Gamla testamentiðSaga
Og engill Drottins kom frá Gilgal til Bókím og mælti: Eg leiddi yður út af Egiptalandi og færði yður í það land, sem eg sór feðrum yðar, og eg sagði: »Eg mun aldrei rjúfa sáttmála minn við yður;
en þér megið ekki gjöra sáttmála við íbúa þessa lands, heldur skuluð þér rífa niður ölturu þeirra«. En þér hafið ekki hlýtt raustu minni. Hví hafið þér gjört þetta?
Fyrir því segi eg og: Eg mun ekki stökkva þeim burt undan yður, og þeir munu verða broddar í síðum yðar og guðir þeirra verða yður að tálsnöru.
Og er engill Drottins hafði mælt þessum orðum til allra Ísraelsmanna, þá hóf lýðurinn upp raust sína og grét.
Og þeir nefndu stað þennan Bókím; og þeir færðu þar Drottinn fórn.
Síðan lét Jósúa fólkið frá sér fara, og héldu þá Ísraelsmenn hver til síns óðals, til þess að taka landið til eignar.
Og lýðurinn þjónaði Drottni meðan Jósúa var á lífi og meðan öldungar þeir, sem lifðu Jósúa, voru á lífi, þeir er séð höfðu öll hin miklu verk Drottins, er hann gjörði fyrir Ísrael.
Þá andaðist Jósúa Núnsson, þjónn Drottins, hundrað og tíu ára gamall.
Og hann var grafinn í eignarlandi sínu, hjá Timnat-Heres á Efraím-fjöllum, fyrir norðan Gaas-fjall.
En er öll sú kynslóð hafði líka safnast til feðra sinna, reis upp önnur kynslóð eftir hana, er eigi þekti Drottinn né þau verk, er hann hafði gjört fyrir Ísrael.
Þá gjörðu Ísraelsmenn það, sem ilt var í augum Drottins, og þjónuðu Baölum,
og yfirgáfu Drottin, Guð feðra sinna, er leitt hafði þá af Egiptalandi, og eltu aðra guði, af guðum þjóða þeirra, er bjuggu umhverfis þá, og féllu fram fyrir þeim og egndu Drottinn til reiði.
Og þeir yfirgáfu Drottin og þjónuðu Baal og Astörtum.
Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ísrael, og hann gaf þá á vald ránsmönnum og þeir ræntu þá, og hann seldi þá í hendur óvinum þeirra alt í kring um þá, svo að þeir fengu eigi framar staðist fyrir óvinum sínum.
Hvert sem þeir fóru, var hönd Drottins í móti þeim til óhamingju, E eins og Drottinn hafði sagt og eins og Drottinn hafði svarið þeim; komust þeir þá í miklar nauðir.
En Drottinn vakti upp dómara, og þeir frelsuðu þá úr höndum þeirra, er þá ræntu.
En þeir hlýddu ekki heldur dómurum sínum, heldur tóku fram hjá með öðrum guðum og féllu fram fyrir þeim; þeir viku bráttaf þeim vegi, sem feður þeirra höfðu gengið, með því að hlýða boðum Drottins; þeir breyttu ekki svo.
Og þegar Drottinn vakti þeim upp dómara, þá var Drottinn með dómaranum og frelsaði þá úr höndum óvina þeirra á meðan dómarinn var á lífi; því að Drottinn kendi í brjósti um þá, er þeir kveinuðu undan kúgurum sínum og kvölurum.
En er dómarinn andaðist, breyttu þeir að nýju ver en feður þeirra, með því að elta aðra guði, til þess að þjóna þeim og falla fram fyrir þeim; þeir létu eigi af gjörðum sínum né þrjózkubreytni:
Þá upptendraðist reiði Drottins gegn Ísrael og hann sagði: Af því að þetta fólk hefir rofið sáttmála minn, þann er eg lagði fyrir feður þeirra, og ekki hlýtt minni raustu,
þá mun eg ekki heldur framar stökkva burt undan þeim nokkurum manni af þjóðum þeim, sem Jósúa skildi eftir, er hann andaðist,
til þess að reyna Ísrael á þeim, hvort þeir varðveita veg Drottinn, til að ganga hann, eins og feður þeirra gjörðu, eða ekki.
Þannig lét Drottinn þjóðir þessar vera kyrrar, án þess að reka þær burt bráðlega, og hann gaf þær eigi í hendur Jósúa.