Laugardagur í 24. viku almenns kirkjutíma
Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.
Almennur kirkjutími · Vika 24Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- 1. Tímóteusarbréf 6:13-16
- Davíðssálmur
- Sálmur 100:1b-2, 3, 4, 5
- Guðspjall
- Lúkasarguðspjall 8:4-15
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Þar tignartindi áég tjald vil gera,þar góðum Guði hjáer gott að veraog ummyndast og búast björtum klæðumog öðlast eilíft skart,með andlit sólarbjart,á helgum hæðum.Ég bjart lít blika skýá banadegi,raust heyri eg þar í:"Minn elskulegi"!Þá skyggir dauðans ský á lífsins blóma,mig enginn ótti slær,mér einn er Jesús nærí ljóssins ljóma. Amen.
Sálmur 92
Andstef · Gott er að lofsyngja nafni þínu, þú Hinn hæsti, að kunngjöra miskunn þína að morgni.
1Sálmur. Hvíldardagsljóð.
2Gott er að lofa Drottin og lofsyngja nafni þínu * þú Hinn hæsti,
3að kunngjöra miskunn þína að * morgni og trúfesti þína um nætur
4á tístrengjað hljóðfæri og * hörpu með strengjaleik gígjunnar.
5Þú hefur glatt mig, Drottinn * með dáð þinni, yfir handaverkum þínum fagna ég.
6Hversu mikil eru verk þín * Drottinn, harla djúpar hugsanir þínar.
7Fíflið eitt skilur eigi * og fáráðlingurinn einn skynjar eigi þetta.
8Þegar óguðlegir greru sem gras og allir illgjörðamennirnir blómguðust * þá var það til þess að þeir skyldu afmáðir verða að eilífu,
9en þú sem ert á hæðum * ert til að eilífu, Drottinn.
10Því sjá, óvinir þínir, Drottinn, því sjá * óvinir þínir farast, allir illgjörðamennirnir tvístrast.
11En mig lætur þú bera hornið hátt eins og vísundinn * mig hressir þú með ferskri olíu.
12Auga mitt lítur með gleði á fjandmenn mína * eyra mitt heyrir með gleði um níðingana, er rísa gegn mér.
13Hinir réttlátu gróa sem pálminn * vaxa sem sedrustréð á Líbanon.
14Þeir eru gróðursettir í húsi Drottins * gróa í forgörðum Guðs vors.
15Jafnvel í hárri elli bera þeir ávöxt * þeir eru safamiklir og grænir.
16Þeir kunngjöra, að Drottinn er réttlátur * klettur minn, sem ekkert ranglæti er hjá.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Gott er að lofsyngja nafni þínu, þú Hinn hæsti, að kunngjöra miskunn þína að morgni.
Sálmur — Esk 36, 24-28 — Drottinn endurnýjar þjóð sína
Andstef · Ég mun gefa yður nýtt hjarta og leggja yður nýjan anda í brjóst.
24Ég mun sækja yður til þjóðanna og saman safna yður * úr öllum löndum og flytja yður inn í yðar land.
25Ég mun stökkva hreinu vatni á yður, svo að þér verðið hreinir * ég mun hreinsa yður af öllum óhreinindum yðar og skurðgoðum.
26Og ég mun gefa yður nýtt hjarta og leggja yður nýjan anda í brjóst * og ég mun taka steinhjartað úr líkama yðar og gefa yður hjarta af holdi.
27Og ég mun leggja yður anda minn í brjóst og koma því til vegar * að þér hlýðið boðorðum mínum og varðveitið setninga mína og breytið eftir þeim.
28Og þér skuluð búa í landinu, sem ég gaf feðrum yðar * og þér skuluð vera mín þjóð og ég skal vera yðar Guð.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Ég mun gefa yður nýtt hjarta og leggja yður nýjan anda í brjóst.
Sálmur 8
Andstef · Af munni barna og brjóstmylkinga hefur þú gjört þér vígi.
1Til söngstjórans. Á gittít. Davíðssálmur.
2Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt * um alla jörðina! Þú breiðir ljóma þinn yfir himnana.
3Af munni barna og brjóstmylkinga hefur þú gjört þér vígi til varnar gegn óvinum þínum * til þess að þagga niður í hefndargirni óvinarins.
4Þegar ég horfi á himnana, verk handa þinna * tunglið og stjörnurnar, er þú hefur skapað,
5hvað er þá maðurinn þess, að þú minnist hans * og mannsins barn, að þú vitjir þess?
6Þú lést hann verða litlu minni en Guð * með sæmd og heiðri krýndir þú hann.
7Þú lést hann ríkja yfir handaverkum þínum * allt lagðir þú að fótum hans:
8sauðfénað allan og uxa * og auk þess dýr merkurinnar,
9fugla loftsins og fiska hafsins * allt það er fer hafsins vegu.
10Drottinn, Guð vor * hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Af munni barna og brjóstmylkinga hefur þú gjört þér vígi.
Stuttur ritningarlestur
2Pt 3, 13-15aEftir fyrirheiti hans væntum vér nýs himins og nýrrar jarðar, þar sem réttlæti býr. Með því að þér nú, þér elskuðu, væntið slíkra hluta, þá kappkostið að vera flekklausir og lýtalausir frammi fyrir honum í friði. Álítið langlyndi Drottins vors vera hjálpræði.
Stutt svarvers
Varir mínar skulu fagna, * er ég leik fyrir þér.
Varir mínar skulu fagna, * er ég leik fyrir þér.
Þá skal og tunga mín tala um réttlæti þitt,
er ég leik fyrir þér.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Varir mínar skulu fagna, * er ég leik fyrir þér.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Bein, Drottinn, fótum vorum á friðarveg.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Tilbiðjum Guð, sem í Syni sínum gaf heimi líf og von. Biðjum hann í auðmýkt:Heyr oss, Drottinn.Drottinn, Faðir alls, þú hefur leitt oss til þessa morguns,gef oss að lifa með Kristi dýrð þinni til lofs.Lát trú, von og kærleikadvelja stöðugt í hjörtum vorum.Gef að vér hefjum augu vor sífellt til þín,svo að vér séum viðbúin kalli þínu.Bjarga oss frá vélráðum og freistingum hins illa,og varðveit stigu vora frá öllum árásum.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi eilífi Guð, þú ert geisli hins sanna ljóss og ævarandi dagur. Megi lofgjörð vor hverfa til þín svo að hugir vorir frjálsir frá myrkri syndarinnar, ljómi af geisla komu þinnar. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Líknargjafinn þjáðra þjóða,þú, sem kyrrir vind og sjó,ættjörð vor í ystu höfumundir þinni miskunn bjó.Vertu með oss, vaktu hjá oss,veittu styrk og hugarró.Þegar boðinn heljar hækkar,Herra, lægðu vind og sjó.Föðurland vort hálft er hafið,helgað þúsund feðra dáð.Þangað lífsbjörg þjóðin sótti,þar mun verða stríðið háð.Yfir logn og banabylgjubjarmi skín af Drottins náð.Föðurland vort hálft er hafið,hetjulífi' og dauða skráð.Þegar brotnar bylgjan þunga,brimið heyrist yfir fjöll,þegar hendir sorg við sjóinn,syrgir, tregar þjóðin öll,vertu ljós og leiðarstjarna,lægðu storm og boðaföll,líknargjafinn þjáðra þjóða,þegar lokast sundin öll. Amen.
Sálmur 141, 1-9
Andstef · Drottinn, bæn mín sé borin sem reykelsisfórn fram fyrir auglit þitt.
1Drottinn, ég ákalla þig, skunda þú til mín * ljá eyra raust minni, er ég ákalla þig.
2Bæn mín sé fram borin sem reykelsisfórn fyrir auglit þitt * upplyfting handa minna sem kvöldfórn.
3Set þú, Drottinn, vörð fyrir munn minn * gæslu fyrir dyr vara minna.
4Lát eigi hjarta mitt hneigjast að neinu illu * að því að fremja óguðleg verk með illvirkjum, og lát mig eigi eta krásir þeirra.
5Þótt réttlátur maður slái mig og trúaður hirti mig * mun ég ekki þiggja sæmd af illum mönnum. Bæn mín stendur gegn illsku þeirra.
6Þegar höfðingjum þeirra verður hrundið niður af kletti * munu menn skilja, að orð mín voru sönn.
7Eins og menn höggva við og kljúfa á jörðu * svo skal beinum þeirra tvístrað við gin Heljar.
8Til þín, Drottinn, mæna augu mín * hjá þér leita ég hælis, sel þú eigi fram sál mína.
9Varðveit mig fyrir gildru þeirra * er sitja um mig, og fyrir snörum illvirkjanna.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn, bæn mín sé borin sem reykelsisfórn fram fyrir auglit þitt.
Sálmur 142
Andstef · Þú ert hæli mitt, Drottinn, hlutdeild mín á landi lifenda.
1Maskíl eftir Davíð * er hann var í hellinum. Bæn.
2Ég hrópa hátt til Drottins * hástöfum grátbæni ég Drottinn.
3Ég úthelli kveini mínu fyrir honum * tjái honum neyð mína.
4Þegar andi minn örmagnast í mér * þekkir þú götu mína. Á leið þeirri er ég geng hafa þeir lagt snörur fyrir mig.
5Ég lít til hægri handar og skyggnist um * en enginn kannast við mig. Mér er varnað sérhvers hælis, enginn spyr eftir sál minni.
6Ég hrópa til þín, Drottinn, ég segi * Þú ert hæli mitt, hlutdeild mín á landi lifenda.
7Veit athygli kveini mínu, því að ég er mjög þjakaður * bjarga mér frá ofsækjendum mínum, því að þeir eru mér yfirsterkari.
8Leið sál mína út úr dýflissunni, að ég megi lofa nafn þitt * hinir réttlátu skipast í kringum mig, þegar þú gjörir vel til mín.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þú ert hæli mitt, Drottinn, hlutdeild mín á landi lifenda.
Sálmur — Fil 2, 6-11 — Um Krist, þjónn Guðs
Andstef · Drottinn Jesús lægði sjálfan sig og fyrir því hefur og Guð að eilífu hátt upphafið hann.
6Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki * með það sem feng sinn að vera Guði líkur.
7Hann svipti sig öllu * tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur.
8Hann kom fram sem maður * lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi.
9Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið * sem hverju nafni er æðra,
10til þess að í nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni * jörðu og undir jörðu
11og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar * Jesús Kristur er Drottinn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn Jesús lægði sjálfan sig og fyrir því hefur og Guð að eilífu hátt upphafið hann.
Stuttur ritningarlestur
Rm 11, 33-36Hvílíkt djúp ríkdóms, speki og þekkingar Guðs! Hversu órannsakandi dómar hans og órekjandi vegir hans! Hver hefur þekkt huga Drottins? Eða hver hefur verið ráðgjafi hans? Hver hefur að fyrra bragði gefið honum, svo að það eigi að verða honum endurgoldið? Því að frá honum og fyrir hann og til hans eru allir hlutir. Honum sé dýrð um aldir alda! Amen.
Stutt svarvers
Hversu dásamleg eru * verkin þín, Drottinn.
Hversu dásamleg eru * verkin þín, Drottinn.
Þú gjörðir þau öll með speki.
Verkin þín, Drottinn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Hversu dásamleg eru * verkin þín, Drottinn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Hver sem vill vera fremstur sé síðastur allra og þjónn allra.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, hjálpaðu lýð þínum.Leiddu mannkynið með starfi Kirkjunar til einingar.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn með blessun þinni N.Leiddu djákna með Anda þínum.Helgaðu trúaða.Vertu ráðgjafi handverksmanna.Leiddu ríka til að nota eigur sínar rétt.Verndaðu veika.Frelsaðu bandingja.Vernda oss frá jarðhræringum.Verndaðu oss frá óvæntum dauða.Veittu látnum alsæla sýn auglits þíns.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Guð, þú hefur gjört kærleikann til þín og náungans að grundvelli hins heilaga lögmáls. Veit oss að verðskulda eilíft líf með því að gæta boðorða þinna. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 4
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa, þú Guð réttlætis míns! Þá er að mér kreppti * rýmkaðir þú um mig, ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán? Hversu * lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um, að Drottinn sýnir mér dásamlega náð * að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki. Hugsið yður um * í hvílum yðar og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir * og treystið Drottinn.
7Margir segja: „Hver lætur oss hamingju líta?“ * Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefur veitt hjarta mínu meiri gleði * en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna * því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Miskunna mér, Drottinn, og heyr bæn mína.
Sálmur 134
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
1Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottni * þér er standið í húsi Drottins um nætur.
2Fórnið höndum til * helgidómsins og lofið Drottin.
3Drottinn blessi þig frá Síon * hann sem er skapari himins og jarðar.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofsyngjum Drottni að nóttu.
Stuttur ritningarlestur
5M 6, 4-7Heyr Ísrael! Drottinn er vor Guð; hann einn er Drottinn! Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Þessi orð, sem ég legg fyrir þig í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum og tala um þau þegar þú ert heima og þegar þú ert á ferðalagi, þegar þú leggst til hvíldar og þegar þú ferð á fætur.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Vitja oss nú í nótt, Drottinn, svo að fyrir styrkveitingu þína fáum vér risið við dögun til að fagna upprisu Krists, Sonar þíns, sem með þér lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007