Gamla testamentiðSpeki og ljóð
Helgifaraljóð. Þegar Drottinn sneri við hag Zíonar, þá var sem oss dreymdi.
Þá fyllist munnur vor hlátri og tungur vorar fögnuði; þá sögðu menn meðal heiðingjanna: »Mikla hluti hefir Drottinn gjört við þá«.
Drottinn hefir gjört mikla hluti við oss, vér vorum glaðir.
Snú við, Drottinn, hag vorum, eins og þú gjörir við lækina í suðurlandinu.
Þeir, sem sá með tárum, munu uppskera með gleðisöng;
grátandi fara menn og bera sæðið til sáningar, með gleðisöng koma þeir aftur og bera kornbundin heim.