Gamla testamentiðSaga
Að nokkurum tíma liðnum kom Simson um hveitiuppskerutímann að vitja konu sinnar og hafði með sér hafurkið. Og hann sagði við föður hennar: Leyf mér að ganga inn í afhýsið til konu minnar! En faðir hennar vildi ekki leyfa honum inn að ganga.
Og faðir hennar sagði: Eg var fulltrúa um að þú hefðir fengið megna óbeit á henni og gifti hana því brúðarsveini þínum; en yngri systir hennar er fríðari en hún; hana skalt þú fá í hennar stað.
Þá sagði Simson við þá: Nú ber eg enga sök á því við Filista, þó að eg vinni þeim mein.
Síðan fór Simson og veiddi þrjú hundruð refi, tók blys, sneri hölunum saman og batt eitt blys millum hverra tveggja hala.
Síðan kveikti hann í blysunum og slepti því næst refunum inn á kornakra Filista og brendi þannig bæði kerfaskrúf, óslegið korn og olíugarða.
Þá sögðu Filistar: Hver hefir gjört þetta? Og menn svöruðu: Simson, tengdasonur Timnítans, — því að hann hefir tekið frá honum konuna og gift hana brúðarsveini hans. Þá fóru Filistar upp þangað og brendu hana inni og föður hennar.
En Simson sagði við þá: Fyrst þér að hafist slíkt, mun eg ekki hætta fyr en eg hefi hefnt mín á yður.
Síðan barði hann svo óþyrmilega á þeim, að sundur gengu lær og leggir. Og hann fór þaðan og settist að í Etam-klettaskoru.
Þá fóru Filistar upp eftir og settu herbúðir sínar í Júda og dreifðu sér um Lekí.
Og Júdamenn sögðu: Hví hafið þér farið í móti oss? En þeir svöruðu: Vér erum hingað komnir til þess að binda Simson, svo að vér megum með hann fara sem hann hefir farið með oss.
Þá fóru þrjú þúsund manns frá Júda ofan til Etam-klettaskoru og sögðu við Simson: Veizt þú ekki, að Filistar drotna yfir oss? Hví hefir þú þá gjört oss þetta? Hann svaraði þeim: Eins og þeir fóru með mig, svo hefi eg farið með þá.
Og þeir sögðu við hann: Vér erum hingað komnir til að binda þig, svo að vér getum selt þig í hendur Filista. Þá sagði Simson við þá: Vinnið mér eið að því, að þér sjálfir skulið ekki drepa mig.
Þeir svöruðu honum: Nei; vér munum aðeins binda þig og selja þig í hendur þeirra — en drepa þig munum vér ekki. Og þeir bundu hann með tveimur reipum nýjum og fóru með hann burt frá klettinum.
En er hann kom til Lekí, fóru Filistar með ópi miklu í móti honum. Þá kom andi Drottins yfir hann, og urðu reipin, sem voru um armleggi hans sem þræðir í eldi brunnir, og hrukku fjötrarnir sundur af höndum hans.
Og hann fann nýjan asnakjálka, rétti út höndina og tók hann og laust með honum þúsund manns:
Þá sagði Simson: Með asnakjálka hefi eg gjörsamlega flegið þá, með asnakjálka hefi eg banað þúsund manns!
Og er hann hafði mælt þetta, varpaði hann kjálkanum úr hendi sér, og var þessi staður upp frá því nefndur Ramat-Leki.
En hann var mjög þyrstur, og hrópaði því til Drottins og mælti: Þú hefir veitt þennan mikla sigur fyrir hönd þjóns þíns, en nú hlýt eg að deyja af þorsta og falla í hendur óumskorinna manna!
Þá klauf Guð holuna, sem var í kjálkanum, svo að vatn rann fram úr henni. En er hann hafði drukkið, kom andi hans aftur og: hann lifnaði við. Fyrir því var hún nefnd: Hrópandans lind; hún er í Lekí fram á þennan dag.
En hann var dómari í Ísrael um daga Filista í tuttugu ár.