Gamla testamentiðLögmálið
Og Drottinn talaði við Móse og sagði:
tak Aron og sonu hans með honum, klæðin og smurningarolíuna, syndafórnaruxann, báða hrútana og körfuna með ósýrðu brauðunum,
og stefn þú saman öllum söfnuðinum við dyr samfundatjaldsins.
Og Móse gjörði eins og Drottinn bauð honum; og söfnuðurinn kom saman við dyr samfundatjaldsins.
Og Móse sagði við söfnuðinn: Þetta er það, sem Drottinn hefir boðið að gjöra.
Því næst leiddi Móse fram Aron og sonu hans og þvoði þá í vatni.
Og hann lagði yfir hann kyrtilinn, gyrti hann betlinu og færði hann í möttulinn, lagði yfir hann hökulinn og gyrti hann hökullindanum og batt hann þannig að honum.
Þá festi hann á hann brjóstskjöldinn og lét úrím og túmmím í brjóstskjöldinn.
Og hann setti vefjarhöttinn á höfuð honum; og framan á vefjarhöttinn setti hann gullspöngina, ennishlaðið helga, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.
Og Móse tók smurningarolíuna og smurði tjaldbúðina og alt, sem í henni var, og helgaði það.
Og hann stökti henni sjö sinnum á altarið og smurði altarið og öll áhöld þess, svo og kerið og stétt þess, til að helga það.
Því næst helti hann smurningarolíu á höfuð Aroni og smurði hann, tl þess að helga hann.
Síðan leiddi Móse fram sonu Arons, færði þá í kyrtla, gyrti þá belti og batt á þá höfuðdúka, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.
Þá leiddi hann fram syndafórnaruxann, og Aron og synir hans lögðu hendur sínar á höfuð syndafórnaruxans.
En Móse slátraði honum, tók blóðið og reið því með fingri sínum á horn altarisins alt í kring, og syndhreinsaði altarið, en því sem eftir var af blóðinu helti hann niður við altarið; og hann helgaði það með því að friðþægja fyrir það.
Því næst tók hann allan innýflamörinn, stærra lifrarblaðið, bæði nýrun og nýrnamörinn; og Móse brendi það á altarinu.
En uxann sjálfan, bæði húðina af honum, kjötið og gorið, brendi hann í eldi fyrir utan herbúðirnar, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.
Því næst leiddi hann fram brennifórnarhrútinn, og Aron og synir hans lögðu hendur sínar á höfuð hrútsins.
Síðan slátraði Móse honum og stökti blóðinu alt um kring á altarið.
Og hann hlutaði hrútinn sundur; og Móse brendi höfuðið, stykkin og mörinn.
En innýílin og fæturna þvoði hann í vatni; síðan brendi Móse allan hrútinn á altarinu; það var brennifórn þægilegs ilms, það var eldfórn Drottins til handa, svo sem Drottinn hafði boðið Móse.
Þessu næst leiddi hann fram hinn hrútinn, vígsluhrútinn, og Aron og synir hans lögðu hendur sínar á höfuð hrútsins.
Og Móse slátraði honum, og tók nokkuð af blóði hans og reið því á hægri á Eyrnasnepil Arons, á þumalfingur hægri handar hans og á stóru fá hægri fótar hans.
Þá leiddi Móse fram sonu Arons og reið nokkurn af blóðinu á hægri eyrnasnepil þeirra og á þumalfingur hægri handar Þeirra og á stóru fá hægri fótar þeirra. Og Móse stökti blóðinu alt um kring á altarið.
Og hann tók mörinn: rófuna, allan innýflamörinn, Stærra lifrarblaðið, bæði nýrun og nýrnamörinn og hægra lærið;
sömuleiðis tók hann úr körfunni með ósýrðu brauðunum, sem stóð frammi fyrir Drottni, eina ósýrða köku og eina olíuköku og eitt flatbrauð og lagði það ofan á mörinn og hægra lærið.
Og hann lagði það alt í hendur Aroni og í hendur sonum hans, og veifaði því til veififórnar frammi fyrir Drottni.
Síðan tók Móse það af höndum þeirra og brendi það á altarinu ofan á brennifórninni. Það var vígslufórn til þægilegs ilms, það var eldfórn Drottins til handa.
Því næst tók Móse bringuna og veifaði henni til veififórnar frammi fyrir Drottni. Fékk Móse hana í sinn hluta af vígsluhrútnum, svo sem Drottinn hafði boðið Móse..
Og Móse tók nokkuð af smurningarolíunni og nokkuð af blóðinu, sem var á altarinu, og stökti því á Aron og klæði hans, og á sonu hans og á klæði sona hans ásamt honum; og hann helgaði Aron og klæði hans, og sonu hans og klæði sona hans ásamt honum.
Og Móse sagði við Aron og sonu hans: Sjóðið kjötið fyrir dyrum samfundatjaldsins og etið það þar ásamt brauðinu, sem er í vígslufórnarkörfunni, svo sem eg bauð, er eg sagði: Aron og synir hans skulu eta það.
En leifarnar af kjötinu og brauðinu skuluð þér brenna í eldi.
Og sjö daga skuluð þér ekki ganga burt frá dyrum samfundatjaldsins, unz vígsludagar yðar eru á enda, því að sjö daga Skal fylla hendur yðar.
Svo sem gjört hefir verið í dag hefir Drottinn boðið að gjöra, til þess að friðþægja fyrir yður.
Og við dyr samfundatjaldsins skuluð þér vera sjö daga, bæði dag og nótt, og varðveita boðorð Drottins, svo að þér deyið ekki, því að svo hefir mér verið boðið.
Og Aron og synir hans gjörðu alt það, sem Drottinn hafði boðið fyrir Móse.