Gamla testamentiðSpámennirnir
Orð Amosar, sem var einn af fjárhirðunum í Tekóa, það er honum vitraðist um Ísrael á dögum Ússía Júda-konungs og á dögum Jeróbóams Jóassonar, ísraels-konungs, tveimur árum fýrir jarðskjálftann.
Og hann sagði: Drottinn öskrar frá Zíon og lætur raust sína gjalla frá Jerúsalem. Þá munu hagar hjarðmannanna drúpa og Karmeltindur skrælna.
Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Damaskusborgar vil eg eigi snúa aftur með það — af því að þeir þresktu Gíleað með þreskisleðum úr járni.
Fyrir því mun eg senda eld á hús Hasaels og hann mun eyða höllum Benhadads.
Eg mun brjóta slagbrand Damaskus og útrýma íbúunum úr Glæpadal og þeim, er ber veldissprotann, frá Yndishúsum, og Sýrlendingar skulu herleiddir verða til Kír, segir Drottinn.
Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Gasa vil eg eigi snúa aftur með það — af því að þeir herleiddu heil þorp, til þess að selja í hendur Edómítum.
Fyrir því mun eg senda eld gegn múr Gasa og hann mun eyða höllum hennar.
Eg mun útrýma íbúunum úr Asdód og þeim, er ber veldissprotann, frá Askalon og því næst snúa hendi minni gegn Ekron, til þess að þeir, sem eftir eru af Filistum, skuli undir lok líða, segir Drottinn Guð.
Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Týrusar vil eg eigi snúa aftur með það — af því að þeir seldu heil þorp í hendur Edómítum og mintust ekki bræðra-sáttmálans.
Fyrir því mun eg senda eld gegn múrum Týrusar og hann mun eyða höllum hennar.
Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Edómíta vil eg eigi snúa aftur með það — af því að þeir eltu bræðraþjóð sína með sverði og kæfðu alla meðaumkun, svo að hatur þeirra sundurreif endalaust og þeir geymdu stöðuglega heift sína.
Fyrir því mun eg senda eld gegn Teman og hann mun eyða höllum Bozra.
Svo segir Drottinn: Sökum þriggja, já fjögurra glæpa Ammóníta vil eg eigi snúa aftur með það — af því að þeir ristu á kvið þungaðar konurnar í Gíleað, til þess að færa út landamerki sín.
Fyrir því vil eg kveikja eld í múrum Rabba og hann skal eyða höllum hennar, þegar æpt verður heróp á orustudeginum, þegar stormurinn geisar á degi fellibyljanna.
Og konungur þeirra verður að fara í útlegð með hinum, hann og höfðingjar hans, segir Drottinn.