Miðvikudagur í 19. viku almenns kirkjutíma
Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.
Almennur kirkjutími · Vika 19Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.
Einnig í dag
Jóhanna Fransiska de Chantal reglusystir
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- Esekíel 9:1-7; 10:18-22
- Davíðssálmur
- Sálmur 113:1-2, 3-4, 5-6
- Guðspjall
- Matteusarguðspjall 18:15-20
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Minn Herra Jesús, hvert fer þú?ei hryggur þarf ég spyrja nú,ég veit þú fórst til föður heimog fagna nú af boðskap þeim.En hins má spyrja: Hvert fer þú,sem heyrir raust þíns Drottins nú?Hvort ferðast þú á ferli þeim,til föður þíns er liggur heim?Ó, hvert fer þú, mitt barnið blítt,er brosir nú svo milt og hlýtt?Ó, Guð veit, hvar þín liggur leið,hann leiði þig um æviskeið.Og hvert fer þú, sem hraðar þérog hart í lífsins kappleik fer?Ó, keppstu hnoss að höndla það,er himins dyrum leiðir að.Og hvert fer þú, sem langa leiðum lífsins hefur runnið skeið?Ef röngum vegi ertu á,tak aðra betri stefnu þá.Þú maður, hvert sem hér þú fer,Guðs helgur andi fylgi þér,og hvar sem liggur leiðin þín,þig leiði Drottinn heim til sín. Amen.
Sálmur 86
Andstef · Gleð þú sál þjóns þíns, því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína.
1Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig * því að ég er hrjáður og snauður.
2Vernda sál mína, því að ég er helgaður þér * hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér.
3Ver mér náðugur, Drottinn * því þig ákalla ég allan daginn.
4Gleð þú sál þjóns þíns * því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína.
5Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa * gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig.
6Hlýð, Drottinn * á bæn mína og gef gaum grátbeiðni minni.
7Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig * því að þú bænheyrir mig.
8Enginn er sem þú meðal guðanna * Drottinn, og ekkert er sem þín verk.
9Allar þjóðir, er þú hefur skapað * munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt.
10Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk * þú einn, ó Guð!
11Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum * gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.
12Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn * af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu,
13því að miskunn þín er mikil við mig * og þú hefur frelsað sál mína frá djúpi Heljar.
14Ofstopamenn hefjast gegn mér, ó Guð * og hópur ofríkismanna sækist eftir sál minni, eigi hafa þeir þig fyrir augum.
15En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð * þolinmóður og gæskuríkur og harla trúfastur.
16Snú þér að mér og ver mér náðugur * veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar.
17Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir * að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Gleð þú sál þjóns þíns, því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína.
Sálmur — Jes 33, 13-16 — Guð mun dæma með réttlæti
Andstef · Sæll er sá maður, sem gengur réttvíslega og talar af hreinskilni.
13Heyrið, þér sem fjarlægir eruð, hvað ég hefi gjört * og sjáið, þér sem nálægir eruð, kraft minn!
14Syndararnir í Síon eru hræddir, skelfing hefur gagntekið guðleysingjana * „Hver af oss má búa við eyðandi eld, hver af oss má búa við eilíft bál?“
15Sá sem fram gengur réttvíslega og talar af hreinskilni, sá sem hafnar þeim ávinningi, sem fenginn er með ofríki, sá sem hristir mútugjafir af höndum sér * sá sem byrgir fyrir eyru sín til þess að heyra eigi morð ráðin, sá sem afturlykur augum sínum til þess að horfa eigi á það, sem illt er,
16hann skal búa uppi á hæðunum. Hamraborgirnar skulu vera vígi hans * brauðið skal verða fært honum og vatnið handa honum skal eigi þverra.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Sæll er sá maður, sem gengur réttvíslega og talar af hreinskilni.
Sálmur 98
Andstef · Látið gleðióp gjalla fyrir konunginum Drottni.
1Syngið Drottni nýjan söng, því að hann hefur gjört dásemdarverk * hægri hönd hans hjálpaði honum og hans heilagi armleggur.
2Drottinn hefur kunngjört hjálpræði sitt * fyrir augum þjóðanna opinberaði hann réttlæti sitt.
3Hann minntist miskunnar sinnar við Jakob og trúfesti sinnar * við Ísraels ætt. Öll endimörk jarðar sáu hjálpræði Guðs vors.
4Látið gleðióp gjalla fyrir Drottni, öll lönd * hefjið gleðisöng, æpið fagnaðaróp og lofsyngið.
5Leikið fyrir Drottni á gígju * á gígju með lofsöngshljómi,
6með lúðrum og básúnuhljómi * látið gleðióp gjalla fyrir konunginum Drottins.
7Hafið drynji og allt sem í því er * heimurinn og þeir sem í honum lifa.
8Fljótin skulu klappa lof í lófa * fjöllin fagna öll saman
9fyrir Drottni sem kemur til að dæma jörðina. * Hann dæmir heiminn með réttlæti og þjóðirnar með réttvísi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Látið gleðióp gjalla fyrir konunginum Drottni.
Stuttur ritningarlestur
Jb 1, 21; 2, 10bNakinn kom ég af móðurskauti og nakinn mun ég aftur þangað fara. Drottinn gaf og Drottinn tók, lofað veri nafn Drottins. Fyrst vér höfum þegið hið góða af Guði, ættum vér þá ekki einnig að taka hinu vonda?
Stutt svarvers
Beyg hjarta mitt, Guð, * að reglum þínum.
Beyg hjarta mitt, Guð, * að reglum þínum.
Lífga mig á vegum þínum.
Að reglum þínum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Beyg hjarta mitt, Guð, * að reglum þínum.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Auðsýn oss miskunn, Drottinn, og minnstu þíns heilaga sáttmála.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Kristur styrkir og nærir Kirkjuna, sem hann var framseldur fyrir. Biðjum til hans og segjum:Vernda Kirkju þína, Drottinn.Blessaður sért þú, hirðir Kirkju þinnar, sem í dag veitir oss ljós og líf,veit oss að þakka þér í gleði fyrir gæðin er þú veitir oss.Lít í mildi til hjarðarinnar, sem þú hefur safnað saman,leyf ekki að neinn glatist af þeim, sem Faðirinn hefur falið þér.Leið Kirkjuna á vegum boða þinna,Heilagur Andi þinn geri hana stöðugt trúa þér.Lífga Kirkju þína við borð orðs þíns og brauðs,svo að hún styrkt þessari fæðu fylgi þér í gleði.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Vér biðjum þig Drottinn, úthelltu heilögu ljósi þínu í hjörtu vor, svo að vér, sem þú skapaðir af visku og leiðir af forsjá, séum stöðugt trúföst. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Minning dagsins · HL. JÓHÖNNU FRANSISKU CHANTAL
Guð, þú upplýstir sæla Jóhönnu Fransisku fyrir skínandi verðleika hennar um ólíka lífsins stigu. Veit oss fyrir árnað hennar að vér sem göngum trúfastlega í köllun vorri sýnum stöðugt fordæmi ljóssins. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Ég vil í Drottni sofna sætt,samviskustríðið allt er bætt,dauðahaldi ég Drottin þríf,dýrstur gef þú mér eilíft líf.Kveð ég í Guði góðan lýð,gleðilegar þeim nætur býð,þakkandi öllum þeirra styrk,þjónustu, hjálp og kærleiksverk.Ástkæra þá, ég eftir skil,afhenda sjálfum Guði vil,andvarpið sér hann sárt og heitt,segja þarf honum ekki neitt.Lúinn anda ég legg nú af,lífinu ráði sá sem gaf,í sárum Jesú mig sætt innvef,sálu mína ég Guði gef.Láttu mig, Drottinn, lofa þig,með lofi þínu hvíla mig,ljósið í þínu ljósi sjá,lofa þig strax sem vakna má. Amen.
Sálmur 126
Andstef · Þeir sem sá með tárum, munu uppskera með gleðisöng.
1Þegar Drottinn sneri við hag Síonar * þá var sem oss dreymdi.
2Þá fylltist munnur vor hlátri, og tungur vorar fögnuði. Þá sögðu menn meðal þjóðanna * „Mikla hluti hefur Drottinn gjört við þá.“
3Drottinn hefur gjört mikla hluti við oss * vér vorum glaðir.
4Snú við hag vorum, Drottinn * eins og þú gjörir við lækina í Suðurlandinu.
5Þeir sem sá með tárum * munu uppskera með gleðisöng.
6Grátandi fara menn og bera sæðið til sáningar * með gleðisöng koma þeir aftur og bera kornbindin heim.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Þeir sem sá með tárum, munu uppskera með gleðisöng.
Sálmur 127
Andstef · Drottinn reisir hús handa oss og verndar borg vora.
1Ef Drottinn verndar eigi borgina * vakir vörðurinn til ónýtis.
2Það er til ónýtis fyrir yður, þér sem snemma rísið og gangið seint til hvíldar og etið brauð * sem aflað er með striti: Svo gefur hann ástvinum sínum í svefni!
3Sjá, synir eru gjöf frá Drottni * ávöxtur móðurkviðarins er umbun.
4Eins og örvar í hendi kappans * svo eru synir getnir í æsku.
5Sæll er sá maður, er fyllt hefur örvamæli sinn með þeim * þeir verða eigi til skammar, er þeir tala við óvini sína í borgarhliðinu.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn reisir hús handa oss og verndar borg vora.
Sálmur — Kól 1, 12-20 — Kristur er frumburður allrar sköpunar og frumburður frá dauðum
Andstef · Kristur er frumburður allrar sköpunar og þannig er hann fremstur í öllu.
12þakkað föðurnum, sem hefur gjört yður hæfa til * að fá hlutdeild í arfleifð heilagra í ljósinu.
13Hann hefur frelsað oss frá valdi myrkursins og * flutt oss inn í ríki síns elskaða sonar.
14Í honum eigum vér endurlausnina * fyrirgefningu synda vorra.
15Hann er í mynd hins ósýnilega Guðs * frumburður allrar sköpunar.
16Enda var allt skapað í honum í himnunum og á jörðinni, hið sýnilega og hið ósýnilega * hásæti og herradómar, tignir og völd. Allt hefur verið skapað í gegnum hann og fyrir hann.
17Hann er fyrri en allt * og allt á tilveru sína í honum.
18Og hann er höfuð líkamans, kirkjunnar, hann sem er upphafið * frumburðurinn frá hinum dauðu. Þannig skyldi hann verða fremstur í öllu.
19Því að í honum þóknaðist Guði * að láta alla fyllingu sína búa
20og láta hann koma öllu í sátt við sig, öllu bæði á jörðu og himnum * með því að semja frið með blóði sínu úthelltu á krossi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Kristur er frumburður allrar sköpunar og þannig er hann fremstur í öllu.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. Ef 3, 20-21Guði, sem í oss verkar með krafti sínum og megnar að gjöra langt fram yfir allt það, sem vér biðjum eða skynjum, honum sé dýrð í Kirkjunni og í Kristi Jesú um öll æviskeið, öld eftir öld. Amen.
Stutt svarvers
Frelsa mig, Drottinn, * og líkna mér.
Frelsa mig, Drottinn, * og líkna mér.
Hríf eigi sál mína burt með syndurum.
Og líkna mér.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Frelsa mig, Drottinn, * og líkna mér.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört og heilagt er nafn hans.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Bjarga þú lýð þínum, Drottinn.Endurnýjaðu Kirkju þína ævinlega.Umvefðu páfa N. með gjöfum þínum.Hjálpaðu biskupi vorum N.Varðveittu þjóðir í friði.Vertu viðstaddur á öllum heimilum.Minnstu samfélags vors.Styddu réttlæti.Blessaðu uppskeru bændanna.Vertu nálægur ferðamönnum.Stattu með listamönnum.Styrktu ekkjur.Gef látnum eilíft líf.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Miskunnsami Guð, lát rödd Kirkju þinnar stíga upp til þín og gef að þjóð þín, laus undan oki syndarinnar, þjóni þér og lifi örugg undir vernd þinni. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 31, 2-6
Andstef · Drottinn, ver verndari minn og hæli.
2Hjá þér, Drottinn, leita ég hælis * lát mig aldrei verða til skammar. Bjarga mér eftir réttlæti þínu,
3hneig eyru þín til mín, frelsa mig í skyndi * ver mér verndarbjarg, vígi mér til hjálpar.
4Því að þú ert bjarg mitt og vígi * og sakir nafns þíns munt þú leiða mig og stjórna mér.
5Þú munt draga mig úr neti því * er þeir lögðu leynt fyrir mig, því að þú ert vörn mín.
6Í þínar hendur fel ég anda minn * þú frelsar mig, Drottinn, þú trúfasti Guð!
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn, ver verndari minn og hæli.
Sálmur 130
Andstef · Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn.
1Úr djúpinu ákalla * ég þig, Drottinn,
2Drottinn, heyr þú raust mína * lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína!
3Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum * Drottinn, hver fengi þá staðist?
4En hjá þér er fyrirgefning * svo að menn óttist þig.
5Ég vona á Drottin, sál mín vonar * og hans orðs bíð ég.
6Meir en vökumenn morgun * vökumenn morgun, þreyr sál mín Drottin.
7Ó Ísrael, bíð þú Drottinn, því að hjá Drottni er miskunn * og hjá honum er gnægð lausnar.
8Hann mun leysa Ísrael * frá öllum misgjörðum hans.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. Ef 4, 26-27Ef þér reiðist, þá syndgið ekki. Sólin má ekki setjast yfir reiði yðar. Gefið djöflinum ekkert færi.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Drottinn, Jesús Kristur, mildur og af auðmjúku hjarta, þú býður þeim er fylgja þér, ok sem er ljúft og létta byrði. Vér biðjum þig að þiggja bænir og störf þessa dags og veit oss hvíldina sem vér þörfnumst svo að á morgun vér verðum enn viljugri að þjóna þér, sem lifir og ríkir um aldir alda.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007