Dómarabókin 16Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Dómarabókin 16

Og Simson fór til Gasa; þar sá hann portkonu eina og gekk inn til hennar.

Þá var Gasa-búum sagt svo frá: Simson er hér kominn. En þeir umkringdu hann og gjörðu honum fyrirsát alla nóttina í borgarhliðinu, en höfðu þó hljótt um sig alla nóttina, með því að þeir hugsuðu: Þegar birtir af degi, skulum vér drepa hann.

En Simson svaf til miðrar nætur. En um miðja nótt reis hann á fætur, þreif hurðirnar á borgarhliðinu, ásamt báðum dyrastöfunum, og kipli þeim upp ásamt slagbrandinum og lagði á herðar sér og bar þær efst upp á fjallið, sem er gegnt Hebron. Simson og Delíla. Siinson deyr.

Eftir þetta bar svo við, að hann feldi ástarhug til konu einnar í Sórek-dal; hún hét Delíla.

Höfðingjar Filista komu til hennar og sögðu við hana: Ginn þú hann og komstu að því, í hverju hið mikla á afl hans er fólgið og með hverju móti vér fáum yfirbugað hann, svo að vér getum bundið hann og þjáð hann, og munum vér gefa þér hver um sig eitt þúsund sikla silfurs og hundraði betur.

Og Delíla sagði við Simson: Seg mér, í hverju hið mikla afl þitt er fólgið og með hverju þú verður bundinn, svo að menn eigi alls kostar við þig:

Simson svaraði henni: Ef menn binda mig með sjö nýjum strengjum, sem ekki eru þurrir orðnir, þá gjörist eg linur og verð eins og hver annar maður.

Þá færðu höfðingjar Filista henni sjö nýja strengi sem ekki voru þurrir orðnir, og hún batt hann með þeim.

En menn Ina, er um hann sátu, hafði hún hjá sér í Því næst sagði hún við hann; Filistar yfir þig, Simson! Þá sleit hann sundu! strengina, eins og hörþráður slitnar sundur, er hann kennir elds — og ekki varð komist fyrir afl hans.

Þá sagði Delíla við Simson; Sjá, þú hefir blekt mig og logið að mér! Seg mér nú, með hverju Þú verður bundinn.

Hann svaraði henni: Ef menn binda mig með nýjum reipum, sem ekki hafa verið höfð til neinnar vinnu, þá gjörist eg linur og verð sem hver annar maður.

Þá tók Delíla ný reipi og batt hann með þeim og sagði við hann: Filistar yfir þig, Simson! og mennirnir, er um hann sátu, voru í svefnhúsinu. En hann sleit þá af armleggjum sér, sem þráður væri.

Og Delíla sagði við Simson: Enn hefir þú blekt mig og logið að mér. Seg mér, með hverju þú verður bundinn. En hann sagði við hana: Ef þú vefur hárlokkana sjö á höfði mér saman við uppistöðuna í vef.

Og hún festi þá með nagla og sagði við hann: Filistar yfir þig, Simson! Þá vaknaði hann af svefninum og kipti út vefjarnaglanum og uppistöðunni.

Þá sagði hún við hann: Hvernig getur þú sagt: Eg elska þig! þar sem þú ert ekki einlægur við mig? Þrisvar sinnum hefir þú nú blekt mig og ekki sagt mér, í hverju hið mikla afl þitt sé fólgið.

En er hún nauðaði á honum alla daga með orðum sínum og gekk á hann fastlega, þá varð hann dauðleiður á því

og sagði henni alt hjarta sitt og mælti til hennar: Aldrei hefir rakhnífur komið á höfuð mitt, því að eg er Guði helgaður í frá móðurlífi. Væri nú hár mitt skorið, þá hyrfi afl mitt frá mér og eg gjörðist linur og yrði sem allir menn aðrir.

Þegar Delíla sá, að hann hafði sagt henni alt hjarta sitt, þá sendi hún og lét kalla höfðingja Filista, og lét hún segja þeim: Nú skuluð þér koma, því að hann hefir sagt mér alt hjarta sitt. Þá fóru höfðingjar Filista til hennar og höfðu silfrið með sér.

En hún svæfði hann á skauti sínu og kallaði á manninn og lét hann skera hárlokkana sjö af höfði honum; og hún tók að þjá hann, en afl hans var frá honum horfið.

Þá sagði hún: Filistar yfir þig, Simson! Þá vaknaði hann af svefninum og hugsaði: Eg slepp í þetta sinn sem hin fyrri og slít mig lausan! — en hann vissi ekki, að Drottinn var vikinn frá honum.

Nú tóku Filistar hann höndum og stungu úr honum augun og fóru með hann niður til Gasa og bundu hann eirfjötrum, og varð hann að draga kvern í dýflissunni.

En höfuðhár hans tók aftur að vaxa, eftir að það hafði verið skorið.

Nú söfnuðust höfðingjar Filista saman, til þess að færa Dagón, guði sínum, fórn mikla og til þess að gjöra sér glatt, með því að þeir sögðu: Guð vor hefir gefið Simson, óvin vorn, í vorar hendur.

Og er fólkið sá hann, vegsömuðu þeir guð sinn, því að þeir sögðu: Guð vor hefir gefið óvin vorn í vorar hendur, hann sem eytt hefir land vort og drepið hefir marga menn af oss.

En er þeir nú gjörðust glaðir, sögðu þeir: Látið sækja Simson, til þess að hann skemti oss. Létu þeir nú sækja Simson úr dýflissunni og varð hann að skemta þeim; og þeir höfðu sett hann milli súlnanna.

Þá sagði Simson við sveininn, sem leiddi hann: Sleptu mér og leyfðu mér að þreifa á súlunum, sem húsið hvílir á, svo að eg geti stutt mig upp við þær.

En húsið var fult af körlum og konum; þar voru og allir höfðingjar Filista, og uppi á þakinu voru um þrjú þúsund karla og kvenna, sem horfðu á, er Simson skemti.

Þá hrópaði Simson til Drottins og sagði: Drottinn Guð! minstu mín; styrk mig nú, Guð! í þetta eina sinn, svo að eg geti hefnt mín á Filistum fyrir bæði augun mín í einu.

Því næst þreif Simson í báðar miðsúlurnar, sem húsið hvíldi á, hægri hendinni í aðra og vinstri hendinni í hina og treysti á.

Þá mælti Simson: Deyi nú sála mín með Filistum! Síðan lagðist hann á af öllu afli, svo að húsið féll ofan á höfðingjana og alt fólkið, er í því var, og þeir dauðu, sem hann drap um leið og hann beið bana, voru fleiri en þeir, er hann hafði drepið um æfina.

Þá fóru bræður hans ofan og alt ættfólk hans, og tóku þeir hann og fóru upp þaðan með hann og jörðuðu hann millum Zorea og Estaól, í gröf Manóa föður hans. En hann hafði verið dómari í Ísrael í tuttugu ár.