Dagatal

Föstudagur í 2. viku almenns kirkjutíma

Virkur dagur á hinum almenna kirkjutíma.

Almennur kirkjutími · Vika 2

Litur dagsins er grænn — litur vaxtar og hins almenna kirkjutíma.

Lestur dagsins

Þetta er lesið í messu dagsins

Tíðabænir dagsins

Efri óttusöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Svo stór synd engin er,að megi granda þér,ef þú iðrandi sérí trúnni Jesú hér.Sé ég þig, sæll Jesú,svo sem álengdar nú,von mína' og veika trúvið bið ég hressir þú.Þá ég sé sárin mín,særir mig hjartans pín,en sárin þá sé ég þín,sorg öll og kvíðinn dvín.Lát mig, ó, Jesús kær,aldrei svo vera þér fjær,að sjái eg ei sár þín skær,þá sorg og eymd mig slær.Ég fel í sérhvert sinnsál og líkama minní vald og vinskap þinn,vernd og skjól þar ég finn. Amen.

Sálmur 51

Andstef · Sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.

1Til söngstjórans. Sálmur Davíðs,

2þá er Natan spámaður kom til hans * eftir að hann hafði gengið inn til Batsebu.

3Guð, vertu mér náðugur sakir elsku þinnar * afmá brot mín sakir þinnar miklu miskunnsemi.

4Þvo mig hreinan af misgjörð minni * hreinsa mig af synd minni,

5því að ég þekki sjálfur afbrot mín * og synd mín stendur mér stöðugt fyrir hugskotssjónum.

6Gegn þér einum hefi ég syndgað og gjört það sem illt er í augum þínum. Því ert þú réttlátur * er þú talar, hreinn, er þú dæmir.

7Sjá, sekur var ég, er ég varð til * syndugur, er móðir mín fæddi mig.

8Sjá, þú hefur þóknun á hreinskilni hið innra * og í fylgsnum hjartans kennir þú mér visku!

9Hreinsa mig með ísóp, svo að ég verði hreinn * þvo mig, svo að ég verði hvítari en mjöll.

10Lát mig heyra fögnuð og gleði * lát kætast beinin sem þú hefur sundurmarið.

11Byrg auglit þitt fyrir syndum * mínum og afmá allar misgjörðir mínar.

12Skapa í mér hreint hjarta, ó Guð * og veit mér nýjan, stöðugan anda.

13Varpa mér ekki burt frá augliti þínu * og tak ekki þinn heilaga anda frá mér.

14Veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis * og styð mig með fúsleiks anda,

15að ég megi kenna afbrotamönnum vegu þína * og syndarar megi hverfa aftur til þín.

16Frelsa mig frá dauðans háska, Guð hjálpræðis míns * lát tungu mína fagna yfir réttlæti þínu.

17Drottinn, opna varir mínar * svo að munnur minn kunngjöri lof þitt!

18Þú hefur ekki þóknun á sláturfórnum – annars mundi ég láta þær í té * og að brennifórnum er þér ekkert yndi.

19Guði þekkar fórnir eru sundurmarinn andi * sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.

20Gjör vel við Síon sakir náðar þinnar * reis múra Jerúsalem!

21Þá munt þú hafa þóknun á réttum fórnum, á brennifórn og alfórn * þá munu menn bera fram uxa á altari þitt.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Sundurmarið og sundurkramið hjarta munt þú, ó Guð, eigi fyrirlíta.

Sálmur — Hb 3, 2-4. 13a. 15-19 — Guð birtist til dóms

Andstef · Minnst þú, Drottinn, miskunnar í reiðinni.

2Drottinn, ég hefi heyrt boðskap þinn, ég er hræddur. Drottinn, endurnýja verk þitt áður en mörg ár líða * lát það verða kunnugt áður en mörg ár líða. Minnst þú miskunnar í reiðinni.

3Guð kemur frá Teman og Hinn heilagi frá Paranfjöllum. (Sela.) Tign hans þekur himnana * og af dýrð hans er jörðin full.

4Ljómi birtist eins og sólarljós, geislar stafa út frá hendi hans * og þar er hjúpurinn um mátt hans.

13Þú fer að heiman til þess að frelsa þjóð þína * til þess að hjálpa þínum smurða. Þú brýtur niður mæninn á húsi hins óguðlega, gjörir grundvöllinn beran niður á klöpp.

15Þú fer yfir hafið með hesta þína * yfir svelg mikilla vatna.

16Þegar ég heyrði það, titraði hjarta mitt, varir mínar skulfu við fregnina. Hrollur kom í bein mín * og ég varð skjálfandi á fótum, að ég yrði að bíða hörmungadagsins, uns hann rennur upp þeirri þjóð, er á oss ræðst.

17Þótt fíkjutréð blómgist ekki og víntrén beri engan ávöxt, þótt gróði olíutrésins bregðist og akurlöndin gefi enga fæðu * þótt sauðfé hverfi úr réttinni og engin naut verði eftir í nautahúsunum,

18þá skal ég þó gleðjast í Drottni * fagna yfir Guði hjálpræðis míns.

19Drottinn Guð er styrkur minn! Hann gjörir fætur mína sem * hindanna og lætur mig ganga eftir hæðunum. Til söngstjórans. Með strengjaleik.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Minnst þú, Drottinn, miskunnar í reiðinni.

Sálmur 147, 12-20

Andstef · Vegsama Drottin, Jerúsalem.

12Vegsama Drottin, Jerúsalem * lofa þú Guð þinn, Síon,

13því að hann hefur gjört sterka slagbrandana fyrir hliðum þínum * blessað börn þín, sem í þér eru.

14Hann gefur landi þínu frið * seður þig á hinu kjarnbesta hveiti.

15Hann sendir orð sitt til jarðar * boð hans hleypur með hraða.

16Hann gefur snjó eins og ull * stráir út hrími sem ösku.

17Hann sendir hagl sitt sem brauðmola * hver fær staðist frost hans?

18Hann sendir út orð sitt og lætur ísinn þiðna * lætur vind sinn blása, og vötnin renna.

19Hann kunngjörði Jakob orð sitt * Ísrael lög sín og ákvæði.

20Svo hefur hann eigi gjört við neina þjóð * þeim kennir hann ekki ákvæði sín. Hallelúja.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Vegsama Drottin, Jerúsalem.

Stuttur ritningarlestur

Ef 2, 13-16Þér sem eitt sinn voruð fjarlægir eruð orðnir nálægir í Kristi fyrir blóð hans. Því að hann er friður vor. Hann sameinaði bæði Gyðinga og heiðna menn og reif niður vegginn fjandskaparins, sem skildi þá að. Með líkama sínum afmáði hann lögmálið með boðorðum þess og skipunum til þess að setja frið og skapa í sér einn nýjan mann úr báðum. Í einum líkama sætti hann þá báða við Guð á krossinum, þar sem hann deyddi fjandskapinn.

Stutt svarvers

Ég hrópa til Guðs, hins hæsta. * Guð kemur öllu vel til vegar fyrir mig.

Ég hrópa til Guðs, hins hæsta. * Guð kemur öllu vel til vegar fyrir mig.

Hann sendir af himni og hjálpar mér.

Guð kemur öllu vel til vegar fyrir mig.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Ég hrópa til Guðs, hins hæsta. * Guð kemur öllu vel til vegar fyrir mig.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Sakaría — Lk 1, 68-79

Andstef · Vegna hjartans miskunnar Guðs, vitjar oss upprennandi sól af hæðum.

68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels * því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.

69Hann hefur reist oss horn * hjálpræðis í húsi Davíðs þjóns síns,

70eins og hann talaði fyrir * munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,

71frelsun frá óvinum vorum og úr höndum allra * er hata oss.

72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum * miskunn og minnst síns heilaga sáttmála,

73þess eiðs * er hann sór Abraham föður vorum

74að hrífa oss úr höndum óvina * og veita oss að þjóna sér óttalaust

75í heilagleik og réttlæti fyrir * augum hans alla daga vora.

76Og þú, sveinn! munt nefndur verða spámaður hins hæsta * því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans

77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu * sem er fyrirgefning synda þeirra.

78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors. Hún lætur * upp renna sól af hæðum að vitja vor

79og lýsa þeim, sem sitja í myrkri og skugga dauðans * og beina fótum vorum á friðar veg.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Kristur fól sig Guði á vald og fórnaði lífi sínu til að hreinsa samvisku vora af verkum dauðans. Tilbiðjum hann og segjum í einlægni:Í vilja þínum er friður vor, Drottinn.Af mildi þinni höfum vér þegið þennan nýja dag,gef að hann marki upphaf nýs lífs.Þú skapaðir allt og forsjón þín sér fyrir öllu,gef oss augu trúarinnar til þess að vér sjáum ummerki þín í sköpuninni.Þú sem gerðir hinn nýja og eilífa sáttmála í blóði þínu,gef oss að halda boðorð þín og vera trú sáttmála þínum.Er þú hékkst á krossinum flóði blóð og vatn úr síðu þinni,megi það heilnæma streymi þvo brott syndir vorar og gleðja borg Guðs.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Almáttugi Guð, veit oss er nú færum þér morgunbæn vora, að vér verðskuldum að syngja þér ævarandi lof ásamt þínum heilögu. Fyrir Drottin vorn Jesúm Krist, Son þinn, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, Guð, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Aftansöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Hymni

Enginn örvænta skyldi,þó iðrast hafi seint,söm er Guðs sonar mildi,sé annars hjartað hreint,því hvorki við stað né stundirstíluð er Drottins náð,allt fram andlátið undiross býðst hans hjálparráð.En þú skalt ekki treystaóvissri dauðastund,né Guðs með glæpum freista,gjörandi þér í lund,náðartíminn sé næstanógur höndum fyrir,slíkt er hættusemd hæsta,henni Guð forði mér. Amen.

Sálmur 116, 1-9

Andstef · Frelsa, Drottinn, sál mína frá dauða og fætur mína frá hrösun.

1Ég elska Drottin * af því að hann heyrir grátbeiðni mína.

2Hann hefur hneigt eyra sitt að mér * og alla ævi vil ég ákalla hann.

3Snörur dauðans umkringdu mig, angist Heljar mætti mér * ég mætti nauðum og harmi.

4Þá ákallaði ég nafn Drottins * „Ó, Drottinn, bjarga sál minni!“

5Náðugur er Drottinn og réttlátur * og vor Guð er miskunnsamur.

6Drottinn varðveitir varnarlausa * þegar ég var máttvana hjálpaði hann mér.

7Verð þú aftur róleg, sála mín * því að Drottinn gjörir vel til þín.

8Já, þú hreifst sál mína frá dauða * auga mitt frá gráti, fót minn frá hrösun.

9Ég geng frammi fyrir * Drottni á landi lifenda.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Frelsa, Drottinn, sál mína frá dauða og fætur mína frá hrösun.

Sálmur 121

Andstef · Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar.

1Helgigönguljóð Ég hef augu mín til fjallanna * Hvaðan kemur mér hjálp?

2Hjálp mín kemur frá Drottni * skapara himins og jarðar.

3Hann mun eigi láta fót þinn skriðna * vörður þinn blundar ekki.

4Nei, hann blundar ekki og sefur ekki * hann, vörður Ísraels.

5Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér * hann er þér til hægri handar.

6Um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein * né heldur tunglið um nætur.

7Drottinn mun vernda þig fyrir öllu illu * hann mun vernda sál þína.

8Drottinn mun varðveita útgöngu þína og * inngöngu héðan í frá og að eilífu.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar.

Sálmur — Opb 15, 3-4 — Tilbeiðsluhymni

Andstef · Réttlátir og sannir eru vegir þínir, konungur aldanna.

3Og þeir syngja söng Móse, Guðs þjóns, og söng lambsins og segja: Mikil og dásamleg eru verkin þín * Drottinn Guð, þú alvaldi, réttlátir og sannir eru vegir þínir, þú konungur aldanna.

4Hver skyldi ekki óttast, Drottinn, og vegsama nafn þitt? Því að þú einn ert heilagur * allar þjóðir munu koma og tilbiðja frammi fyrir þér, því að réttlátir dómar þínir eru opinberir orðnir.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Réttlátir og sannir eru vegir þínir, konungur aldanna.

Stuttur ritningarlestur

1Kor 2, 7-10aVér tölum leynda speki Guðs, sem hulin hefur verið, en Guð hefur frá eilífð fyrirhugað oss til dýrðar. Enginn af höfðingjum þessarar aldar þekkti hana, því að ef þeir hefðu þekkt hana, hefðu þeir ekki krossfest Drottin dýrðarinnar. En það er eins og ritað er: Það sem auga sá ekki og eyra heyrði ekki og ekki kom upp í hjarta nokkurs manns, allt það fyrirbjó Guð þeim, er elska hann. En oss hefur Guð opinberað hana fyrir Andann.

Stutt svarvers

Kristur dó vegna synda vorra, * til þess að hann gæti leitt oss til Guðs.

Kristur dó vegna synda vorra, * til þess að hann gæti leitt oss til Guðs.

Hann var deyddur að líkamanum til, en lifandi gjörður í Anda.

Til þess að hann gæti leitt oss til Guðs.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Kristur dó vegna synda vorra, * til þess að hann gæti leitt oss til Guðs.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Maríu — Lk 1, 46-55

Andstef · Minnstu, Drottinn, miskunnar þinnar eins og þú hefur heitið feðrum vorum.

46Önd mín miklar Drottin

47og andi minn gleðst í Guði * frelsara mínum.

48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar * héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.

49Því að mikla hluti hefur hinn voldugi við mig gjört * og heilagt er nafn hans.

50Miskunn hans við þá, er óttast hann * varir frá kyni til kyns.

51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og * drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.

52Valdhöfum hefur hann steypt af * stóli og upp hafið smælingja,

53hungraða hefur hann fyllt gæðum * en látið ríka tómhenta frá sér fara.

54Hann hefur minnst miskunnar sinnar og * tekið að sér Ísrael, þjón sinn,

55eins og hann talaði til feðra vorra * við Abraham og sæði hans ævinlega.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Fyrirbænir

Einlæglega og auðmjúklega biðjum vér Guð, sem hugsar um alla menn, og hrópum:Drottinn, vér treystum þér.Fullkomnaðu Kirkju þína.Verndaðu páfa vorn N.Styrktu biskup vorn N.Vertu hjá samfélagi biskupa.Hjálpaðu heimilislausum mönnum.Svalaðu hungruðum.Lýstu blindum.Huggaðu gamalt fólk.Styrktu helgaðar meyjar.Kallaðu gyðingaþjóðina til hins nýja sáttmála.Veittu löggjöfum visku.Gefðu styrk mönnum í freistni.Leiddu látna í hið eilífa ljós.

Faðir vor

Faðir vor, þú sem ert á himnum,helgist þitt nafn,komi þitt ríki,verði þinn vilji,svo á jörðu sem á himni.Gef oss í dag vort daglegt brauð,og fyrirgef oss vorar skuldir,svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum,og eigi leið þú oss í freistni,heldur frelsa oss frá illu.

Lokabæn

Guð, í hneyksli krossins opinberaðir þú ósegjanlega visku þína. Veit oss að sjá dýrð Sonar þíns í þjáningunni, svo að kross hans sé oss ávallt lind vonar og friðar. Því að hann er Guð, sem með þér lifir og ríkir í einingu Heilags Anda, um aldir alda.Amen.

Blessun

Í fjarveru prests eða djákna og ef einn er að verki lýkur morgunbæninni þannig: † Drottinn blessi oss og varðveiti oss frá öllu illu. Hann leiði oss til eilífs lífs.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007

Náttsöngur

Upphaf

Guð, kom mér til hjálpar.Drottinn, skunda mér til bjargar.Dýrð sé Föðurnum. Svo sem var. Hallelúja.

Syndajátning

Ég játa fyrir almáttugum Guðiog yður, bræður og systur,að ég hef syndgað mjögí hugsun, orði, athöfnog vanrækslu:mín sök, mín sök, mín mikla sök.Því bið ég alsæla Maríu, ætíð mey,alla engla og dýrlingaog yður, bræður og systur,að biðja fyrir mér við Guð, Drottin vorn.Almáttugur Guð miskunni oss,fyrirgefi oss syndir vorar og leiði oss til eilífs lífs.Amen.

Hymni

Ó, Drottinn hjá mér dvel í nóttþví degi hallar skjóttSjá, skuggar nætur nálgast óttver nær mér Guð í nótt.Ó, dvel hjá mér um dimma nóttdag þú fylgdir mérog kveiktir hjá mér kærleiksgnóttþá kyrrð ég fann hjá þér.Ó, ver hjá mér, halt vörð í nóttég veikur og einn erÞín huggun virðist hulin mérég hryggur leita’ að þér.Ó, Drottinn hjá mér dvel í nótt,nú dimma tekur óttÉg sekur er, ó, send mér þróttog seg mér verði rótt. Amen.

Sálmur 88

Andstef · Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga, um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.

1Syngist með Makalat–lagi. Hemans–maskíl Esraíta.

2Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga * um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.

3Lát bæn mína koma fyrir þig * hneig eyra að hrópi mínu,

4því að sál mín er mett orðin af böli * og líf mitt nálægist Hel.

5Ég er talinn með þeim * sem gengnir eru til grafar, ég er sem magnþrota maður.

6Mér er fenginn bústaður með framliðnum, eins og vegnum mönnum, er liggja í gröfinni * er þú minnist eigi framar, því að þeir eru hrifnir burt úr hendi þinni.

7Þú hefur lagt mig í gryfju undirheima * í myrkrið niðri í djúpinu.

8Reiði þín hvílir á mér * og alla boða þína hefur þú látið skella á mér. [Sela]

9Þú hefur fjarlægt frá mér kunningja mína * gjört mig að andstyggð í augum þeirra. Ég er byrgður inni og kemst ekki út,

10augu mín eru döpruð af eymd. Ég ákalla þig * Drottinn, dag hvern, breiði út hendurnar í móti þér.

11Gjörir þú furðuverk vegna látinna * eða munu hinir dauðu rísa upp til þess að lofa þig? [Sela]

12Er sagt frá miskunn þinni í gröfinni * frá trúfesti þinni í undirdjúpunum?

13Eru furðuverk þín kunngjörð í myrkrinu * eða réttlæti þitt í landi gleymskunnar?

14En ég hrópa til þín, Drottinn * og á morgnana kemur bæn mín fyrir þig.

15Hví útskúfar þú, Drottinn, sálu minni * hylur auglit þitt fyrir mér?

16Ég er hrjáður og aðþrengdur frá æsku * ég ber skelfingar þínar og er ráðþrota.

17Reiðiblossar þínir ganga yfir mig * ógnir þínar eyða mér.

18Þær umkringja mig eins og vötn allan liðlangan daginn * lykja um mig allar saman.

19Þú hefur fjarlægt frá mér ástvini og * félaga og gjört myrkrið að kunningja mínum.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Andstef · Drottinn, Guð minn, ég kalla um daga, um nætur hrópa ég frammi fyrir þér.

Stuttur ritningarlestur

Sbr. Jer 14, 9Þú ert mitt á meðal vor, Drottinn, og vér erum nefndir eftir nafni þínu. Yfirgef oss eigi!

Stutt svarvers

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Þú hefur frelsað oss, Drottinn, sannleikans Guð.

Í þínar hendur fel ég anda minn.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum og hinum Heilaga Anda.

Drottinn, * í þínar hendur fel ég anda minn.

Guðspjallslofsöngur

Lofsöngur Símeons — Lk 2, 29-32

Andstef · Frelsa oss, Drottinn, í vöku og vernda í svefni, svo að vér fáum vakað með Kristi og sofandi hvílst í hans friði.

1Nú lætur þú, Drottinn, þjón þinn í friði fara, * eins og þú hefir heitið mér,

2því að augu mín hafa séð * hjálpræði þitt,

3sem þú hefir opinberað * í augsýn allra lýða,

4ljós til opinberunar heiðingjum * og til vegsemdar lýð þínum Ísrael.

Dýrð sé Föðurnum og Syninum * og hinum Heilaga Anda.

Svo sem var í öndverðu, er enn og verður ávallt * og um aldir alda. Amen.

Lokabæn

Almáttugi Guð, veit oss náð til að sameinast eingetnum Syni þínum, sem þoldi dauða og gröf, svo að vér fáum risið upp til nýs lífs ásamt honum, sem lifir og ríkir um aldir alda.Amen.

Blessun

Drottinn veiti oss hljóða nótt og ákjósanleg ævilok. Amen.

Andstef til Maríu

Blíða móðir Frelsarans,himnahlið, sævarstjarna,hraða þér til hjálpar lýð þínum,sem þrátt fyrir hrösun vill reisa sig við.Þú sem fæddir skapara heimsins,og braust lögmál náttúrunnar,hélst flekklausum meydómi þínum.Lít til syndara í náð.

Birt með leyfi biskupsdæmisins · Tíðabænir 2007