Saltarinn 127Krans-útgáfa

Gamla testamentiðSpeki og ljóð

Saltarinn 127

Helgifaraljóð. Eftir Salómó. Ef Drottinn byggir ekki húsið, erfiða smiðirnir til ónýtis; ef Drottinn verndar eigi borgina, vakir vörðurinn til ónýtis.

Það er til ónýtis fyrir yður, þér sem snemma rísið og gangið seint til hvíldar og etið brauð, sem aflað er með striti: svo gefur hann ástvinum sínum í svefni!

Sjá, synir eru gjöf frá Drottni, ávöxtur kviðarins er umbun.

Eins og örvar í hendi kappans, svo eru synir getnir í æsku.

Sæll er sá maður, er fylt hefir örvamæli sinn með þeim, þeir verða eigi til skammar, er þeir tala við óvini sína Í borgarhliðinu.