Títusarbréfið 3Krans-útgáfa

Títusarbréfið 3

Minn þá á að vera undirgefnir höfðingjum og yfirvöldum, vera hlýðnir, vera reiðubúnir til sérhvers góðs verks;

lastmæla engum, vera ódeilugjarnir, vera sanngjarnir, sýna hvers konar hógværð við alla menn;

því að vér vorum og fyrrum óskynsamir, óhlýðnir, villuráfandi, í ánauð margs konar fýsna og lostasemda, ólum aldur vorn í ilsku og öfund, andstyggilegir, hatandi hver annan;

en er gæska Guðs frelsara vors og elska hans til mannanna birtist,

þá frelsaði hann oss, ekki vegna réttlætisverkanna, sem vér höfðum unnið, heldur samkvæmt miskunn sinni fyrir laug endurfæðingar og endurnýjungar heilags anda,

sem hann úthelli yfir oss ríkulega fyrir Jesúm Krist, frelsara vorn,

til þess að vér, réttlættir fyrir náð hans, yrðum í voninni erfingjar eilífs lífs.

Það orð er satt, og á þetta vil eg að þú leggir alla áherslu, til þess að þeir, sem fest hafa trú á Guð, láti sér umhugað um að stunda góð verk. Þetta er gott og mönnunum nytsamlegt.

En forðast þú heimskulegar þrætur og ættartölur og deilur og lögmálsstælur, því að þær eru gagnslausar og hégómlegar.

Þrætumanni skalt þú sneiða hjá, er þú hefir einu sinni og tvisvar ámint hann;

með því að þú veist að slíkur maður er rangsnúinn og syndgar; hann er sjálfdæmdur.

Þegar eg sendi Artemas til þín eða Týkíkus, þá gjör þér far um að koma til mín í Nikópólis, því þar hefi eg ásett mér að hafa vetrarvist.

Greið sem best för þeirra Senasar lögvitrings og Apollós, til þess að þá bresti ekkert.

En vorir menn eiga og að læra að stunda góð verk til nauðsynja-þarfa, til þess að þeir séu ekki ávaxtarlausir.

Allir, sem hjá mér eru, senda þér kveðju. Heilsa þeim, sem oss elska í trú. Náð sé með yður öllum.