Amosbók 2Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpámennirnir

Amosbók 2

Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Móabíta vil eg eigi snúa aftur með það — af því að þeir brendu bein Edómítakonungs að kalki.

Fyrir því vil eg senda eld gegn Móab og hann mun eyða höllum Keríjótborgar. Og Móabitar munu deyja í vopnagný, við heróp og lúðurhljóm;

eg vil afmá stjórnandann meðal þeirra og deyða alla höfðingja þeirra með honum, segir Drottinn.

Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Júdamanna vil eg eigi snúa aftur með það — af því að þeir hafa hafnað lögmáli Drottins og eigi haldið boðorð hans, heldur látið falsgoð sín villa sig, þau er feður þeirra eltu.

Fyrir því vil. eg senda eld gegn Júda og hann mun eyða höllum Jerúsalem.

Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Ísraelsmanna vil eg eigi snúa aftur með það — af því að þeir selja saklausan manninn fyrir silfur og fátæklinginn fyrir eina ilskó,

þeir fíkjast í moldarkornin á höfði hinna snauðu og hrinda aumingjunum í ógæfu; faðir og sonur ganga til kvensniftar, til þess að vanhelga mitt heilaga nafn;

þeir liggja á veðteknum klæðum hjá hverju altari og drekka sektarvín í húsi Guðs síns.

Og þó ruddi eg Amórítum úr vegi þeirra, er svo voru háir sem sedrustré og svo sterkir sem eikitré; eg eyddi ávöxtum þeirra að ofanverðu og rótum þeirra að neðan.

Eg flutti yður út af Egiptalandi og leiddi yður í fjörutíu ár í eyðimörkinni, til þess að þér mættuð eignast land Amóríta.

Eg uppvakti spámenn meðal sona yðar og Nasírea meðal æskumanna yðar. Er þetta eigi svo, Ísraelsmenn? segir Drottinn.

En þér gáfuð Nasíreunum vín að drekka og bönnuðuð spámönnunum að spá!

Sjá, eg vil láta jörðina undir yður líða, eins og vagn riðar, sem hlaðinn er kornkerfum.

Þá skal hinn frái ekki hafa neitt hæli að flýja í og hinn sterki ekki fá neytt krafta sinna og kappinn skal ekki forða mega fjörvi sínu.

Bogmaðurinn skal eigi fá staðist, hinn frái eigi fá komist undan og riddarinn ekki forða mega fjörvi sínu.

Og hinn hugdjarfasti meðal kappanna — nakinn skal hann á þeim degi í burt flýja, segir Drottinn.