Mánudagur í 10. viku almenns kirkjutíma
Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.
Almennur kirkjutími · Vika 10Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.
Lestur dagsins
Þetta er lesið í messu dagsins
- 1. lesning
- 1. Konungabók 17:1-6
- Davíðssálmur
- Sálmur 121:1bc-2, 3-4, 5-6, 7-8
- Guðspjall
- Matteusarguðspjall 5:1-12
Tíðabænir dagsins
Efri óttusöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Þú, Guð, sem stýrir stjarna herog stjórnar veröldinni,í straumi lífsins stýr þú mérmeð sterkri hendi þinni.Stýr mínu hjarta' að hugsa gottog hyggja' að vilja þínum,og má þú hvern þann blett á brott,er býr í huga mínum.Stýr minni tungu' að tala gott,og tignar þinnar minnast,lát aldrei baktal, agg né spottí orðum mínum finnast.Stýr minni hönd að gjöra gott,að gleði' eg öðrum veiti,svo breytni mín þess beri vott,að barn þitt gott ég heiti.Stýr mínum fæti' á friðar veg,svo fótspor þín ég rekiog sátt og eining semji ég,en sundrung aldrei veki. Amen.
Sálmur 42
Andstef · Hvenær mun ég fá að koma og birtast fyrir augliti Drottins?
1Til söngstjórans. Kóraítamaskíl.
2Eins og hindin, sem þráir vatnslindir * þráir sál mín þig, ó Guð.
3Sál mína þyrstir eftir Guði * hinum lifanda Guði. Hvenær mun ég fá að koma og birtast fyrir augliti Guðs?
4Tár mín urðu fæða mín dag og nótt * af því menn segja við mig allan daginn: „Hvar er Guð þinn?“
5Um það vil ég hugsa og úthella sál minni, sem í mér er * hversu ég gekk fram í mannþrönginni, leiddi þá til Guðs húss með fagnaðarópi og lofsöng, með hátíðaglaumi.
6Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð * því að enn mun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn.
7Guð minn, sál mín er beygð í mér * fyrir því vil ég minnast þín frá Jórdan– og Hermonlandi, frá litla fjallinu.
8Eitt djúpið kallar á annað djúp, þegar fossar þínir duna * allir boðar þínir og bylgjur ganga yfir mig.
9Um daga býður Drottinn út náð sinni * og um nætur syng ég honum ljóð, bæn til Guðs lífs míns.
10Ég mæli til Guðs: „Þú bjarg mitt * hví hefur þú gleymt mér? hví verð ég að ganga harmandi, kúgaður af óvinum?“
11Háð fjandmanna minna er sem rotnun í beinum mínum * er þeir segja við mig allan daginn: „Hvar er Guð þinn?“
12Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér? Vona á Guð * því að enn mun ég fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Hvenær mun ég fá að koma og birtast fyrir augliti Drottins?
Sálmur — Sr 36, 1-7. 13-16 — Bænarákall fyrir hina helgu borg, Jerúsalem
Andstef · Sýn oss, Drottinn, ljós miskunnar þinnar.
1Miskunna oss, Guð allra * og lít til vor og sýn oss ljós miskunnsemda þinna,
2og send ótta þinn yfir þjóðirnar, sem eigi hafa þín leitað, að þær megi vita * að enginn Guð er til nema þú, og að þær megi kunngjöra undur þín.
3Hef upp hönd þína yfir hinar framandi þjóðir * að þær megi sjá mátt þinn.
4Því að eins og þú hefur helgaður verið í oss í augsýn þeirra * svo skalt þú mikillegur gjörður verða meðal þeirra í vorri augsýn,
5að þær megi þekkja þig, eins og vér höfum og þig þekkt * að enginn Guð er til nema þú, Drottinn.
6Endurnýja tákn þín * og vinn ný kraftaverk.
7Vegsama hönd þína * og þinn hægri arm.
13Safna saman öllum ættkvíslum Jakobs, að þær megi vita, að enginn Guð er til nema þú * og megi kunngjöra hin miklu verk þín; og þú munt erfa þær eins og frá upphafi.
14Miskunna lýð þínum, sem nafn þitt er nefnt yfir * og Ísrael, sem þú hefur upp reist að vera þinn frumburð.
15Miskunna Jerúsalem, borginni * sem þú hefur helgað, borg hvíldar þinnar.
16Fyll Síon þínum ósegjanlegu orðum * og lýð þinn dýrð þinni.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Sýn oss, Drottinn, ljós miskunnar þinnar.
Sálmur 19, 2-7
Andstef · Lofaður sé Drottinn í festingu himinsins.
2Himnarnir segja frá Guðs dýrð * og festingin kunngjörir verkin hans handa.
3Hver dagurinn kennir öðrum * hver nóttin boðar annarri speki.
4Engin ræða, engin orð * ekki heyrist raust þeirra.
5Og þó fer hljómur þeirra um alla jörðina * og orð þeirra ná til endimarka heims. Þar reisti hann röðlinum tjald.
6Hann er sem brúðguminn, er gengur út úr svefnhúsi sínu * hlakkar sem hetja til að renna skeið sitt.
7Við takmörk himins rennur hann upp * og hringferð hans nær til enda himins, og ekkert dylst fyrir geislaglóð hans.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Lofaður sé Drottinn í festingu himinsins.
Stuttur ritningarlestur
Jer 15, 16Kæmu orð frá þér, gleypti ég við þeim, og orð þín voru mér unun og fögnuður hjarta míns, því að ég er nefndur eftir nafni þínu, Drottinn, Guð allsherjar.
Stutt svarvers
Gleðjist þér réttlátir, yfir Drottni, * hreinlyndum hæfir lofsöngur.
Gleðjist þér réttlátir, yfir Drottni, * hreinlyndum hæfir lofsöngur.
Syngið honum nýjan söng.
Hreinlyndum hæfir lofsöngur.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Gleðjist þér réttlátir, yfir Drottni, * hreinlyndum hæfir lofsöngur.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79
Andstef · Lofaður sé Drottinn, því að hann hefur vitjað vor og búið oss lausn.
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,
70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Frelsari vor gerði oss að konungsríki og prestum, svo að vér færum Guði velþóknanlega fórn. Fyllt þakklæti til hans segjum vér:Varðveit oss í þjónustu þinni, Drottinn.Kristur, eilífi æðsti prestur, þú veittir þjóð þinni prestdóminn,veit að hún færi þér ávallt andlega fórn, sem þóknist þér.Andi þinn veiti oss ávexti þína,þolinmæði, gæsku og mildi.Gef að vér elskum þig, svo að vér eignumst líf í þér, sem ert kærleikur,og réttar athafnir, svo að vér lofum þig með lífi voru.Gef að vér leitumst eftir því að vera gagnleg bræðrum vorum,svo að þeim reynist auðveldara að öðlast hjálpræðið.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Drottinn, almáttugi Guð, þú hefur leitt oss fram til þessa dags. Varðveit oss í dag í dyggð og lát oss eigi falla fyrir syndinni. Veit oss að breyta stöðugt eftir réttlæti þínu, í orðum, verkum og hugsunum. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Aftansöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Hymni
Til himins upp þig hef, mín sál,til himins fljúgi lofgjörð þín.Upp, upp, mitt hjarta, hugur, mál,með helgum söng, því dagur skín.Ó, Drottinn, náð þín dásöm er,ó, Drottinn, hjartans athvarf mitt,þú væran blund enn veittir mérog vaktir ennþá barnið þitt.Því skal, ó, Drottinn, dýrð þér tjáí dag og jafnan sála mín,þig lofi allt, er anda má,og allt, er blessar gæska þín.Af öllu hjarta eg þig bið:Æ, annast þú mig nú í dag,af elsku þinni legg mér liðog lát mér snúast allt í hag.En ef þú sendir mæðu mér,svo mín af harmi stynur önd,gef mér þá eins að þakka þérog þína blessa föðurhönd. Amen.
Sálmur 45 I
Andstef · Fegurri ert þú mannanna börnum, yndisleik er hellt út yfir varir þínar.
2Hjarta mitt svellur af ljúfum orðum * ég flyt konungi kvæði mitt, tunga mín er sem penni hraðritarans.
3Fegurri ert þú en mannanna börn, yndisleik er úthellt yfir varir þínar * fyrir því hefur Guð blessað þig að eilífu.
4Gyrð lendar þínar sverði * þú hetja, ljóma þínum og vegsemd.
5Sæk fram sigursæll sakir tryggðar og réttlætis * hægri hönd þín mun sýna þér ógurlega hluti.
6Örvar þínar eru hvesstar * þjóðir falla að fótum þér, fjandmenn konungs eru horfnir.
7Hásæti þitt er Guðs hásæti um aldur og ævi * sproti ríkis þíns er réttlætis–sproti.
8Þú elskar réttlæti og hatar ranglæti, fyrir því hefur Guð * þinn Guð, smurt þig með fagnaðarolíu framar félögum þínum.
9Myrra og alóe og kassía eru öll þín klæði * frá fílabeinshöllinni gleður strengleikurinn þig.
10Konungadætur eru meðal vildarkvenna þinna * konungsbrúðurin stendur þér til hægri handar í skrúða Ófír–gulls.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Fegurri ert þú mannanna börnum, yndisleik er hellt út yfir varir þínar.
Sálmur 45 II
Andstef · Sjá, brúðguminn kemur, gangið til móts við hann.
11„Heyr, dóttir, og hneig eyra * þitt! Gleym þjóð þinni og föðurlandi,
12að konungi megi renna hugur til fegurðar þinnar * því að hann er herra þinn og honum átt þú að lúta.
13Frá Týrus munu menn koma með gjafir * auðugustu menn lýðsins leita hylli þinnar.“
14Eintómt skraut er konungsdóttirin * perlum sett og gullsaumi eru klæði hennar.
15Í glitofnum klæðum er hún leidd fyrir konung * meyjar fylgja henni, vinkonur hennar eru færðar fram fyrir þig.
16Þær eru leiddar inn með fögnuði og gleði * þær fara inn í höll konungs.
17Í stað feðra þinna komi synir þínir * þú munt gjöra þá að höfðingjum um land allt.
18Ég vil gjöra nafn þitt minnisstætt öllum komandi kynslóðum * þess vegna skulu þjóðir lofa þig um aldur og ævi.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Sjá, brúðguminn kemur, gangið til móts við hann.
Sálmur — Ef 1, 3-10 — Um Guð, Frelsara
Andstef · Guð ákvað, er fylling tímans kæmi, að safna öllu undir eitt höfuð í Kristi.
3Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists * sem í Kristi hefur blessað oss með hvers konar andlegri blessun í himnahæðum.
4Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi * til þess að vér værum heilagir og lýtalausir fyrir honum. Í kærleika sínum
5ákvað hann fyrirfram að veita oss sonarrétt í * Jesú Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun
6til vegsemdar dýrð hans og náð * sem hann lét oss í té í sínum elskaða syni.
7Í honum, fyrir hans blóð eigum * vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra.
8Svo auðug er náð hans * sem hann gaf oss ríkulega með hvers konar vísdómi og skilningi.
9Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns * þá ákvörðun,
10sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi * Hann ætlaði að safna öllu því sem er í Kristi, á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í honum.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Guð ákvað, er fylling tímans kæmi, að safna öllu undir eitt höfuð í Kristi.
Stuttur ritningarlestur
1Þ 2, 13Vér þökkum Guði án afláts, því að þegar þér veittuð viðtöku því orði Guðs, sem vér boðuðum, þá tókuð þér ekki við því sem manna orði, heldur sem Guðs orði, eins og það í sannleika er. Og það sýnir kraft sinn í yður, sem trúið.
Stutt svarvers
Bæn mín sé fram borin, * sem reykelsisfórn fyrir auglit þitt.
Bæn mín sé fram borin, * sem reykelsisfórn fyrir auglit þitt.
Upplyfting handa minna sem kvöldfórn.
Sem reykelsisfórn fyrir auglit þitt.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Bæn mín sé fram borin, * sem reykelsisfórn fyrir auglit þitt.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55
Andstef · Sál mín lofi þig ávallt, Guð minn.
46Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Fyrirbænir
Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, heimsæktu lýð þinn.Sameina Kirkjuna.Varðveittu páfa vorn N.Verndaðu biskup vorn N.Vertu nálægur trúboðum.Íklæddu presta réttlæti.Helgaðu klausturfólk.Slökktu óvináttu.Nærðu börn með náð þinni.Gef að æskan dafni í visku.Huggaðu og styddu gamalt fólk.Vertu gjafmildur við vini vora.Taktu látna í tölu heilagra.
Faðir vor
Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.
Lokabæn
Almáttugi Guð, þú hefur veitt oss óverðugum þjónum þínum kraft til að vinna dagsverk vort. Vér þökkum þér fyrir allt sem vér höfum þegið í dag og biðjum þig að taka við kvöldbæn vorri sem lofgjörðarfórn. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.
Blessun
Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007
Náttsöngur
Upphaf
Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.
Syndajátning
Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.
Hymni
Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.
Sálmur 86
Andstef · Drottinn Guð, þú ert seinn til bræði, fullur þolinmæði og gæsku.
1Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig * því að ég er hrjáður og snauður.
2Vernda sál mína, því að ég er helgaður þér * hjálpa þú, Guð minn, þjóni þínum, er treystir þér.
3Ver mér náðugur, Drottinn * því þig ákalla ég allan daginn.
4Gleð þú sál þjóns þíns * því að til þín, Drottinn, hef ég sál mína.
5Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa * gæskuríkur öllum þeim er ákalla þig.
6Hlýð, Drottinn * á bæn mína og gef gaum grátbeiðni minni.
7Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig * því að þú bænheyrir mig.
8Enginn er sem þú meðal guðanna * Drottinn, og ekkert er sem þín verk.
9Allar þjóðir, er þú hefur skapað * munu koma og falla fram fyrir þér, Drottinn, og tigna nafn þitt.
10Því að þú ert mikill og gjörir furðuverk * þú einn, ó Guð!
11Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum * gef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.
12Ég vil lofa þig, Drottinn, Guð minn * af öllu hjarta og heiðra nafn þitt að eilífu,
13því að miskunn þín er mikil við mig * og þú hefur frelsað sál mína frá djúpi Heljar.
14Ofstopamenn hefjast gegn mér, ó Guð * og hópur ofríkismanna sækist eftir sál minni, eigi hafa þeir þig fyrir augum.
15En þú, Drottinn, ert miskunnsamur og líknsamur Guð * þolinmóður og gæskuríkur og harla trúfastur.
16Snú þér að mér og ver mér náðugur * veit þjóni þínum kraft þinn og hjálpa syni ambáttar þinnar.
17Gjör þú tákn til góðs fyrir mig, að hatursmenn mínir megi horfa á það sneyptir * að þú, Drottinn, hjálpar mér og huggar mig.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Andstef · Drottinn Guð, þú ert seinn til bræði, fullur þolinmæði og gæsku.
Stuttur ritningarlestur
Sbr. 1Þ 5, 9-10Guð hefur ekki ætlað oss til að verða reiðinni að bráð, heldur til að öðlast sáluhjálp fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, sem dó fyrir oss, til þess að vér mættum lifa með honum, hvort sem vér vökum eða sofum.
Stutt svarvers
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.
Í þínar hendur fel ég anda minn.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.
Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.
Guðspjallslofsöngur
Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32
Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.
1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,
2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,
3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,
4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.
Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.
Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.
Lokabæn
Drottinn, veit líkömum vorum hvíld í svefni og lát þau störf er vér höfum í dag unnið, vera undirbúning hinnar eilífu uppskeru. Fyrir Krist, Drottin vorn.Amen.
Blessun
Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.
Andstef til Maríu
Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.
Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007