Dómarabókin 5Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Dómarabókin 5

Þá sungu þau Debóra og Barak Abínóamsson á þessa leið:

Að foringjar veittu forystu í Ísrael, að fólkið kom sjálfviljuglega, — fyrir það lofið Drottin.

Heyrið, þér konungar, hlustið á, þér höfðingjar! Drottinn vil eg, vil eg vegsama, lofsyngja Drottni, Ísraels Guði.

Drottinn, þegar þú brauzt út frá Seír, þegar þú brunaðir fram frá Edóm-völlum, þá nötraði jörðin og himnarnir drupu, já, skýin létu vatn niður streyma;

fjöllin skulfu fyrir Drottni, sjálft Sínaí fyrir Drottni, Ísraels Guði.

Á dögum Samgars Anatssonar, á dögum Jaelar voru þjóðbrautir mannlausar, og vegfarendur fóru krókóttar leiðir.

Fyrirliða vantaði í Ísrael, vantaði, unz þú komst fram, Debóra, unz þú komst fram, móðir í Ísrael!

Menn kusu sér nýja guði; þá var barist við borgarhliðin; skjöldur sást eigi né spjót meðal fjörutíu þúsunda í Ísrael.

Hjarta mitt heyrir leiðtogum Ísraels, þeim er komu sjálfviljuglega fram meðal fólksins; lofið Drottin!

Þér, sem ríðið bleikrauðum ösnum, þér, sem hvílið á ábreiðum, og þér, sem farið um veginn — talið um það.

Fjarri hávaða bogmannanna, meðal vatnsþrónna, þar víðfrægi menn réttlætisverk Drottins, réttlætisverk fyrirliða hans í Ísrael. Þá fór lýður Drottins niður að borgarhliðunum.

Vakna þú, vakna þú, Debóra, vakna þú, vakna þú, syng kvæði! Rís þú upp, Barak, og leið burt bandingja þína, Abínóams sonur!

Þá fóru ofan leifar göfugmennanna, liðsins, Drottinn steig ofan mér til hjálpar meðal hetjanna.

Frá Efraím fóru ofan þeir, sem rótfestir voru á Amalek, á eftir þér, Benjamín, meðal liðsflokka þinna. Frá Makír fóru ofan leiðtogar og frá Sebúlon þeir, er báru liðstjórastafinn,

og fyrirliðarnir í Íssakar með Debóru, og eins og Íssakar, svo og Barak; hann steypti sér á hæla honum ofan í dalinn. Við Rúbens læki voru miklar ráðagerðir.

Hví sazt þú milli fjárgirðinganna, til þess að hlusta á pípublástur hjarðmannanna?

Gíleað hélt kyrru fyrir hinumegin Jórdanar og Dan — hvers vegna dvaldi hann við skipin? Asser sat kyr við sjávarströndina og hélt kyrru fyrir við víkur sínar.

Sebúlon er lýður, sem hætti lífi sínu í dauðann, og Naftalí á hæðum landsins.

Konungar komu, börðust, þá börðust konungar Kanaans við Taanak hjá Megiddó-vötnum; silfur fengu þeir ekkert að herfangi.

Af himni börðust stjörnurnar, af brautum sínum börðust þær við Sísera;

Kíson-lækur skolaði þeim burt, orustu-lækurinn, lækurinn Kíson. Stíg, sál mín, öfluglega!

Þá hlumdu hófar hestanna, af reiðinni, reið kappanna,

Bölvið Merós! sagði engill Drottins, já, bölvið íbúum hennar, af því að þeir komu ekki Drottins til hjálpar, Drottins til hjálpar meðal hetjanna.

Blessuð framar öllum konum veri Jael, kona Hebers Keníta, framar öllum konum í tjaldi veri hún blessuð!

Vatn bað hann um, mjólk gaf hún, í skrautlegri skál rétti hún honum rjóma.

Hún rétti út hönd sína eftir hælnum og hægri hönd sína eftir smíðahamrinum, og sló Sísera, mölvaði haus hans, laust sundur þunnvanga hans og klauf inn úr.

Hann hné fyrir fætur henni, fjell út af og lá þar; hann hné fyrir fætur henni, féll út af: þar sem hann hné niður, þar lá hann dauður.

Út um gluggann skimar og kallar móðir Sísera, út um grindurnar: Hví seinkar vagni hans? Hvað tefur ferð hervagna hans?

Hinar vitrustu af hefðarfrúm hennar svara henni, já, sjálf hefir hún upp fyrir sér orð þeirra:

Efalaust hafa þeir fengið herfang og verið að skifta því, eina ambátt, tvær ambáttir á mann, litklæði handa Sísera að herfangi, litklæði, glitofin, að herfangi, litklæði, tvo glitofna dúka um háls drotningarinnar!

Svo farist allir óvinir þínir, Drottinn! En þeir, sem hann elska, eru sem sólaruppkoman í ljóma sínum. Var nú friður í landi í fjörutíu ár.