Esekíelsbók 10Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Esekíelsbók 10

Eg sá, og sjá: á festingunni, er var yfir höfði kerúbanna, var því líkast sem.safírsteinn væri; eitthvað, sem tilsýndar var sem hásæti í laginu, sást uppi yfir þeim.

Þá sagði hann við línklædda manninn: Gakk inn á millum hjólanna undir kerúbnum, tak fullar lúkur þínar af glóðum milli kerúbanna og dreif þeim út yfir borgina. Og hann gekk þar inn að mér ásjáandi.

En kerúbarnir stóðu hægramegin við musterið, þegar maðurinn gekk inn, og fylti skýið innra forgarðinn.

En dýrð Drottins hóf sig frá kerúbnum yfir á þröskuld musterisins; varð musterið þá fult af skýmökk, en forgarðurinn fyltist ljóma af dýrð Drottins.

Og vængjaþytur kerúbanna heyrðist alt til hins ytra torgarðs, eins og rödd Guðs almáttugs, þá er hann talar.

Nú er hann hafði boðið línklædda manninum og sagt: Tak eld á millum hjólanna, á millum kerúbanna! þá gekk hann til og staðnæmdist hjá einu hjólinu.

Þá rétti kerúbinn hönd sína út milli kerúbanna að eldinum, sem var á milli kerúbanna, tók þar af og fékk í hendur línklædda manninum. Hann tók við og gekk burt.

En á kerúbunum sást eitthvað, sem líklist mannshendi, undir vængjum þeirra.

Eg leit til og voru þá fjögur hjól hjá kerúbunum, sitt hjól hjá hverjum kerúb, og hjólin voru á að líta eins og þegar blikar á krýsolitstein.

Og að því er gerð þeirra snertir, þá voru þau öll fjögur samlík, eins og eitt hjólið væri innan í öðru hjóli.

Þegar þau gengu, gengu þau til allra fjögurra hliða; þau snerust eigi við í göngunni, heldur gengu þau í þá átt, sem höfuðið sneri; þau snerust eigi við í göngunni.

Og allur líkami þeirra og bak þeirra, hendur og vængir voru alsett augum alt umhverfis á þeim fjórum.

En hjólin voru í mín eyru nefnd »hvirfilbylur«.

Og hvert hafði fjögur andlit. Andlit eins var nautsandlit, andlit hins annars mannsandlit; hinn þriðji hafði ljónsandlit og hinn fjórði arnarandlit.

Og kerúbarnir hófu sig upp. Það var sama veran, sem eg hafði séð við Kebar-fljótið.

Og þegar kerúbarnir gengu, þá gengu og hjólin við hliðina á þeim, og þegar kerúbarnir hófu upp vængi sína, til þess að lyfta sér frá jörðunni, þá snerust hjólin ekki burt frá þeim.

Þegar þeir stóðu kyrrir, stóðu þau og kyr, og þegar þeir hófust upp, hófust þau og upp með þeim; því að andi verunnar var í þeim.

Dýrð Drottins fór nú burt af þröskuldi musterisins og nam staðar uppi á kerúbunum.

Þá hófu kerúbarnir upp vængi sína og lyftu sér frá jörðunni að mér ásjáandi, er þeir fóru burt, og hjólin samtímis þeim. Og þeir námu staðar úti fyrir austurhliði musteris Drottins, en dýrð Ísraels Guðs var uppi yfir þeim.

Það var sama veran, sem eg hafði séð undir Ísraels Guði við Kebar-fljótið, og eg þekti, að það voru kerúbar.

Þeir höfðu fjögur andlit og fjóra vængi hver, og undir vængjum sér eitthvað, sem líktist mannshöndum.

Og hvað andlitsskapnaðinn snerti, þá voru það sömu andlitin, sem eg hafði séð við Kebar-fljótið; þeir gengu hver fyrir sig beint af augum fram.