Amosbók 4Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Amosbók 4

Heyrið þetta orð, þér Basans kvígur á Samaríufjalli, sem kúgið hina snauðu, misþyrmið hinum fátæku, sem segið við menn yðar: Dragið að, svo að vér megum drekka!

Drottinn Guð hefir svarið við heilagleik sinn: Sjá, þeir dagar munu yfir yður koma, að þér skuluð verða burt færðar með önglum og hinar síðustu af yður með goggum.

Þá munuð þér fara út um veggskörðin, hver beint sem horfir, og þér munuð kasta burt skurðgoðum yðar, segir Drottinn.

Farið til Betel og syndgið, til Gilgal og syndgið enn þá meir! Berið fram sláturfórnir yðar að morgni dags, á þriðja degi tíundir yðar!

Brennið sýrð brauð í þakkarfórn, boðið til sjálfviljafórna, gjörið þær heyrinkunnar! Því að það er yðar yndi, Ísraelsmanna, segir Drottinn Guð.

Eg hefi og látið yður halda hreinum tönnum í öllum borgum yðar og látið mat skorta í öllum bústöðum yðar; og þó hafið þér ekki snúið yður til mín, segir Drottinn.

Eg synjaði yður um regn, þá er þrír mánuðir voru til uppskeru, og eg lét rigna í einni borg, en ekki í annarri; ein akurspildan vökvaðist af regni, en önnur akurspilda, sem regnið vökvaði ekki, hún skrælnaði.

SMenn ráfuðu úr tveimur, þremur borgum til einnar borgar, bil að fá sér vatn að drekka, en fengu þó eigi slökt þorstann. Ög þó hafið þér ekki snúið yður til mín, segir Drottinn.

Eg refsaði yður með korndrepi og gulnan; eg eyddi aldingarða yðar og víngarða; engisprettur upp átu fíkjutré yðar og olíutre. Og þó hafið þér ekki snúið yður til mín, segir Drottinn.

Eg sendi yður drepsótt eins og á Egiptalandi; eg deyddi æskumenn yðar með sverði; auk þess voru hestar yðar fluttir burt hernumdir, og eg lét hrævadauninn úr herbúðum yðar leggja fyrir vit yðar. Og þó hafið þér ekki snúið yður til mín, segir Drottinn.

Eg olli umturnun meðal yðar, eins og þegar Guð umturnaði Sódómu og Gómorru, og þér voruð eins og brandur úr báli dreginn. Og þó hafið þér ekki snúið yður til mín, segir Drottinn.;

Fyrir því vil eg svo með þig fara, Ísrael: — af því að eyætta að fara svo með þig, þá ver viðbúinn að mæta Guði þínum, Ísrael!

Því sjá, hann er sá, sem myndað hefir fjöllin og skapað vindinn, sá sem boðar mönnunum það, er hann hefir í hyggju, sá er gjörir myrkur að morgunroða og gengur eftir hæðum jarðarinnar, — Drottinn, Guð hersveitanna er nafn hans.