Dómarabókin 14Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSaga

Dómarabókin 14

Simson fór niður til Timnat og sá konu eina þar í Timnat; var hún ein af dætrum Filista.

síðan fór hann heim aftur og sagði föður sínum og móður frá þessu og mælti: Eg hefi séð konu eina í Timnat; er hún ein af dætrum Filista; takið þið hana nú mér til handa að eiginkonu.

En faðir hans og móðir sögðu við hann: Er þá engin kona meðal dætra bræðra þinna og í öllu fólki mínu, að þú þurfir að fara og taka þér konu af Filistum, sem eru óumskornir? Simson svaraði föður sínum: Tak hana mér til handa, því að hún geðjast augum mínum.

En faðir hans og móðir vissu ekki, að þetta var frá Drottni, og að hann leitaði færis við Filistana. Um þær mundir drotnuðu Filistar yfir Ísrael.

Þá fóru þau Simson og faðir hans og móðir niður til Timnat. Og er þau komu að víngörðum Timnat, þá kom ungt ljón öskrandi í móti honum.

Þá kom andi Drottins yfir hann, svo að hann sleit það sundur, eins og menn slíta sundur hafurkið, og hann hafði þó ekkert í hendinni. En eigi sagði hann föður sínum né móður frá því, er hann hafði gjört.

Síðan fór hann ofan og talaði við konuna; og hún geðjaðist augum Simsonar.

Eftir nokkurn tíma kom hann aftur að sækja hana. Veik hann þá af leið, til þess að sjá dauða Ljónið, og sjá, býflygi var í Ljónshræinu og lninang.

Og hann tók það í lófa sér, hélt síðan áfram og át, og hann fór til föður síns og móður og gaf þeim, og þau átu; en ekki sagði hann þeim frá því, að hann hefði tekið hunangið úr ljónshræinu.

Því næst fór faðir hans ofan til konunnar, og gjörði Simson þar veizlu, því að sá var háttur ungra manna.

En er þeir sáu hann, fengu þeir honum þrjátíu brúðarsveina, er vera skyldu með honum.

Og Simson sagði við þá: Eg mun bera upp fyrir yður gátu eina; ef þér fáið ráðið hana á þessum sjö veizludögum og getið hennar, þá mun eg gefa yður þrjátíu kyrtla og þrjátíu hátíðaklæðnaði.

En ef þér getið ekki ráðið hana, þá skuluð þér gefa mér þrjátíu kyrtla og þrjátíu hátíðaklæðnaði. Þeir svöruðu honum: Ber þú upp gátu þína, svo að vér megum heyra hana.

Þá sagði hann við þá: Æti gekk út af efanda; og sætleiki gekk út af hinum sterka.; Og liðu svo þrír dagar að þeir gátu ekki ráðið gátuna.

En á fjórða degi sögðu þeir við konu Simsonar: Ginn þú bónda þinn til að segja oss ráðningu gátunnar, ella munum vér þig í eldi brenna og hús föður þíns. Hafið þér boðið oss til þess að féfletta oss? Er ekki svo?

Þá grét kona Simsonar framan í hann og sagði: Hatur hefir þú á mér, en enga ást; þú hefir borið upp gátu fyrir börnum þjóðar minnar, en ekki sagt mér ráðningu hennar. Hann svaraði henni: Sjá, eg hefi ekki sagt föður mínum og móður minni ráðningu hennar og ætti þó að segja þér hana?

Og hún grét framan í hann sjö dagana, sem veizlan stóð yfir; og á sjöunda degi sagði hann henni ráðninguna, af því að hún gekk svo fast á hann. En hún sagði börnum þjóðar sinnar ráðning gátunnar.

Þá sögðu borgarmenn við hann á sjöunda degi, áður sól settist: Hvað er sætara en hunang? Og hvað er sterkara en ljón? Og hann sagði við þá: Ef þér hefðuð ekki erjað með kvígu minni, munduð þér ekki hafa ráðið gátu mína.

Þá kom andi Drottins yfir hann, svo að hann fór ofan til Askalon og drap þrjátíu menn af þeim, tók klæðnaði þeirra og gaf þá þeim að hátíðaklæðum, er ráðið höfðu gátuna. Og hann varð ákaflega reiður og fór upp til húss föður síns.

En kona Simsonar giftist brúðarsveini hans, þeim er hann hafði valið sér að vini.