Föstudagur í 3. viku langaföstu
Virkur dagur á lönguföstu.
Langafasta · Vika 3Litur dagsins er fjólublár — litur undirbúnings og iðrunar.
Hvað þýðir það
Föstudagur — hefð er fyrir því að neita sér um kjöt eða annað.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
Ritningarlestrar þessa dags eru ekki tilgreindir hér.
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Ó, Jesús, líkn og lífið mitt,þú lífið gafst í dauða þitt,til þess að deyða dauða minn,í deyð til lífs því geng ég inn.Þú gráta hlaust, svo gleddist ég,þú gekkst hinn þunga kvalaveg,svo ævi minnar efsta leiðmér yrði heimför sæl og greið.Þú krónu þyrna krýndur varst,af kærleiks nægð þú hana barst,svo djásn ég megi dýrlegt fá,ó, Drottinn minn, þér sjálfum hjá.Þú barst þinn eiginn kvalakross,frá kvölum þegar leystir oss,svo krossburð minn í heimi hérþví hægri létir verða mér.Með hverju get ég þakkað þér?Við þig um allt í skuld ég er.Þú gafst mér lífið góða þitt,ég gef þér hjartað veika mitt. Amen.
Sálmur 51
Andstef · Gegn þér einum hefi ég syndgað, Drottinn; miskunna þú mér.
1Til söngstjórans. Sálmur Davíðs,
2þá er Natan spámaður kom til hans * eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu.
3Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar * afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi.
4Þvo mig hreinan af misgjörð minni * hreinsa mig af synd minni,
5því að ég þekki sjálfur afbrot mín * og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.
6Gegn þér einum hefi ég syndgað og gjört það sem illt er í augum þínum. Því ert þú réttlátur * er þú talar, hreinn, er þú dæmir.
7Sjá, sekur var ég, er ég varð til * syndugur, er móðir mín fæddi mig.
8Sjá, þú hefur þóknun á hreinskilni hið innra * og í fylgsnum hjartans kennir þú mér visku!
9Hreinsa mig með ísóp, svo að ég verði hreinn * þvo mig, svo að ég verði hvítari en mjöll.
10Lát mig heyra fögnuð og gleði * lát kætast beinin sem þú hefur sundurmarið.
11Byrg auglit þitt fyrir syndum * mínum og afmá allar misgjörðir mínar.
12Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð * og veit mér nýjan, stöðugan anda.
13Varpa mér ekki burt frá augliti þínu * og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.
14Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis * og styð mig með fúsleiks anda,
15að ég megi kenna afbrotamönnum vegu þína * og syndarar megi hverfa aftur til þín.
16Frelsa mig frá dauðans háska, Guð hjálpræðis míns * lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu.
17Drottinn, opna varir mínar * svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!
18Þú hefur ekki þóknun á sláturfórnum – annars mundi ég láta þær í té * og að brennifórnum er þér ekkert yndi.
19Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi * sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.
20Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar * reis múra Jerúsalem!
21Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn * þá munu menn bera fram uxa á altari þitt.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Gegn þér einum hefi ég syndgað, Drottinn; miskunna þú mér.
Sálmur — Jer 14, 17-21 — Harmaljóð þjóðarinnar á tímum hungurs og styrjalda
Andstef · Vér þekkjum, Drottinn, yfirsjón vora, að vér höfum syndgað gegn þér.
17Þú skalt tala til þeirra þessi orð: Augu mín skulu fljóta í tárum nótt og dag * og tárin eigi stöðvast, því að mærin, dóttir þjóðar minnar, hefur orðið fyrir ógurlegu áfalli, hefur særð verið al–ólæknandi sári.
18Gangi ég út á völlinn, þá liggja þar þeir, er fallið hafa fyrir sverði, og gangi ég inn í borgina * þá sé ég þar menn dána úr hungri. Já, spámenn og prestar fara um landið og bera ekki kennsl á það.
19Hefir þú þá hafnað Júda algjörlega, eða er sál þín orðin leið á Síon? Hví hefur þú lostið oss svo * að vér verðum eigi læknaðir? Menn vænta hamingju, en ekkert gott kemur, vænta lækningartíma, og sjá, skelfing!
20Vér þekkjum, Drottinn, yfirsjón vora, misgjörð feðra vorra * að vér höfum syndgað gegn þér.
21Fyrirlít eigi, vegna nafns þíns, – óvirð eigi hásæti dýrðar þinnar * minnstu sáttmála þíns við oss og rjúf hann eigi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Vér þekkjum, Drottinn, yfirsjón vora, að vér höfum syndgað gegn þér.
Sálmur 100
Andstef · Drottinn er Guð, vér erum lýður hans og gæsluhjörð.
1Öll veröldin fagni fyrir Drottni!
2Þjónið Drottni með gleði * komið fyrir auglit hans með fagnaðarsöng!
3Vitið, að Drottinn er Guð, hann hefur skapað oss * og hans erum vér, lýður hans og gæsluhjörð.
4Gangið inn um hlið hans með lofsöng * í forgarða hans með sálmum, lofið hann, vegsamið nafn hans.
5Því að Drottinn er góður * miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn er Guð, vér erum lýður hans og gæsluhjörð.
Stuttur ritningarlestur
Jes 53, 11b-12Hinn réttláti, þjónn minn, mun gjöra marga réttláta, og hann mun bera misgjörðir þeirra. Fyrir því gef ég honum hina mörgu að hlutskipti, og hann mun öðlast hina voldugu að herfangi, fyrir það, að hann gaf líf sitt í dauðann og var með illræðismönnum talinn. En hann bar syndir margra og bað fyrir illræðismönnum.
Stutt svarvers
Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.
Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.
Og frá illum tíðindum.
Úr snöru fuglarans.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Hann hefur frelsað mig * úr snöru fuglarans.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Meistari, hvert er æðst allra boðorða? Jesús svaraði honum: Þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Elskuðu bræður (og systur), Þökk sé Kristi Drottni, sem leiddi oss til lífsins með dauða sínum á krossinum. Biðjum hann af öllu hjarta:Reistu oss til lífsins með dauða þínum.Kennari og Frelsari, þú hefur sýnt oss tryggð þína og gjört oss að nýrri sköpun með píslum þínum,vernda oss frá því að syndga á ný.Hjálpa oss að afneita sjálfum oss í dag,en afneita ekki þeim sem líða skort.Megum vér meðtaka þennan dag iðrunar sem gjöf þína,og gefa hann aftur til þín með náðarverkum vorum.Stýrðu þrjóskum hjörtum vorum,og kenn oss örlæti.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum, Drottinn, úthell þú mildilega náð þinni í hjörtu vor, svo að vér forðumst ávallt mannlegar misgjörðir og megnum fyrir gjöf þína að fara eftir himneskri áminningu. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Fyrst boðar Guð sitt blessað náðarorðið,svo býður hann sitt ríka kærleiksborðiðog sendir einkason sinn til að kallatil sinnar kvöldmáltíðar alla – alla.En fyrsti' og annar afsökunar biðja,og eins fer fyrir boðsmanninum þriðja,og það er kunngjört Herra hefðarríkum,að heimsins börn ei sinni boðskap slíkum.Þá spyr hann að, hvort veikir ekki vilji,hvort volaðir og blindir ekki skilji,þá býður hann þeim bjargarlausu' og snauðu,þeim breysku, særðu, föllnu, týndu' og dauðu.Hvert orð er sterkast? Orðið hans, er kallar.Sjá, einnig dauðir ganga lífs til hallar,þeir koma' í hópum, heimurinn sem smáir,en Herrann segir: "Þeir eru' enn of fáir."Hann býður ennþá: "Farið, laðið, leiðið,og leitið, kallið, biðjið, þrýstið, neyðið,mitt kærleiks djúp á himins víðar hallir,í húsi mínu rúmast allir – allir."Fyrst kallar Guð, en bregðist þú því boði,þá biður Guð, og þó að hvorugt stoði,þá þrýstir Guð, og það er síðsta orðið,ef því er neitað, hræðstu sálar morðið!Ó, Drottinn, þú, sem býður, biður, neyðir,ég blindur er, en sonur þinn mig leiðirfrá synd og hættum gegnum dauðans dalinn,í dýrðar þinnar fagra gleðisalinn. Amen.
Sálmur 110, 1-5. 7
Andstef · Engill Drottins flutti Maríu fagnaðarboðskapinn. Og hún fékk getnað af Heilögum Anda, hallelúja.
1Svo segir Drottinn við drottin minn: „Sest þú mér til hægri handar * þá mun ég leggja óvini þína sem fótskör að fótum þér.“
2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon * drottna þú mitt á meðal óvina þinna!
3Þjóð þín kemur sjálfboða á valdadegi þínum. Í helgu * skrauti frá skauti morgunroðans kemur dögg æskuliðs þíns til þín.
4Drottinn hefur svarið, og hann iðrar þess eigi * „Þú ert prestur að eilífu, að hætti Melkísedeks.“
5Drottinn er þér til hægri handar * hann knosar konunga á degi reiði sinnar.
7Á leiðinni drekkur hann úr læknum * þess vegna ber hann höfuðið hátt.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Engill Drottins flutti Maríu fagnaðarboðskapinn. Og hún fékk getnað af Heilögum Anda, hallelúja.
Sálmur 130
Andstef · Óttast þú eigi, María, því að þú hefur fundið náð hjá Guði. Þú munt þunguð verða og son ala og hann mun verða kallaður Sonur hins Hæsta, hallelúja.
1Úr djúpinu ákalla * ég þig, Drottinn,
2Drottinn, heyr þú raust mína * lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína!
3Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum * Drottinn, hver fengi þá staðist?
4En hjá þér er fyrirgefning * svo að menn óttist þig.
5Ég vona á Drottin, sál mín vonar * og hans orðs bíð ég.
6Meir en vökumenn morgun * vökumenn morgun, þreyr sál mín Drottin.
7Ó Ísrael, bíð þú Drottinn, því að hjá Drottni er miskunn * og hjá honum er gnægð lausnar.
8Hann mun leysa Ísrael * frá öllum misgjörðum hans.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Óttast þú eigi, María, því að þú hefur fundið náð hjá Guði. Þú munt þunguð verða og son ala og hann mun verða kallaður Sonur hins Hæsta, hallelúja.
Sálmur — Kól 1, 12-20 — Kristur er frumburður allrar sköpunar og frumburður frá dauðum
Andstef · Ég er ambátt Drottins. Verði mér eftir orðum þínum, hallelúja.
12þakkað föðurnum, sem hefur gjört yður hæfa til * að fá hlutdeild í arfleifð heilagra í ljósinu.
13Hann hefur frelsað oss frá valdi myrkursins og * flutt oss inn í ríki síns elskaða sonar.
14Í honum eigum vér endurlausnina * fyrirgefningu synda vorra.
15Hann er í mynd hins ósýnilega Guðs * frumburður allrar sköpunar.
16Enda var allt skapað í honum í himnunum og á jörðinni, hið sýnilega og hið ósýnilega * hásæti og herradómar, tignir og völd. Allt hefur verið skapað í gegnum hann og fyrir hann.
17Hann er fyrri en allt * og allt á tilveru sína í honum.
18Og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar, hann sem er upphafið * frumburðurinn frá hinum dauðu. Þannig skyldi hann verða fremstur í öllu.
19Því að í honum þóknaðist Guði * að láta alla fyllingu sína búa
20og láta hann koma öllu í sátt við sig, öllu bæði á jörðu og himnum * með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég er ambátt Drottins. Verði mér eftir orðum þínum, hallelúja.
Stuttur ritningarlestur
1Jh 1, 1-2Efni vort er það sem var frá upphafi, það sem vér höfum heyrt, það sem vér höfum séð með augum vorum, það sem vér horfðum á og hendur vorar þreifuðu á, það er orð lífsins. Og lífið var opinberað, og vér höfum séð það og vottum um það og boðum yður lífið eilífa, sem var hjá Föðurnum og var opinberað oss.
Stutt svarvers
Orðið var hold, hann bjó með oss. * Hallelúja, hallelúja.
Orðið var hold, hann bjó með oss. * Hallelúja, hallelúja.
Í upphafi var hann hjá Guði.
Hallelúja, hallelúja.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Orðið var hold, hann bjó með oss. * Hallelúja, hallelúja.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Engillinn sagði við Maríu: Heil sért þú, full náðar! Drottinn er með þér, blessuð ert þú meðal kvenna, hallelúja.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Fullkomnaðu Kirkju þína.Verndaðu páfa vorn N.Styrktu biskup vorn N.Vertu hjá samfélagi biskupa.Hjálpaðu heimilislausum mönnum.Svalaðu hungruðum.Lýstu blindum.Huggaðu gamalt fólk.Styrktu helgaðar meyjar.Kallaðu gyðingaþjóðina til hins nýja sáttmála.Veittu löggjöfum visku.Gefðu styrk mönnum í freistni.Leiddu látna í hið eilífa ljós.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú vildir að orð þitt tæki á sig raunverulegt mannlegt hold í skauti Maríu meyjar. Vér biðjum, veit að vér, sem játum endurlausnara vorn sem Guð og mann, verðskuldum að eiga hlutdeild í guðlegu eðli hans. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
Sálmur 134
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.
2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.
3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007