Gamla testamentiðSaga
En þessar eru þjóðir þær, sem Drottinn lét vera kyrrar, til þess að reyna Ísrael á þeim — alla þá, er ekkert höfðu haft að segja af öllum bardögunum um Kanaan,
einungis til Þess að hinar komandi kynslóðir Ísraelsmanna mættu kynnast hernaði — til Þess að kenna þeim hernað, aðeins þeim, sem eigi höfðu kynst slíku áður:
Fimm höfðingjar Filistanna, allir Kanaanítar, Zídoningar og Hevitar, sem bjuggu á Líbanon-fjöllum, frá fjallinu Baal-Hermon alt þangað, er leið liggur til Hamat.
Voru þeir eftir, til þess að reyna Ísrael á þeim, svo að augljóst yrði, hvort þeir vildu hlýða boðorðum Drottins, er hann hafði sett feðrum þeirra fyrir Móse.
Þannig bjuggu Ísraelsmenn mitt á meðal Kanaaníta, Hetíta, Amórita, Peresita, Hevíta og Jebúsita;
Sgengu þeir að eiga dætur þeirra og giftu sonum þeirra dætur sínar, og þjónuðu guðum þeirra. Fyrstu dómararnir: Otníel, Ehúð og Samgar.
Og Ísraelsmenn gjörðu það, sem út var í augum Drottins, og gleymdu Drottni, Guði sínum, og þjónuðu Baðlum og asérum.
Upptendraðist þá reiði Drottins gegn Ísrael, svo að hann seldi þá í hendur Kusan Rísjataím, konungi í Aram-Naharaím, og Ísraelsmenn þjónuðu Kusan Rísjataím í alla ár.
Þá hrópuðu Ísraelsmenn til Drottins, og Drottinn vakti Ísraelsmönnum upp hjálparmann, er hjálpaði þeim: Otniel Kenasson, bróður Kalebs og honum yngri.
Og andi Drottins kom yfir hann, svo að hann rétti hluta Ísraels; fór hann í hernað, og Drottins gaf Kusan Rísjataím, konung í Aram, í hendur honum, og hann varð Kusan Rísjataím yfirsterkari.
Var síðan friður í landi í fjörutíu ár. Þá andaðist Otníel Kenasson.
En Ísraelsmenn gjörðu enn af nýju það, sem út var í augum Drottins. Þá efldi Drottinn Eglón, konung í Móab, móti Ísrael, af því að Þeir gjörðu það, sem út var í augum Drottins.
Hann safnaði að sér Ammónítum og Amalekítum, fór því næst og vann sigur á Ísrael, og Þeir náðu pálmaborginni á sitt vald.
Og Ísraelsmenn þjónuðu Eglón, konungi í Móab, í átján ár.
Þá hrópuðu Ísraelsmenn til Drottins, og Drottinn vakti þeim upp hjálparmann, Ehúð, son Gera Benjamíníta, en hann var maður örvendur. Ísraelsmenn sendu hann með skatt á fund Eylóns, konungs í Móab.
En Ehúð hafði smíðað sér sax tvíeggjað, Spannarlangt; hann gyrti sig því undir klæðum á hægri hlið.
Og hann færði Eglón, konungi í Móab, skattinn, en Eglón var maður digur mjög.
En er hann hafði borið fram skattinn, lét hann mennina fara, þá er borið höfðu skattinn.
En sjálfur sneri hann aftur hjá skurðmyndunum í Gilgal og sagði: Leyndarmál hefi eg að segja Þér, konungur. En hann sagði: Þei!í og allir þeir gengu út, er kring um hann stóðu.
Þá gekk Ehúð til hans, þar sem hann sat aleinn Í hinum svala þaksal sínum. Og Ehúð mælti: Eg hefi erindi frá Guði við þig. Stóð hann þá upp úr sæti sínu.
En Ehúð greip til Vinstri hendinni og þreif sverðið á hægri hlið sér og lagði því í kvið honum.
Gekk blaðið á kaf og upp yfir hjöltu, svo að fat blaðið í Ístrunni, því að eigi dró hann saxið úr kviði honum. Gekk hann þá út á þakið.
Síðan gekk Ehúð út í gegn um forsalinn og lukti dyrnar á þaksalnum á eftir sér og skaut loku fyrir.
En er hann var út Senginn, komu þjónar konungs og sáu þeir að dyrnar á þaksalnum Voru lokaðar og sögðu: Hann hefir víst sezt niður erinda sinna inni í Svala herberginu.
Biðu þeir nú, þar til er þeim leiddist biðin. Og er hann enn ekki lauk upp dyrunum á þaksalnum, þá tóku þeir lykilinn og luku upp, og lá þá herra þeirra dauður á gólfinu.
En Ehúð hafði komist undan meðan þeir hinkruðu við; hann var kominn út að Sskurðmyndunum og komst undan til Seíra.
Og er hann var Þangað kominn, lét hann þeyta lúður á Efraím-fjöllum. Fóru ísraelsaienn þá með honum ofan af fjöllunum, en hann var fyrir þeim.
Og hann sagði við þá: Fylgið mér, því að Drottinn hefir gefið óvini yðar, Móabítana, í hendur yðar. Fóru þeir þá ofan á eftir honum og náðu öllum vöðum á Jórdan yfir til Móab og létu engan komast þar yfir.
Og þá feldu þeir af Móabítum um tíu þúsundir manna, og voru það alt sterkir menn og hraustir; enginn komst undan.
Þannig urðu Móabítar á þeim degi að beygja sig undir vald Ísraels. Var nú friður í landi um áttatíu ár.
Og eftir hann kom Samgar Anatsson; hann feldi af Filistum Sex hundruð manna með nautastaf; þannig frelsaði einnig hann Ísrael.