Gamla testamentiðSaga
Þegar Ehúð var dáinn, gjörðu Ísraelsmenn enn af nýju það, sem ilt var í augum Drottins.
Og Drottinn seldi þá í hendur Jabín, Kanaans konungi, sem hafði aðsetur í Hazór; en hershöfðingi hans hét Sísera og bjó hann í Haróset heiðingjanna.
Og Ísraelsmenn hrópuðu pr A Bu til Drottins, því að hann átti níu hundruð járnvagna og hafði kúgað Ísraelsmenn harðlega í tuttugu ár.
Kona hét Debóra; hún var spákona og eiginkona manns þess, er Lapídót hét; hún var dómari í Ísrael um þessar mundir.
Hún sat undir Debóru-pálma milli Rama og Betel á Efraím-fjöllum; og Ísraelsmenn fóru þangað upp til hennar, að hún legði dóm á mál þeirra.
Hún sendi og lét kalla til sín Barak Abínóamsson frá Kedes í Naftalí og sagði við hann: Sannlega hefir Drottinn, Ísraels Guð, boðið svo: Far þú og hald til Tabor-fjalls og haf með þér tíu þúsundir manna af Naftalí sonum og Sebúlons sonum,
Og eg mun leiða Sísera, hershöfðingja Jabíns, með vögnum hans og liði til þín að Kíson-læk, og eg mun gefa hann í hendur þínar.
En Barak sagði við hana: Fara mun eg, ef þú fer með mér; en viljir þú eigi fara með mér, mun eg hvergi fara.
Hún svaraði: Víst mun eg með þér fara; en enga frægð munt þú hafa af för þessari, sem þú fer, því að Drottinn mun selja Sísera í konu hendur. Síðan tók Debóra sig upp og fór með Barak til Kedes.
Þá kallaði Barak saman Sebúlon og Naftalí í Kedes, og tíu þúsundir manna fóru með honum, og Debóra var í för með. honum.
En Heher Keníli hafði skilist við Kain, við niðja Hóbahs, tengdaföður Móse, og sló hann tjöldum sínum alt að eikinni hjá Zaanaím, sem er hjá Kedes.
Nú var Sísera sagt frá því, að Barak Abínóamsson væri farinn upp á Tabor-fjall;
dró Sísera þá saman alla vagna sína, níu hundruð járnvagna, og alt það lið, er með honum var, frá Haróset heiðingjanna til Kíson-lækjar.
Þá sagði Debóra við Barak: Rís þú nú upp, því að nú er sá dagur kominn, er Drottinn mun selja Sísera í þínar hendur; sannlega er Drottinn farinn á undan þér. Fór Barak þá ofan af Taborfjalli og tíu þúsundir manna fylgdu honum.
Og Drottinn gjörði Sísera felmtsfullan og alla vagna hans og allan hans ber með sverðseggjum frammi fyrir Barak, svo að Sísera hljóp af vagni sínum og flýði undan á fæti.
En Barak elti vagnana og herinn alt til Haróset heiðingjanna, og allur her Sísera féll fyrir sverðseggjum; enginn komst undan.
En Sísera flýði á fæti til tjalds Jaelar, konu Hebers Keníta, því að friður var milli Jabíns, konungs í Hazór, og húss Hebers Keníta.
Þá gekk Jael út í móti Sísera og sagði við hann: Gakk inn, herra minn, gakk inn til mín; vertu óhræddur. Og hann gekk inn til hennar í tjaldið, og hún lagði ábreiðu yfir hann.
Þá sagði hann við hana: Gef mér vatnssopa að drekka, því að eg er þyrstur. Hún leysti þá frá mjólkurbelg og gaf honum að drekka, og breiddi síðan ofan á hann aftur.
Þá sagði hann við hana: Stattu í tjalddyrunum, og ef einhver kemur og spyr þig og segir: Er nokkur hér? þá seg þú: Nei.
Þá þreif Jael, kona Hebers, tjaldhæl og tók hamar í hönd sér og gekk hljóðlega inn tl hans og rak hælinn gegn um þunnvangann, svo að hann gekk í jörð niður; en Sísera. var sofnaður fasta-svefni, því að hann var þreyttur. Varð þetta hans bani.
Í sama bili kom Barak og var að elta Sísera. Jael gekk þá út í móti honum og sagði við hann: Kom þú hingað, og mun eg sýna þér þann mann, sem þú leitar að. Og hann gekk inn til hennar, og lá þá Sísera þar dauður með hælinn gegn um þunnvangann.
Þannig lægði Guð á þeim degi Jabín, Kanaans konung, fyrir Ísraelsmönnum.
Og hönd Ísraelsmanna lagðist æ þyngra og þyngra á Jabín, Kanaans konung, unz þeir að lokum gjörðu út af við hann.