Dagatal

Þriðjudagur í 3. viku aðventu

Virkur dagur á aðventu.

Aðventa · Vika 3

Litur dagsins er fjólublár — litur undirbúnings og iðrunar.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Gjör dyrnar breiðar, hliðið hátt.Þú, Herrans kristni, fagna mátt,því kóngur dýrðar kemur hérog kýs að eiga dvöl hjá þér.Hann býður líknar blessað ár,hann býður dýpst að græða sár,hann býður þyngstu' að borga sekt,hann býður aumra' að skýla nekt.Sjá, mildi' er lögmál lausnarans,sjá, líkn er veldissproti hans.Því kom þú, lýður kristinn, núog kóngi dýrðar fagna þú.Hve sælt það land, hve sælt það hús,er sælugjafinn líknarfússér trútt og hlýðið fundið fær,þar friður, heill og blessun grær.Hve sælt það hjarta ávallt er,sem ást til Krists með lotning berog honum í sér bústað býr,að bragði sorg öll þaðan flýr. Amen.

Sálmur 85

Andstef · Þú hefur blessað land þitt, Drottinn, þú hefur fyrirgefið misgjörðir lýðs þíns.

1Til söngstjórans. Kóraíta–sálmur.

2Þú hefur haft þóknun á landi þínu * Drottinn, snúið við hag Jakobs,

3þú hefur fyrirgefið misgjörð lýðs þíns * hulið allar syndir þeirra. [Sela]

4Þú hefur dregið að þér alla bræði þína * látið af heiftarreiði þinni.

5Snú þér til vor aftur, þú Guð hjálpræðis vors * og lát af gremju þinni í gegn oss.

6Ætlar þú að vera oss reiður um eilífð * láta reiði þína haldast við frá kyni til kyns?

7Vilt þú eigi láta oss lifna við aftur * svo að lýður þinn megi gleðjast yfir þér?

8Lát oss, Drottinn * sjá miskunn þína og veit oss hjálpræði þitt!

9Ég vil hlýða á það sem Guð Drottins talar. Hann talar frið til lýðs síns og til dýrkenda sinna og til þeirra * er snúa hjarta sínu til hans.

10Já, hjálp hans er nálæg þeim er óttast hann * og vegsemdir munu búa í landi voru.

11Elska og trúfesti mætast * réttlæti og friður kyssast.

12Trúfesti sprettur upp úr jörðunni * og réttlæti lítur niður af himni.

13Þá gefur og Drottni gæði * og land vort veitir afurðir sínar.

14Réttlæti fer fyrir honum * og friður fylgir skrefum hans.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Þú hefur blessað land þitt, Drottinn, þú hefur fyrirgefið misgjörðir lýðs þíns.

Sálmur — Jes 26, 1-4. 7-9. 12 — Sigursöngur yfir fjandmönnum

Andstef · Af hjarta þrái ég þig á næturnar, með andanum í brjósti mínu skima ég eftir þér.

1Á þeim degi mun þetta kvæði sungið verða í Júdalandi * Vér eigum rammgerva borg. Hjálpræði sitt gjörir hann að múrum og varnarvirki.

2Látið upp hliðin, svo að réttlátur lýður megi inn ganga * sá er trúnaðinn varðveitir

3og hefur stöðugt hugarfar. Þú veitir ævarandi frið * því að þeir treysta á þig.

4Treystið Drottinn æ og ætíð * því að Drottinn, Drottinn er eilíft bjarg.

7Vegur hins réttláta er sléttur * götu hins réttláta ryður þú.

8Já, á vegi dóma þinna, Drottinn, væntum vér þín * þitt nafn og þína minning þráir sála vor.

9Sál mín þráir ég þig á næturnar, já * með andanum í brjósti mínu skima ég eftir þér. Þegar dómar þínir birtast á jörðu, þá læra byggjendur jarðríkis réttlæti.

12Drottinn, veit þú oss frið * því að þú hefur látið oss gjalda allra vorra verka.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Af hjarta þrái ég þig á næturnar, með andanum í brjósti mínu skima ég eftir þér.

Sálmur 67

Andstef · Lát ásjónu þína lýsa meðal vor, Drottinn.

1Til söngstjórans. Með * strengjaleik. Sálmur. Ljóð.

2Guð sé oss náðugur og blessi oss * hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor, [Sela]

3svo að þekkja megi veg þinn á * jörðunni og hjálpræði þitt meðal allra þjóða.

4Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð * þig skulu gjörvallir lýðir lofa.

5Gleðjast og fagna skulu þjóðirnar * því að þú dæmir lýðina réttvíslega og leiðir þjóðirnar á jörðunni. [Sela]

6Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð * þig skulu gjörvallir lýðir lofa.

7Jörðin hefur gefið ávöxt sinn * Guð, vor Guð, blessar oss.

8Guð blessi oss * svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Lát ásjónu þína lýsa meðal vor, Drottinn.

Stuttur ritningarlestur

1M 49, 10Ekki mun veldissprotinn víkja frá Júda, né ríkisvöndurinn frá fótum hans, uns sá kemur, er valdið hefur, og þjóðirnar ganga honum á hönd.

Stutt svarvers

Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Þú munt sjá dýrð hans í þér:

Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ljós þitt mun koma, Jerúsalem, * Drottinn mun birtast í dýrðarljóma.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Rís upp, rís upp! Vakna af blundi Jerúsalem; hrist hlekkina af hálsi þér, fangin dóttir Síon.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Guð, Faðir almáttugur mun rétta fram hönd sína til að frelsa þá sem eftir lifa af lýð hans. Biðjum til hans:Drottinn, komi ríki þitt.Drottinn, gef að yfirbótarverk vor megi þóknast þér,og vér séum reiðubúin fyrir ríki þitt sem er svo nærri.Gjör veg í hjörtum vorum reiðubúinn fyrir komu Orðs þíns,og lát dýrð Hans opinberast meðal vor.Lát fjöll drambsemi vorrar lægjast,og dali veikleika vorra fyllast.Brjót niður múra haturs sem aðskilur þjóðirnar,og gjör veg mannkynsins til friðar greiðan.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, með þínum eingetna Syni hefur þú gert oss að nýju sköpunarverki, lít með náð á verk miskunnsemi þinnar, hreinsa brott allar fornar ávirðingar vorar við komu Sonar þíns. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Slá þú hjartans hörpu strengi,hrær hvern streng sem ómað fær.Hljómi skært og hljómi lengihósíanna nær og fjær.Hvert þitt innsta æðarslagómi' af gleði þennan dag.Konungurinn konungannakemur nú til sinna manna.Ríki hans um allar álfurómælanda geimsins nær.Hásætið er himinn sjálfur,hallarprýði sólin skær,fótskör hans hin fagra jörð,fylgdin hans er englahjörð.Skrúða ljóssins skrýddur er hann,skíra lífsins krónu ber hann.Hann, þótt æðst í hátign ljómi,hógvær kemur alls staðar.Hjarta þitt að helgidómihann vill gjöra' og búa þar.Opna glaður hjartans hús,hýs hinn tigna gestinn fús.Getur nokkuð glatt þig fremur:Guð þinn sjálfur til þín kemur. Amen.

Sálmur 125

Andstef · Drottinn er kringum lýð sinn.

1Þeir sem treysta Drottni eru sem Síonfjall * er eigi bifast, sem stendur að eilífu.

2Fjöll eru kringum Jerúsalem * og Drottins er kringum lýð sinn héðan í frá og að eilífu.

3Því að veldissproti guðleysisins mun eigi hvíla á landi réttlátra * til þess að hinir réttlátu skuli eigi rétta fram hendur sínar til ranglætis.

4Gjör þú góðum vel til * Drottinn, og þeim sem hjartahreinir eru.

5En þá er beygja á krókóttar leiðir mun * Drottinn láta hverfa með illgjörðamönnum. Friður sé yfir Ísrael!

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn er kringum lýð sinn.

Sálmur 131

Andstef · Nema þér snúið við og verðið eins og börn, komist þér aldrei í himnaríki.

1Drottinn, hjarta mitt er eigi dramblátt né augu mín hrokafull. Ég fæst eigi við mikil málefni * né þau sem mér eru ofvaxin.

2Sjá, ég hefi sefað sál mína og þaggað niður í henni. Eins og afvanið barn hjá móður sinni * svo er sál mín í mér.

3Vona, Ísrael, á Drottin * héðan í frá og að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Nema þér snúið við og verðið eins og börn, komist þér aldrei í himnaríki.

Sálmur — Opb 4, 11; 5, 9. 10. 12 — Þakkarljóð hinna endurleystu

Andstef · Drottinn, þú gjörðir oss, Guði vorum til handa, að konungsríki og prestum.

11Verður ert þú, Drottinn vor og Guð, að fá dýrðina og heiðurinn og máttinn * því að þú hefur skapað alla hluti, og fyrir þinn vilja urðu þeir til og voru skapaðir.

9Og þeir syngja nýjan söng: Verður ert þú að taka við bókinni og ljúka upp innsiglum hennar * því að þér var slátrað og þú keyptir menn Guði til handa með blóði þínu af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.

10Og þú gjörðir þá, Guði vorum til handa * að konungsríki og prestum. Og þeir munu ríkja á jörðunni.

12Þeir sögðu með hárri röddu: Maklegt er lambið hið slátraða að fá máttinn og ríkdóminn * visku og kraft, heiður og dýrð og lofgjörð.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, þú gjörðir oss, Guði vorum til handa, að konungsríki og prestum.

Stuttur ritningarlestur

Sbr. 1Kor 1, 7b-9Vér væntum opinberunar Drottins vors Jesú Krists. Hann mun gjöra yður staðfasta allt til enda, óásakanlega á degi Drottins vors Jesú Krists. Trúr er Guð, sem yður hefur kallað til samfélags Sonar síns.

Stutt svarvers

Kom þú og frelsa oss, * Drottinn, Guð allsherjar.

Kom þú og frelsa oss, * Drottinn, Guð allsherjar.

Lát ásjónu þína skína yfir oss og vér munum frelsast.

Drottinn, Guð allsherjar.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Kom þú og frelsa oss, * Drottinn, Guð allsherjar.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Áður en María og Jósef komu saman, reyndist hún þunguð af Heilögum Anda, hallelúja.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, bænheyr þú oss.Minnstu Kirkju þinnar.Verndaðu páfa vorn N.Hjálpaðu biskupi vorum N.Gef að bær vor þróist(borg vor).Endurgjaltu velgjörðamönnum vorum.Varðveittu hjón í samheldni.Vertu ráðgjafi trúlofaðra.Hjálpaðu atvinnulausum að finna vinnu.Hjálpaðu fátækum.Verndaðu ofsótta.Snúðu öllum villuráfandi til iðrunar.Gef látnum eilífa dýrð.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, með þínum eingetna Syni hefur þú gert oss að nýju sköpunarverki, lít með náð á verk miskunnsemi þinnar, hreinsa brott allar fornar ávirðingar vorar við komu Sonar þíns. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 143, 1-11

Andstef · Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, því ég treysti þér.

1Drottinn, heyr þú bæn mína * ljá eyra grátbeiðni minni í trúfesti þinni, bænheyr mig í réttlæti þínu.

2Gakk eigi í dóm við þjón þinn * því að enginn er réttlátur fyrir augliti þínu.

3Óvinurinn eltir sál mína, slær líf mitt til jarðar * lætur mig búa í myrkri eins og þá sem löngu eru dánir.

4Andi minn örmagnast í mér * hjarta mitt er agndofa hið innra í mér.

5Ég minnist fornra daga * íhuga allar gjörðir þínar, ígrunda verk handa þinna.

6Ég breiði út hendurnar í móti þér * sál mín er sem örþrota land fyrir þér. [Sela]

7Flýt þér að bænheyra mig, Drottinn, andi minn örmagnast, byrg eigi auglit þitt fyrir mér * svo að ég verði ekki líkur þeim, er gengnir eru til grafar.

8Lát þú mig heyra miskunn þína að morgni dags, því að þér treysti ég. Gjör mér kunnan þann veg * er ég á að ganga, því að til þín hef ég sál mína.

9Frelsa mig frá óvinum mínum * Drottinn, ég flý á náðir þínar.

10Kenn mér að gjöra vilja þinn * því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.

11Veit mér að lifa, Drottinn, sakir nafns þíns * leið sál mína úr nauðum sakir réttlætis þíns.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Byrg eigi auglit þitt fyrir mér, því ég treysti þér.

Stuttur ritningarlestur

1Pt 5, 8-9aVerið algáðir, vakið. Óvinur yðar, djöfullinn, gengur um sem öskrandi ljón, leitandi að þeim, sem hann geti gleypt. Standið gegn honum stöðugir í trúnni.

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Miskunnsami Drottinn, hrek á brott myrkur þessarar nætur og lát heimili þitt sofa í friði, svo að við dögun fái það fyllt gleði að vakna í þínu nafni. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007