Þriðjudagur í 30. viku almenns kirkjutíma
Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.
Almennur kirkjutími · Vika 30Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Rómverjabréfið 8:18-25
- Davíðssálmur
- Sálmur 126:1b-2ab, 2cd-3, 4-5, 6
- Guðspjall
- Lúkasarguðspjall 13:18-21
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Allrar veraldar vegurvíkur að sama punkt,fetar þann fús sem tregur,hvort fellur létt eða þungt.Hvorki fyr'ir hefð né valdihopar dauðinn eitt strik,fæst síst með fögru gjaldifrestur um augnablik,allt hann að einu gildir,þótt illa líki' eða vel,bón ei né bræði mildirhans beiska heiftarþel.Menn vaða' í villu og svíma,veit enginn neitt um það,hvernig, á hverjum tímaeða hvar hann kemur að.Einn vegur öllum greiðirinngang í heimsins rann,margbreyttar líst mér leiðirliggi þó út þaðan.Afl dauðans eins nam krenkjaalla í veröld hér.Skal ég þá þurfa að þenkja,hann þyrmi einum mér?Adams er eðli runniðí mitt náttúrlegt hold,ég hef þar og til unniðaftur að verða mold. Amen.
Sálmur 43
Andstef · Send ljós þitt og trúfesti þína, Drottinn.
1Lát mig ná rétti mínum, Guð, berst fyrir málefni mínu gegn miskunnarlausri þjóð * bjarga mér frá svikulum og ranglátum mönnum.
2Því að þú ert sá Guð, sem er mér vígi * hví hefur þú útskúfað mér? hví verð ég að ganga um harmandi, kúgaður af óvinum?
3Send ljós þitt og trúfesti þína, þau skulu leiða mig * þau skulu fara með mig til fjallsins þíns helga, til bústaðar þíns,
4svo að ég megi inn ganga að altari Guðs, til Guðs minnar fagnandi gleði * og lofa þig með gígjuhljómi, ó Guð, þú Guð minn.
5Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð * því að enn mun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Send ljós þitt og trúfesti þína, Drottinn.
Sálmur — Jes 38, 10-14d. 17b-20 — Örvænting sjúkra, gleði heilbrigðra
Andstef · Bjarga oss, Drottinn, alla vora lífdaga.
10Ég sagði: Á hádegi ævi minnar stend ég við dauðans dyr. * Það sem eftir er ára minna er ég ofurseldur hliðum Heljar.
11Ég sagði: Ég fæ eigi framar að sjá Drottin á landi lifenda * ég fæ eigi framar menn að líta meðal þeirra sem heiminn byggja.
12Bústað mínum er kippt upp og svipt burt frá mér eins og hjarðmannatjaldi. Ég hefi undið upp líf mitt * eins og vefari. Hann sker mig frá uppistöðunni. Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.
13Ég þreyði til morguns. Öll mín bein voru kramin eins og af * ljónshrammi. Þú þjáir mig frá því að dagar og þar til nóttin kemur.
14Ég tísti sem svala og kurra sem dúfa. Augu mín mæna til himins. Drottinn * ég er í nauðum, líkna þú mér.
17Sjá, til blessunar varð mér hin sára kvöl. Þú forðaðir sál minni frá gröf eyðingarinnar * því að þú varpaðir að baki þér öllum syndum mínum.
18Hel vegsamar þig eigi * dauðinn lofar þig eigi. Þeir sem niður eru stignir í gröfina vona eigi á trúfesti þína.
19En sá einn lofar þig, sem lifir * eins og ég í dag. Feður kunngjöra börnum sínum trúfesti þína.
20Drottinn er mitt hjálpræði. Í húsi Drottins * skulum vér því hreyfa strengina alla vora lífdaga.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Bjarga oss, Drottinn, alla vora lífdaga.
Sálmur 65
Andstef · Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon!
1Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð.
2Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon * og við þig séu heitin efnd.
3Þú sem heyrir bænir * til þín kemur allt hold.
4Margvíslegar misgjörðir urðu mér yfirsterkari * en þú fyrirgafst afbrot vor.
5Sæll er sá er þú útvelur og lætur nálægjast þig til þess að búa í forgörðum þínum * að vér megum seðjast af gæðum húss þíns, helgidómi musteris þíns.
6Með óttalegum verkum svarar þú oss í réttlæti * þú Guð hjálpræðis vors, þú athvarf allra jarðarinnar endimarka og fjarlægra stranda,
7þú sem festir fjöllin með krafti þínum * gyrtur styrkleika,
8þú sem stöðvar brimgný hafsins * brimgnýinn í bylgjum þess og háreystina í þjóðunum,
9svo að þeir er búa við endimörk jarðar óttast tákn þín * austrið og vestrið lætur þú fagna.
10Þú hefur vitjað landsins og vökvað það, blessað það ríkulega með læk Guðs, fullum af vatni * þú hefur framleitt korn þess, því að þannig hefur þú gjört það úr garði.
11Þú hefur vökvað plógför þess, jafnað plóggarða þess * með regnskúrum hefur þú mýkt það, blessað gróður þess.
12Þú hefur krýnt árið með gæsku þinni * og vagnspor þín drjúpa af feiti.
13Það drýpur af heiðalöndunum * og hæðirnar girðast fögnuði.
14Hagarnir klæðast hjörðum * og dalirnir hyljast korni. Allt fagnar og syngur.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þér ber lofsöngur, Guð, á Síon!
Stuttur ritningarlestur
1Þ 5, 4-5Þér, bræður, eruð ekki í myrkri, svo að dagurinn geti komið yfir yður sem þjófur. Þér eruð allir synir ljóssins og synir dagsins. Vér heyrum ekki nóttunni til né myrkrinu.
Stutt svarvers
Heyr hróp mitt, Drottinn, * á orð þitt vona ég.
Heyr hróp mitt, Drottinn, * á orð þitt vona ég.
Á morgnana kemur bæn mín fyrir þig.
Á orð þitt vona ég.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Heyr hróp mitt, Drottinn, * á orð þitt vona ég.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, úr höndum allra, er hata oss.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Lofum Frelsara vorn, en vegna upprisu hans kom líf og ljós í heiminn. Biðjum hann auðmjúk og segjum:Varðveit oss, Drottinn, í sannleika þínum.Í morgunbæn vorri minnumst vér upprisu þinnar,megi vonin um dýrð þína lýsa oss í dag.Tak, Drottinn, við heitum vorum og áformum,þau séu frumgróðafórn vor í dag.Gef að vér í dag vöxum í kærleika til þín,svo að allir starfi saman að því sem gott er oss og öllum mönnum.Gef, Drottinn, að ljós vort lýsi öllum mönnum,svo að þeir sjái að verk vor eru góð og Föðurnum til dýrðar.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Drottinn Jesús Kristur, þú ert hið sanna ljós er lýsir öllum mönnum til hjálpræðis. Vér biðjum þig að veita oss styrk, til að búa þér veg friðar og réttlætis. Því að þú ert Guð, sem lifir og ríkir með Guði Föður, í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Ef þú áforma vildireitthvað, sem vandi' er á,þarfleg ráð þiggja skyldirog þig vel fyrir sjá,af því oftlega sker:Sá, sem er einn í ráðum,einn mætir skaða bráðum,seint þá að iðrast er.En með því mannleg viskaí mörgu náir skammt,á allt kann ekki' að giska,sem er þó vandasamt,kost þann hinn besta kjós:Guðs orð fær sýnt og sannað,hvað sé þér leyft og bannað,það skal þitt leiðarljós. Amen.
Sálmur 49 I
Andstef · Þér getið ekki þjónað bæði Guði og Mammon.
2Heyrið þetta, allar þjóðir * hlustið á, allir heimsbúar,
3bæði lágir og háir * jafnt ríkir sem fátækir!
4Munnur minn talar speki * og ígrundun hjarta míns er hyggindi.
5Ég hneigi eyra mitt að spakmæli * ræð gátu mína við hörpuhljóm.
6Hví skyldi ég óttast á mæðudögunum * þá er hinir lævísu óvinir mínir umkringja mig með illsku,
7þeir sem reiða sig á auðæfi sín * og stæra sig af sínu mikla ríkidæmi.
8Enginn maður fær keypt bróður sinn * lausan né greitt Guði lausnargjald fyrir hann.
9Lausnargjaldið fyrir sál þeirra mundi verða of hátt * svo að hann yrði að hætta við það að fullu,
10ætti hann að halda áfram að * lifa ævinlega og líta ekki í gröfina.
11Nei, hann sér, að vitrir menn deyja * að fífl og fáráðlingar farast hver með öðrum og láta öðrum eftir auðæfi sín.
12Grafir verða heimkynni þeirra að eilífu, bústaðir þeirra frá kyni til kyns * jafnvel þótt þeir hafi kennt lendur við nafn sitt.
13Maðurinn í allri sinni vegsemd stenst ekki * hann verður jafn skepnunum sem farast.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þér getið ekki þjónað bæði Guði og Mammon.
Sálmur 49 II
Andstef · Svo segir Drottinn: Safnið yður fjársjóði á himnum.
14Svo fer þeim sem eru þóttafullir * og þeim sem fylgja þeim og hafa þóknun á tali þeirra. [Sela]
15Þeir stíga niður til Heljar eins og sauðahjörð, dauðinn heldur þeim á beit * og hinir hreinskilnu drottna yfir þeim, þá er morgnar, og mynd þeirra eyðist, Hel verður bústaður þeirra.
16En mína sál mun Guð endurleysa * því að hann mun hrífa mig úr greipum Heljar. [Sela]
17Óttast þú ekki, þegar einhver verður ríkur * þegar dýrð húss hans verður mikil,
18því að hann tekur ekkert af því með sér * þegar hann deyr, auður hans fer ekki niður þangað á eftir honum.
19Hann telur sál sína sæla meðan hann lifir * „Menn lofa þig, af því að þér farnast vel.“
20– Hann verður þó að fara til kynslóðar feðra sinna * sem aldrei að eilífu sjá ljósið.
21Maðurinn í vegsemd, en hyggindalaus * verður jafn skepnunum sem farast.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Svo segir Drottinn: Safnið yður fjársjóði á himnum.
Sálmur — Opb 4, 11; 5, 9. 10. 12 — Þakkarljóð hinna endurleystu
Andstef · Maklegt er Lambið, sem slátrað var, að fá heiður og dýrð.
11Verður ert þú, Drottinn vor og Guð, að fá dýrðina og heiðurinn og máttinn * því að þú hefur skapað alla hluti, og fyrir þinn vilja urðu þeir til og voru skapaðir.
9Og þeir syngja nýjan söng: Verður ert þú að taka við bókinni og ljúka upp innsiglum hennar * því að þér var slátrað og þú keyptir menn Guði til handa með blóði þínu af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.
10Og þú gjörðir þá, Guði vorum til handa * að konungsríki og prestum. Og þeir munu ríkja á jörðunni.
12Þeir sögðu með hárri röddu: Maklegt er lambið hið slátraða að fá máttinn og ríkdóminn * visku og kraft, heiður og dýrð og lofgjörð.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Maklegt er Lambið, sem slátrað var, að fá heiður og dýrð.
Stuttur ritningarlestur
Rm 3, 23-25aAllir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð, og réttlætast án verðskuldunnar af náð hans fyrir endurlausnina, sem er í Kristi Jesú. Guð setti hann fram, að hann með blóði sínu væri sáttarfórn þeim sem trúa.
Stutt svarvers
Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, * gleðignótt er fyrir augliti þínu.
Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, * gleðignótt er fyrir augliti þínu.
Yndi í hægri hendi þinni, að eilífu.
Gleðignótt er fyrir augliti þínu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Kunnan gjörir þú mér veg lífsins, * gleðignótt er fyrir augliti þínu.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Drottinn, hinn máttugi, hefur gjört mikla hluti við oss, og heilagt er nafn hans.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, bænheyr þú oss.Minnstu Kirkju þinnar.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Gef að bær vor þróist(borg vor).Endurgjaltu velgjörðamönnum vorum.Varðveittu hjón í samheldni.Vertu ráðgjafi trúlofaðra.Hjálpaðu atvinnulausum að finna vinnu.Hjálpaðu fátækum.Verndaðu ofsótta.Snúðu öllum villuráfandi til iðrunar.Gef látnum eilífa dýrð.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Drottinn Guð, þínir eru dagarnir, þínar eru næturnar. Veit að Kristur, sól réttlætisins, dvelji í hjörtum vorum, svo að vér fáum komist til ljóssins er þú býrð í. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 143, 1-11
Andstef · Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, því ég treysti þér.
1Drottinn, heyr þú bæn mína * ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu.
2Gakk eigi í dóm við þjón þinn * því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.
3Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar * lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.
4Andi minn örmagnast í mér * hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.
5Ég minnist fornra daga * íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.
6Ég breiði út hendurnar í móti þér * sál mín er sem örþrota land fyrir þér. [Sela]
7Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér * svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.
8Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg * er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.
9Frelsa mig frá óvinum mínum * Drottinn, ég flý á náðir þínar.
10Kenn mér að gjöra vilja þinn * því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.
11Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns * leið sál mína úr nauðum sakir réttlætis þíns.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, því ég treysti þér.
Stuttur ritningarlestur
1Pt 5, 8-9aVerið algáðir, vakið. Óvinur yðar, djöfullinn, gengur um sem öskrandi ljón, leitandi að þeim, sem hann geti gleypt. Standið gegn honum stöðugir í trúnni.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Miskunnsami Drottinn, hrek á brott myrkur þessarar nætur og lát heimili þitt sofa í friði, svo að við dögun fái það fyllt gleði að vakna í þínu nafni. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007