En tala þú það, sem sæmir hinni heilnæmu kenningu,
að aldraðir menn séu bindindissamir, siðprúðir, hóglátir, heilbrigðir í trúnni, kærleikanum og þolgæðinu;
svo eiga og aldraðar konur að vera virðulegar í háttalagi sínu, ekki rógberar og ekki heldur í ánauð ofdrykkjunnar; heldur kenni gott frá sér,
til þess að þær laði hinar ungu til að elska menn sína, elska börn sín,
vera hóglátar, skírlífar, heimilisræknar, góðlátar, eiginmönnum sínum undirgefnar, til þess að orði Guðs verði ekki lastmælt.
Svo skalt þú og áminna hina yngri menn að vera hóglátir,
og sýn þig sjálfan í öllum greinum sem fyrirmynd góðra verka, sýn í kenningunni grandvarleik og virðuleik;
far þú með heilnæmt orð, óákæranlegt, til þess að andstæðingurinn fyrirverði sig, þegar hann hefir ekkert ilt um oss að segja.
Áminn þræla, að þeir séu undirgefnir húsbændum sínum og í öllu geðþekkir, ekki svörulir,
ekki hnuplsamir, heldur skulu þeir auðsýna hvers konar góða trúmensku, til þess að þeir prýði kenningu Guðs frelsara vors í öllum greinum.
Því að náð Guðs hefir opinberast sáluhjálpleg öllum mönnum,
og kennir hún oss að afneita óguðleik og veraldlegum girndum, og lifa hóglátlega, réttvíslega og guðrækilega í heimi þessum;
bíðandi hinnar sælu vonar og dýrðar-opinberunar hins mikla Guðs og frelsara vors Jesú Krists,
sem gaf sjálfan sig fyrir oss, til þess að hann leysti oss frá öllu ranglæti, og hreinsaði sjálfum sér til handa eignarlýð, kostgæfinn til góðra verka.
Tala þú þetta og áminn, og vanda um með fullum myndugleika. Lát engan lítilsvirða þig.