Gamla testamentiðSpámennirnir
Heyrið þetta orð, sem Drottinn hefir talað gegn yður, þér Ísraelsmenn — gegn öllum þeim kynstofni, sem eg leiddi út af Egiptalandi, svolátandi:
Yður eina Læt eg mér ant um fremur öllum kynstofnum jarðarinnar; þess vegna hegni eg yður fyrir allar misgjörðir yðar.
Mega tveir menn verða samferða, nema þeir mæli sér mót?
Mun ljónið öskra í skóginum, ef það hefir enga bráð? Mun ljónshvolpurinn láta til sín heyra í bæli sínu, ef hann hefir engu náð?
Getur fuglinn komið í gildruna á jörðinni, ef engin snara er þar fyrir hann? Hrökkur gildran upp af jörðinni, nema eitthvað hafi í hana fengist?
Verður lúðurinn svo þeyttur innan borgar, að fólkið flykkist ekki saman í angist? Vill nokkur ógæfa svo til í borginni, að Drottinn sé ekki valdur að henni?
Nei, Drottinn Guð gjörir ekkert án þess að hann hafi opinberað þjónum sínum, spámönnunum, ráðsályktun sína.
Hafi Ljónið öskrað — hver skyldi þá ekki óttast? Hafi Drottinn Guð talað — hver skyldi þá ekki spá?
Kallið út yfir hallirnar í Asdód og hallirnar í Egiptalandi og segið: Safnist saman upp á Samaríufjöll og lítið á hina miklu ókyrð í borginni og ofbeldisverkin inni í henni.
Þeir kunna ekki rétt að gjöra — segir Drottinn—, þeir sem huga upp ofríki og kúgun í höllum sínum.
Fyrir því segir Drottinn Guð svo: Fjandmenn munu umkringja landið á alla vegu og rífa niður virki þín, og haltir þínar munu ræntar verða,
Svo segir Drottinn: Eins og hirðirinn bjargar tveimur fótum eða snepli af eyra úr gini ljónsins, svo skulu Ísraelsmenn bjargast, þeir er sitja í Samaríu í legubekkjarhorni og á hvílbeðjarhægindum.
Heyrið og verið vottar að þessu gegn Jakobs húsi, segir Drottinn Guð, Guðs hersveitanna:
Þann dag, er eg hegni Ísraelsmönnum fyrir glæpi þeirra, vil eg láta hegninguna koma niður á Ölturunum í Betel, til þess að altarishornin verði afhöggin og falli til jarðar.
Þá vil eg brjóta niður vetrarhallirnar ásamt sumarhöllunum, og fílabeinshallirnar skulu farast og mörg hús eyðileggjast, segir Drottinn.