og andinn hóf mig upp og flutti mig í sýninni, fyrir Guðs anda, til hinna herleiddu í Kaldealandi. Og sýnin, sem eg hafði séð, leið upp frá mér.

Því næst flutti eg hinum herleiddu öll orð Drottins, Þau er hann hafði birt mér.