Kaþólskt Ísland

Kristnitakan

Á Alþingi á Þingvöllum um árið 1000 var lögtekið að allir skyldu vera kristnir og taka skírn.

Í yfirlestri

Kristnir menn voru á Íslandi áður en kristni var lögtekin. Íslendingabók segir að hér hafi verið kristnir menn, sem Norðmenn kölluðu papa, á undan norrænum mönnum og að þeir hafi farið burt; engar áþreifanlegar minjar hafa þó fundist um veru þeirra. Landnámabók nefnir kristna landnámsmenn, meðal annarra Auði djúpúðgu, Örlyg, Ketil fíflska og Helga magra, og segir að niðjar sumra þeirra hafi blótað.

Um atburðinn sjálfan hvílir nánast allt á einni heimild, Íslendingabók. Ari ritaði hana fyrst handa biskupunum Þorláki og Katli, og af því er hún tímasett milli 1122 og 1133, meira en öld eftir kristnitökuna.

Ólafur Tryggvason konungur hafði hótað að láta meiða eða drepa Íslendinga sem voru í Noregi. Gissur hvíti og Hjalti Skeggjason töluðu máli Íslendinga við konunginn.

Á Alþingi á Þingvöllum sögðu kristnir menn og heiðnir sig úr lögum hvorir við aðra á Lögbergi. Kristnir menn báðu þá Hall á Síðu að segja upp lög sín. Hann komst undan því með því að semja við Þorgeir Ljósvetningagoða lögsögumann um að hann segði þau upp, og var Þorgeir þó enn heiðinn. Þorgeir breiddi feld sinn yfir sig og lá undir honum allan daginn og nóttina eftir.

Morguninn eftir bað hann menn ganga til Lögbergs og talaði þar. Hann færði þau rök að sundruð lög myndu rjúfa friðinn í landinu og að allir yrðu því að lúta sömu lögum og sama sið.

Úrskurður hans var sá að allir landsmenn yrðu kristnir og létu skírast. Þrennt var þó undanskilið: menn máttu bera út börn og eta hrossakjöt, og blóta á laun, en það varðaði fjörbaugsgarð ef vottar kæmu að. Fáum árum síðar voru þessar undanþágur afnumdar.

Íslendingabók segir ekki hvar menn voru skírðir. Kristni saga, sem er rituð á 13. öld, segir að Sunnlendingar hafi verið skírðir í Reykjalaug í Laugardal eftir þingið.

Ari tímasetur kristnitökuna út frá falli Ólafs konungs, og deilt er um hvort það var árið 999 eða 1000; því stendur hér „um árið 1000“.

Á kortinu